17.05.1932
Efri deild: 76. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 552 í C-deild Alþingistíðinda. (3527)
581. mál, veitingasala, gistihúsahald o.fl.
Frsm. (Einar Árnason):
Það mun vera rétt til getið hjá hv. 1. landsk., að frv. á að vera til stuðnings íslenzkum gistihúsum, og ef svo er, þá á það nokkurn rétt á sér, ef það kemur ekki óþægilega niður að öðru leyti.
Ég skil frv. svo, að þar sé aðallega að ræða um þá menn, er hingað koma frá útlöndum, en ekki um þá, sem fara t. d. héðan til Akureyrar og dvelja þar meðan skipið stendur við. Þar að auki talaði hv. þm. um það, að fólk yrði að reka á land hvar sem skip hefði viðdvöl, en þetta er misskilningur. Það er beinlínis tekið fram í frv., að gistihús verði að vera á staðnum. Ég hygg, að þau séu ekki víða á landinu; það yrði tæplega nema 2 staðir, sem til greina kæmu, Reykjavík og Akureyri.
Annars skal ég ekki deila um þetta mál. Ég játa, að það er smámál, og ég býst við, að n. sæki það ekki fast að fá það samþ. Hún áleit, að það væri meinlaust og kynni frekar að styðja gistihús her, og hún vildi ekki standa í vegi fyrir slíkum stuðningi.