23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í C-deild Alþingistíðinda. (3477)
368. mál, skiptalög
Magnús Guðmundsson:
Mér þykir það undarlegt, að meiri hl. samgmn. skuli ekki hafa látið sannfærast af þeim rökum, sem hér voru færð fram við 1. umr. þessa máls um ónauðsyn þessa frv. — Aðalröksemdin fyrir málinu er sú, að felldur hafi verið úrskurður um forgangsrétt símagjaldanna, sem kemur í bága við fjölda af úrskurðum annara skiptaráðanda. Mætti það sannarlega æra óstöðuga, ef fara ætti að breyta lögum í hvert skipti, sem felldur er rangur úrskurður, og er enda ómögulegt og eins og hver önnur fjarstæða. En látum það nú vera, ef hér fylgdi ekki sá böggull skammrifi, að þessi upptalning á forgangsréttargjöldunum, sem er í frv., gæti leitt til þess, að forgangsréttur ýmissa annara gjalda yrði vafasamur. Sýnist mér, að þetta sé heppilegast orðað eins og það er í gömlu lögunum, sem kveða svo á, að öll gjöld og skattar til ríkissjóðs hafi forgangsrétt við þrotabúaskipti. Falla símagjöldin auðvitað undir þetta, enda hefir svo alltaf verið skilið, og er frv. því óþarft með öllu, og getur hinsvegar verið villandi, eins og ég benti á. Vil ég þess vegna skora á meiri hl. samgmn. að falla frá frv. og taka það aftur.