17.05.1932
Efri deild: 76. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í C-deild Alþingistíðinda. (3531)

581. mál, veitingasala, gistihúsahald o.fl.

Frsm. (Einar Árnason):

Í frv. stendur orðið „millilandaskip“, og held ég að orðið sé búið að fá fasta notkun í málinu í merkingunni: „skip, sem siglir eftir fastri áætlun milli Íslands og útlanda“. enda hefi ég ekki orðið var við það, að neinum hér hafi dottið í hug að leggja þann skilning í frv., sem hv. 1. landsk. gerir. Ég er þess vegna ekki viss um, að allshn. sjái ástæðu til að breyta frv. af þessum sökum, en hitt orkar meira tvímælis, hvort innanlandsferðir falla undir ákvæði frv., og gæti vel komi til mála, að n. athugaði það atriði frekar til 3. Umr., ef málið yrði látið ganga áfram. Það hefir tíðkazt nokkuð á síðari árum, að menn fara í slík innanlandsferðalög á sumrin til þess að skemmta sér, og þá einkum héðan úr Reykjavík til Norðurlands, og væri ef til vill rétt að athuga nánar, hvort slíkt fellur undir ákvæði frv. — Annars mun ég ekki deila frekar um þetta mál en þegar er orðið.