05.03.1932
Neðri deild: 21. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í C-deild Alþingistíðinda. (3482)
71. mál, sauðfjármörk
Flm. (Jörundur Brynjólfsson):
Ég hefi ásamt hv. 1. þm. Eyf. leyft mér að flytja þetta frv. Eins og menn muna vafalaust, flutti ég þetta frv. á síðasta vetrarþingi, en þá varð það ekki útrætt. Ég hygg það ekki orka tvímælis, að hin mesta þörf sé á því að ráða bót á þeim mikla glundroða, sem nú er á sauðfjármörkum víðsvegar um land og ágerist æ meir og meir með hverju ári, eins og bezt sést, ef athugaðar eru markaskrár síðari ára. Sammerkingum fjölgar stöðugt, svo að hin mesta réttaróvissa ríkir nú um það, hverjir sauðféð eigi, sérstaklega eru mikil brögð að þessu um kollótt sauðfé og lömb, því að hyrnt fé brennimerkja menn yfirleitt nú orðið.
Þetta mál var nokkuð rétt á seinasta þingi. Var þá vikið að því af nokkrum hv. dm., að frv. hefði óþarflega mikinn kostnað í för með sér og komast mætti að hagkvæmari samningum um prentun markaskrár en við gerðum ráð fyrir. Ég sé enga ástæðu til að véfengja þetta, en við leituðum okkur upplýsinga um þetta atriði hjá fróðum manni í prentiðn, og byggðum síðan á þeim upplýsingum, en vera má, að hann hafi ekki tekið tillit til þeirra auglýsinga, sem venjulega eru látnar fylgja markaskrám og talsvert fé fæst fyrir. Eitt er það atriði, sem við höfum e. t. v. gert fullmikið úr í fyrra skiptið, en það er það starf, sem fylgir því að sjá um prentun markaskrárinnar. Í fyrra höfðum við ákveðið 3 þús. kr. laun handa þeim manni, sem aðallega sæi um það. En eftir þeim undirbúningi, sem þessi mál eiga að fá úti um héruðin, býst ég við, að þetta starf verði ekki svo ýkjamikið og aðallega í því fólgið að sjá um prófarkalestur. Aðalundirbúningurinn á að hafa farið fram úti um héruðin, svo sem að ráða mörkum o. s. frv. Þessi starfsemi hjá markadómi verður því minni en upphaflega var búizt við. Fyrir þá sök höfum við nú fellt úr frv. þessi ákvæði í 6. gr. þess, þar sem þessar launagreiðslur eru ákveðnar. Ég hefi ekki trú á því, að annað skipulag en það, sem við berum hér fram, verði til þess að koma í veg fyrir sammerkingar og námerkingar um land allt, að láta einn dóm skera úr þessum málum.
Um rétt manna til þess að halda mörkum hygg ég, að vel sé fyrir séð í 7. gr. frv., og eftir því sem mig minnir, að skoðanir manna væru á þeim hlutum á seinasta vetrarþingi, þá mun gr. vera í fullu samræmi við þær.
Þá höfum við gert dálitla breyt. á 8. gr. Hún miðar að því, að maður sá, sem hefir markasöfnun með höndum, fái 20% af markalaunum, en í gamla frv. er ekki gert ráð fyrir nema 10%. Þetta er talsvert mikið starf, og má vera, að þetta gjald sé minna en vera ætti. Ég get vel trúað því, að öll sanngirni mæli með því, að þetta væri ríflegra, en ég vona, að hv. landbn. sem ég býst við, að fái þetta frv. til meðferðar, athugi það atriði nánar.
Sökum þeirra ummæla, sem fram komu á seinasta þingi um kostnað við prentun markaskrár, að í frv. væri allt of ríflega áætlað gjald fyrir hvert mark, þá hefir það verið fært niður, þannig, að fyrir fyrstu tvö mörkin sé aðeins greidd ein króna fyrir markið, og ekkert sérstakt gjald fyrir brennimörk. Eftir upplýsingum frá einstökum þm. á seinasta þingi mun þetta fyllilega óhætt.
Hinsvegar höfum við látið gjaldið haldast, þegar mörkin eru orðin fleiri en tvö. Eigi sami maður fleiri en tvö mörk, skal hann greiða 5 kr. fyrir 1. mark þar fram yfir, 10 kr. fyrir 4. markið og þannig hækkandi áfram um 5 kr. Er þetta gert til þess að koma í veg fyrir óþarflega mikla markafjölgun.
Einnig höfum við gert dálitla breyt. á 20. gr., þannig að refsiákvæðin nái einnig til reglugerðar, sem kann að verða sett samkv. l.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta, en vænti fastlega, að d. taki frv. vel. Legg ég svo til, að frv. verði að lokinni umr. vísað til landbúnaðarnefndar.