16.04.1932
Efri deild: 53. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í C-deild Alþingistíðinda. (3418)

92. mál, kartöflukjallarar og markaðsskálar

Frsm. (Páll Hermannsson):

Þegar þetta mál var hér f hv. d. við fyrri hluta þessarar umr., komu fram uppástungur um það, hvort n. vildi ekki taka til íhugunar að breyta frv. á þá leið, sem hv. 2. landsk. minntist á. frá hv. 2. þm. Eyf. kom þá fram í málinu rökst. dagskrá, sem fól í sér það, að þessi væri vænzt, að ríkisstj. greiddi fyrir sölu jarðepla án þess að lagt væri í kostnað við það frá ríkisins hálfu, ef mig minnir rétt.

Hæstv. atvmrh. beindi því ennfremur til n., hvort hún vildi ekki breyta frv. á hann hátt, að það gerði aðeins ráð fyrir heimild til þess að leigja húsnæði til kartöflugeymslu, þó það kostaði eitthvað.

N. hefir nú yfirvegið þetta mál á fundi, og hefi ég ekki önnur boð að flytja frá n. viðvíkjandi frv. en þau, að hún sér ekki ástæðu til þess að breyta frv., heldur að láta fara um það hér í hv. d. eins og verða vill.

Það sjá allir, að það tekur því ekki að fara að samþ. dagskrá á þá leið, að ríkisstj. megi greiða fyrir þessu máli án þess að kosta nokkru til, því það getur stj. alveg eins fyrir því, þó að Alþingi samþ. enga dagskrá.

N. vill láta afgr. frv. eins og það liggur fyrir. Hinsvegar hefir hún gert ráð fyrir því, ef frv. nær samþykki, að sú leið verði tekin að leigja húsrúm fyrir þessa starfsemi, þó hún telji ekki ástæðu til að fastbinda það með lögum, hvor leiðin verði farin. N. verður að álita málið þannig vaxið að það sé nauðsynlegt að greiða fyrir sölu þeirrar innlendu voru, sem hér er um að ræða, og ýta með því undir þessa þörfu framleiðslugrein landsmanna, sem nú er svo mikil þörf fyrir til notkunar í landinu sjálfu.