11.05.1932
Efri deild: 72. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í C-deild Alþingistíðinda. (3428)

57. mál, land Garðakirkju

Bjarni Snæbjörnsson:

Það er síður en svo, að ég sé með nokkra afbrýðissemi í garð hv. 2. landsk. út af þessu máli. En það er bara þetta, að þó hv. þm. segist vonast til, að hann hafi gert allt sem hægt er að gera á þinglegan hátt í þessu máli, þá verð ég að segja, að ýms mál voru á döfinni á síðasta þingi, sem reynt var að gera ýmislegt meira fyrir, til þess að koma þeim gegnum þingið, heldur en bara að bera þau fram og tala fyrir þeim hér í deildinni. Það var þetta, sem ég átti við, og annað ekki. Ég efast ekki um, að hv. 2. landsk. hafi talað við n. og viljað, að málið kæmi fram í hv. d., og þar fram eftir geitunum. En það er ekki þar með sagt, að hann hafi gert það að því kappsmáli, sem hann hefir gert ýms önnur mál. Enda kallar hann þetta smámál. Það má vel vera, að það sé ekki í sjálfu sér beinlínis stórmál, en það er þó töluvert mikils virði fyrir Hafnfirðinga. Og mér fannst sem sagt, að hv. þm. myndi einhverntíma hafa brallað annað eins eins og þó hann hefði reynt að koma þessu máli einhvernveginn lengra áleiðis.