11.05.1932
Efri deild: 72. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í C-deild Alþingistíðinda. (3425)
57. mál, land Garðakirkju
Jón Baldvinsson:
Þetta mál hefir lengi legið fyrir hv. allshn. og kemur nú loks með þeim hætti, sem nál. ber vott um, að ekki er ætlazt til, að það gangi fram á þessu þingi. Ég tel þessa afgreiðslu ekki æskilega. Hafnfirðingum liggur á landi strax, og það af fleiri en einni ástæðu. Það er alkunna, að í Hafnarfirði er ekkert land, sem hæft er til ræktunar. Hinsvegar er þeim bæ eins og öðrum þörf á að auka ræktun vegna íbúa sinna. Þeir tímar, sem nú eru, veita heldur ekki svo mikla atvinnu, að vanþörf væri á að bæta afkomuna með því að njóta einhverra landsnytja. Þeim væri því hin mesta þörf á því að fá þetta land nú, einmitt þegar lítið er um atvinnu og þeir því hefðu tíma til að leggja vinnu í ræktun þess. Mótmæli, búenda í Garðahreppi tel ég ekki næga ástæðu til þess að málinu verði frestað. Þeir munu nota land þetta sem beitiland. Sé ég ekki, að sú þörf sé meiri en þörf Hafnfirðinga, sem mundu rækta landið strax. Í bréfi dómsmrn. er tekið fram, að hugsa verði fyrir þörf sóknarprests til þessa lands. En á bréfi biskups er það að sjá, og hið sama skildist mér á ræðu hv. frsm., að þarna yrði naumast prestssetur tíðar, heldur mundi hann sitja í Hafnarfirði. Get ég hugsað, að biskup hafi gert sér betri grein fyrir þessu en dómsmrn. Er því sú ástæða niður fallin með bréfi biskups.
Það arkar að auðnu, hvernig atkvgr. fer um þetta mál. Ég geri ekki ráð fyrir því, að málið verði afgr. til fullnustu frá þinginu nú, þótt dagskrártill. yrði felld, sem, þó eru engin líkindi til, að gert verði. En það er jafnan svo með þessar dagskrár, að hæstv. stj. lítur frekar á þær sem handhæga afgreiðslu til að koma máli fyrir kattarnef á liðlegan hátt heldur en að hún telji sér skylt að gera miklu í því máli, sem svo er afgr.