28.04.1932
Neðri deild: 62. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í C-deild Alþingistíðinda. (3551)

262. mál, vélgæsla á gufuskipum

Jón Ólafsson:

Ég hafði ekki ætlað mér að taka til máls í þessu máli, en hv. 4. þm. Reykv. hagaði svo orðum í vörn sinni og upplestri, að ég get ekki hjá því komizt að taka til athugunar nokkur atriði úr ræðu hans. Ég skal fúslega viðurkenna það, að vélfræðingafélag Íslands á skilið viðurkenningu fyrir það, sem það hefir gert til þess að mennta stéttina og stuðla með því að meira öryggi í framtíðinni. Þetta menntunarstarf hefir gengið jöfnum skrefum í rétta átt, þó eins og upplýst hefir verið hér við umr. allt til þessa hafi þurft að nota undanþáguheimildina til þess að fá menn til að hlaupa í þau skörð, sem sérfræðingar voru ekki fyrir hendi til þess að fylla. Nú skildist mér á hv. 4. þm. Reykv., að þetta væru algerlega ómenntaðir menn, og þeir eru það auðvitað frá sjónarmiði þeirra manna, sem telja ekki menntun annað en það, sem lært er af bókum, en í reyndinni mun það vera svo, að þessir menn, sem í mörg ár hafa unnið þessi störf, þeir kunna svo vel til sinna verka, að hinir lærðu mega vara sig á þeim, og það getur meira að segja verið, að hinir ólærðu menn standi feti framar. Það liggur í augum uppi, að sá, sem lesið hefir á hina opnu bók, er að mörgu leyti færari en hinn, sem aðeins hefir setið á skólabekkjunum og enga æfingu hefir í því að fara með þá hluti, sem hann hefir verið að læra um. Ég get upplýst það, að fyrir 25 árum, þegar togaraútgerðin var að hlaupa hér af stokkunum, þá voru teknir 2 menn til þessa starfs, menn, sem enga bóklega menntun höfðu í þeirri grein. Annar var að vísu smiður. Nú er annar þessara manna vélstjóri á Óðni. Þessi maður hefir allan þennan tíma unnið sem vélstjóri, og hann hefir leyst sitt starf svo vel af hendi, að lærðir menn standa honum ekki framar. Hinn maðurinn, sem ég nefndi, hefir stundað sitt starf í 20 ár og þótt gefast allra manna bezt og hefir sérstakt lán fylgt honum og aldrei viljað til slys í starfi hans.

Þegar hér í hv. d. er verið að slá því fram, að mikil nauðsyn sé á að skipta um þessa menn til þess að varðveita öryggi mannslífa, þá get ég ekki að því gert, að mér verður að fara í huganum yfir þau slys, sem komið hafa fyrir vegna klaufaskapar eða vankunnáttu vélamannanna, og þá verður hún mér sú niðurstaða, að slík slys séu a. m. k. ekki tíðari hjá þeim ólærðu heldur en hinum, sem lærðir eru.

Það, sem gaf mér tilefni til að minnast á þetta, var einmitt það, að þegar Ólafur Sveinsson vélaeftirlitsmaður ríkisins kom af skólanum og tók við sínu starfi, þá þótti kenna þess hjá honum, að hann skorti praktíska þekkingu á þessum efnum. Þó er sá maður vel lærður, skynsamur og mjög samvizkusamur, en þrátt fyrir það vantaði meira að segja svo færan mann það, sem margur ólærður átti. Ég er nú ekki að segja þetta til þess að mæla með ólærðum mönnum fram yfir lærða, heldur er ég að bera blak af þessum vel reyndu, ólærðu mönnum, sem taldir eru nú hættulegir lífi og skipum.

Viðvíkjandi erindi frá vátryggingarfélögunum, sem hér hefir verið minnzt í umr. um þetta mál, vildi ég minna þau heiðruðu félög á að líta á þau mál, sem liggja þeim nær en þetta mál, þar sem félagið hefir látið viðgangast ýms óafsakanleg klaufastrik skipstjóra athugasemdalaust og án þess að taka þar til sinna sjálfsögðu ráða um öryggi. Það hefði verið full ástæða fyrir vátryggingarfél. að sjá um, að slíkir menn misstu sín réttindi. Ég ber ekki minnstu „respekt“ fyrir slíkum mótmælum sem þeim, er komið hafa frá félögunum í þessu máli.

Hv. 4. þm. Reykv. komst að síðustu í hálfgerða mótsögn við sjálfan sig. Hann viðurkenndi það, að nú sem stendur vantaði 15 menn í þær vélstjórastöður, sem til eru, og að margir þeirra manna, sem vélstjóraskólinn útskrifaði, færu út í veður og vind. Þó taldi hann enga þörf á því að veita neinar undanþágur. Reynslan hefir nú verið sú, að undanþágurnar hafa verið nauðsynlegar, og það hefði oft sett útgerðina í hreinustu vandræði, ef til þeirra hefði ekki verið hægt að grípa.

Ég geri ráð fyrir, að þessi þraut með vélstjóravandræðin sé nú leyst. Nú eru nægilega margir lærðir menn á boðstólum, þar sem nú líka engin ný skip bætast við og engir vilja eiga eða gera út skip. En ég vil ekki leysa þetta mál á hann hátt að taka atvinnuna af þeim, sem hjálpuðu þegar ekki var völ á lærðum mönnum. Ég tel, að það eigi heldur miklu fremur að verðlauna þessa menn með því að leyfa heim að halda áfram við sín störf. Þessir menn hafa margir gegnt starfinu í langan tíma, og það geta allir séð, að það er mörgum vandkvæðum bundið fyrir þessa menn að eiga að fara að setjast á skólabekk. Þeir eru margir eldri menn, sem hafa fyrir heimili og bornum að sjá, og það getur meira að segja verið vafasamt, að þeir hafi aðstöðu til þess að nota sér það námsleyfi, sem frv. gefur þeim. Þeir eiga líka margir hverjir annað skilið en að slíkt sé heimtað. Það getur meira að segja verið beinlínis illa gert, að slíkum mönnum sé bægt frá því starfi, sem þeir hafa um langan tíma stundað með fullkomlega góðum árangri.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um málið að þessu sinni. Ég kann bara afarilla við, að ráðizt sé á þá menn, sem reynzt hafa vel í sínu starfi, þó ekki séu þeir skólagengnir á því sviði. Ég vil svo að endingu endurtaka þá ósk, að sérfræðingarnir af vélstjóraskólanum reynist eins vel í. starfi sínu og þeir, sem ekki hafa gengið á neinn skóla.