23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í C-deild Alþingistíðinda. (3478)
368. mál, skiptalög
Frsm. (Sveinn Ólafsson):
Það vill svo til, að ég er einn viðstaddur af meiri hl. samgmn., sem stendur að þessu frv., og get ég að sjálfsögðu ekki orðið við ósk hv. 2. þm. Skagf. um að taka frv. aftur fyrir hönd meðnm. minna, sem fjarverandi eru. — Það er að vísu rétt hjá hv. 2. þm. Skagf., að enginn vafi leikur á um forgangskröfurétt þeirra gjalda, sem beint renna í ríkissjóð samkv. lögum. Þar hefir réttarvenjan í sumum efnum skapað óskráð lög. En hér gegnir öðru máli, því að engin bein fyrirmæli eru til um það, að þessi gjöld, símagjöld og afnotagjöld útvarps, skuli renna í ríkissjóð, enda hefir réttarvenjan ekki ennþá bundið neitt fast við borð um þessi gjöld að því er þetta snertir, og úrskurður skiptaráðandans, sem ég áður nefndi, byggðist á því, að símagjöldin væru gjöld fyrir unnið verk, sem ekki yrði réttilega litið á eins og opinbera gjaldagreiðslu. Mér virðist því sjálfsagt, að sett séu lög um þetta atriði, svo að ekki geti leikið neinn vafi á um gjaldheimtuna.