15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í C-deild Alþingistíðinda. (3538)
262. mál, vélgæsla á gufuskipum
Frsm. (Guðbrandur Ísberg):
Frv. þetta er flutt af meiri hl. sjútvn., en samið af skrifstofustjóranum í atvmrn., sem er manna kunnugastur því, hver nauðsyn hefir verið á því að veita undanþágur frá I. um atvinnu við vélgæzlu á gufuskipum undanfarin ár, vegna vöntunar á skólagengnum vélstjórum, og hvernig þessum undanþágum hefir verið háttað. Í frv. er lagt til, að þeir, sem hafa gegnt vélstjórastörfum í 5 ár eða lengur, an þess þó að hafa tekið próf, geti fengið endanlegt skírteini til að vera undirvélstjórar á fiskigufuskipum með minna en 300 hestafla vél eða yfirvélstjórar á gufuskipum með minna en 200 hestafla vél.
Það hefir komið fram í umr. um önnur frv., þar sem um hefir verið að ræða að veita einstökum mönnum undanþágur frá áðurnefndum lögum, hve mikill hörgull hefir verið á vélstjórum á gufuskip. Hefir að staðaldri allt til þessa orðið að veita slíkar undanþágur, til þess að fá nógu marga vélstjóra á skipaflotann. Liggja að vísu fyrir upplýsingar um það nú, að á næstunni muni rætast úr þessu, því að nú eru svo margir ungir menn á vélstjóraskólanum, að skólinn mun fara að fullnægja þessum þörfum. Hinsvegar er það þó mjög hart, ef þessum mönnum, sem gegnt hafa vélstjórastörfum um lengri eða skemmri tíma og hafa öðlazt þá leikni og þekkingu á þessum störfum, sem skólinn annars á að veita, verður bægt frá þeim með öllu, auk þess sem flestir þessir menn eru orðnir rosknir og ganga því fljótt úr skaftinu, en hinir yngri menn hafa tímann fyrir sér í þessu efni. Þá er og á það að líta, að ekki er ætlazt til, að þessir menn hljóti full vélstjóraréttindi skv. frv., en eru settir skör lægra en hinir, sem próf hafa tekið. Undanþáguheimild frv. er og útrunnin í árslok 1935, og er þessi takmörkun sett inn í frv. af n., sem taldi þetta hæfilegan tíma. En vel má vera, að þm. kjósi fremur að hafa um þetta aðra tímatakmörkun, og getur vafalaust orðið samkomulag um það atriði.
Þá gerir 2. gr. frv. ráð fyrir því, að ef menn, sem gegnt hafa vélstjórastörfum lengur en 3 ár, fara á vélstjóraskólann, sé heimilt að stytta smíðanámstíma hann, sem ella er krafizt í skólanum, þó svo, að smíðanámstími þeirra verði aldrei minni en 12 mánuðir.
Hingað til hefir sú verið venjan, að einstökum mönnum væri með sérstökum l. veitt vélstjóraréttindi, þó að þeir hafi ekki tekið tilætlað próf, en sú leið er miklu óheppilegri en að setja um þetta heildarlöggjöf um takmarkaðan tíma.
Ég hefi svo þessi orð ekki fleiri að svo stöddu, en vildi mega vænta þess, að hv. d. tæki þessu frv. vel.