29.04.1932
Neðri deild: 63. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í C-deild Alþingistíðinda. (3499)
71. mál, sauðfjármörk
Jörundur Brynjólfsson:
Út af ræðu hv. frsm. minni hl. vil ég láta í ljós ánægju mína yfir því, hvernig hann telur, að skilja eigi dagskrártill. sé ég af því, að ég hefi skilið hana rétt. Hann ætlast til, að stj. leiti umsagnar sýslun. um þetta, láti svo vinna úr því og undirbúa málið fyrir næsta þing. Ég vildi líka skilja hana svona. Munurinn er því minni en í fyrstu sýndist. Ég tel þó heppilegra, að farið sé eftir till. meiri hl.
Mér láðist áðan að minnast á það, sem bent var á, að heppilegra mundi vera að miða það svæði, sem markaskrá er látin ná yfir, við upprekstrarfélag frekar en sýslur, sem nú er víðast gert. Ég skal nú ekki segja um þetta, en ég get upplýst það, vegna þess sem fram kom, að í markaskrá Árnessýslu eru öll mörk sýslunnar prentuð. En sá maður, sem sá um prentun markaskrár fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslu og Reykjavík, fór þess á leit við markeigendur þá, sem búa í Árnessýslu vestan Ölfusár og Sogs, að þeir létu einnig prenta mörk sín með mörkum þessara sýslna, vegna mikils samgangs fjárins á þessu svæði. En mörk þessara manna eru eigi að síður prentuð í markaskrá Árnessýslu.
Að hv. þm. V.-Sk. þarf ég litlu að víkja, og sízt misjöfnu. Það má vel vera, að menn hafi skilið það svo, að ég hafi meint til hans það, sem ég sagði áðan. Þykir mér það leitt, ef hann hefir álitið, að ég vildi ámæla honum, en það ætlaði ég þó ekki að gera. Á hann og slíkt ekki skilið. Ég verð þó enn að segja, að það er misskilningur hjá hv. þm., að sýslunefndirnar hafi það á valdi sínu að lagfæra þá óreiðu, sem nú er á þessum málum. Það er þeim ekki hægt, hve fegnar sem þær vildu. Og það stendur ómótmælt, að sammerkingar og námerkingar milli samgangnahéraða, og jafnvel innan sýslu, aukast að stórum mun og valda hinum mestu vandræðum um fjárskil og þar með eignamissi. Ég vildi aðeins láta það koma greinilega fram, að sýslun. rétt ekkert við þetta. Þær hafa engin tök á að fá þá menn til hlýðni við sig, sem einráðir vilja vera og fast ekki til að leggja niður mörk sín, þótt sammerkt séu öðrum á samgangnasvæði. Afleiðingin er, að sammerkingum fjölgar og eignaróvissa eykst.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta. Ég vænti þess, hvor leiðin sem farin verður, að þá fáist þó ráðin bót á núverandi vandræðum og réttaróvissu, sem er um þetta efni.