26.05.1932
Efri deild: 84. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 586 í C-deild Alþingistíðinda. (3561)
262. mál, vélgæsla á gufuskipum
Bjarni Snæbjörnsson:
Eins og hv. frsm. gat um, komu fram í byrjun þingsins frumvörp frá mér í Ed. og frá hv. þm. Ak. í Nd., þar sem farið var fram á að veita takmörkuð vélstjóraréttindi nokkrum mönnum, sem áður hafa haft vélstjóraréttindi með undanþágu. Þegar þessi frv. komu fram, var töluvert reynt til þess af utanþingsmönnum að aftra framgangi þeirra í þinginu, og hefir þeim orðið það ágengt, að hvorugt þessara frv. hefir komið úr n. í þessari hv. d. þegar sást fram á það, að þau mundu ekki ná fram að ganga, bar sjútvn. Nd. þetta frv. fram, og hefir það nú verið samþ. í Nd. Gagnvart þessu frv. hefir líka komið upp öflug mótstaða hinna sömu manna, og virðist nú hv. sjútvn. Ed. hafa um of látið blindast af fortölum þeirra, en tekið minna tillit til þeirra manna, sem réttindanna áttu að njóta og ekki hafa haft neinn öflugan félagsskap að baki sér til að koma sínum málum fram. Þessum mönnum á að hrinda út úr atvinnu sinni þrátt fyrir það, þótt þeir hafi verið hjálp gegn því, að útlendir vélstjórar ílentust hér. Þessir menn hafa engan aðila átt til að tala sínu máli her, nema þá fáu þm., er gerðust til þess í Nd.
Því verður ekki á móti mælt, að þeir menn, sem um er að ræða í frv. því, er hér liggur fyrir, hafa innt mikið og gott starf af hendi. Og ég get ekki skilið, hvernig svo sem ég velti því fyrir mér, að hættan sé meiri í framtíðinni en hingað til hefir verið við það að láta þá gegna vélstjórn. Því hefir verið borið við, að svo margir nemendur væru nú í skólanum, að nægja mundi handa ölum flotanum. Það er það að vísu, ef allir eru taldir með, sem á skólann hafa gengið, en þar af hafa nokkrir horfið að öðrum störfum, og svo er það vitanlegt, að alltaf er misjafn sauður í mörgu fé, og þegar notast verður við hvern, sem til fæst, þá er alltaf hætta á, að menn verði ekki eins sómakærir og ella. Ég hefi oft heyrt um og orðið var við sorgleg dæmi þess arna. Það er aftur á móti gefinn hlutur, að enginn útgerðarmaður tekur próflausan mann fram yfir útlærðan vélstjóra, að öðru jöfnu. Það hefir mikið verið talað um, hve bókleg fræðsla væri nauðsynleg í þessari atvinnugrein. Ég skal síztur manna lasta bóklega fræðslu í þessu efni frekar en í öðrum greinum, en álit mitt hefir verið, að leikni í vélstjórn væri meir komin undir hagleik mannsins og praktískri þekkingu heldur en bóklegri. Ég sé því ekki, að frv. þetta verði til þess að gera farmennsku ótryggari. Ég hygg, að undir ákvæði þess komist ekki aðrir en þeir, sem eru vel til þessa starfs fallnir. Þeir verða að hafa meðmæli skipstjóra og vélstjóra úr stéttarfélagi þeirra, er próf hafa í vélstjórn, og ætlast ég ekki til þess af slíkum mönnum, að þeir myndu gefa slík vottorð öðrum en þeim, sem stæðu mörgum prófmanninum fyllilega á sporði.
Mér virðist sjútvn. heldur hefði átt að koma með brtt. við frv. heldur en að afgr. það eins og hún hefir gert, auka t. d. kröfurnar, sem gerðar voru að skilyrði, m. a. með því að krefjast þess, að þeir hefðu verið lengur við vélstjórn heldur en frv. fer fram a. Það er gert ráð fyrir 5 árum í frv. En það er vitanlegt, að margir hafa unnið lengur við vélgæzlu, 10 ár eða meira. Þessir menn eru orðnir það fullorðnir og eiga margir fyrir allstórri fjölskyldu að sjá, eru því orðnir stirðir til náms og hafa ekki efni á að afla sér þeirrar bókl. þekkingar, sem krafizt er til prófs. Þótt þeir fengju einhverja nasasjón af bóklegu námi, eins og hv. sjútvn. virðist helzt aðhyllast, þá yrði það helbert kák, en yrði til þess að auka mönnunum vandræði, erfiðleika og kostnað og jafnframt baka ríkissjóði útgjöld. Enn er það, að þótt þeir gengju á þetta námskeið, þá fengju þeir einungis réttindi til vélstjórnar á smærri skipum, línuskipum og þesskonar. En það er vitanlegt, að rosknir menn þola verr slík skip en t. d. bonvörpunga, þar sem betri er aðbúð manna og loftræsting, og sé ég ekki, að meiri hætta sé á því að láta slíka menn hafa 5 höndum vélgæzlu á togurum undir umsjón prófaðra vélstjóra heldur en að hafa á hendi yfirumsjón véla á smærri skipum.
Ég vil því mælast til þess, að hv. þd. eins og Nd. samþ. frv. en láti það eiga sig að gera nokkra ályktun um þetta námskeið. Eftir þeim anda, sem fram kom hjá hv. frsm., má ætla, að það verði að litlum notum, sé þarflaust og baki ríkinu aukin útgjöld. en verði mönnunum til lítils þekkingarauka.