03.06.1932
Efri deild: 92. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 821 í B-deild Alþingistíðinda. (358)
4. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Frsm. meiri hl. (Einar Árnason) [óyfirl.]:
Frv þetta er búið að bíða lengi hér í deildinni, og þar sem komið er að þinglausnum, skal ég ekki verða til þess að lengja umr. mikið. Það verður vitanlega að ráðast, hver örlög þess verða. Frv. er borið fram til þess að auka tekjur ríkissjóðs af bifreiðum umfram það, sem verið hefir, sökum hins sívaxandi vegaviðhalds. Hvernig viðhaldskostnaður þjóðvega í landinu hefir farið hraðvaxandi hin síðari ár, sést bezt á LR. Árið 1920 eru t. d. veittar 200 þús. kr. til viðhalds þjóðvega, en árið 1930 eru notaðar fullar 500 þús. kr. og 1931 mun hafa verið notað töluvert meir. Þessi gífurlega aukning viðhaldskostnaðarins stafar af hinni hraðvaxandi bílaumferð, og þess vegna virðist ekki nema sanngjarnt, að nokkur skattur sé lagður á bílana, til þess að létta undir með ríkissjóði um viðhald veganna.
Skattur af bifreiðum hefir verið hér alllengi í gildi. En hann er að mestu fast gjald, sem miðast við hestorku bifreiðanna og nemur 8 kr. á hverja hestorku fólksbifreiða en 2 kr. á hverja hestorku vörubifreiða. Hann hefir alltaf farið síhækkandi og mun hafa orðið hæstur 1931, 140 þús. kr. Frv. það, er hér liggur fyrir, gerir það tvennt, að auka tekjur ríkissjóðs af bifreiðunum og í öðru lagi að breyta grundvelli skattsins. Í stað þess að miða skattinn við hestorku vélanna er hann nú lagður á í þrennu lagi, á benzín, gúmmi og þunga bifreiðanna. En þungaskatturinn nær aðeins til fólksflutningsbifreiða.
Það hefir orðið töluverður ágreiningur um það, hvort sanngjarnt væri að leggja skatt á benzín. Um það má að sjálfsögðu deila. En ég lít svo á, að þar sem bifreiðaskatturinn er lagður á vegna umferðar bifreiðanna um vegina, þá sé sanngjarnt, að hann sé nokkuð lagður á í hlutfalli við umferð þeirra um þá. Í nágrannalöndunum er líka benzínskattttr, t. d. í Danmörku 3–10 aur. pr. lítra. Í Svíþjóð og Noregi er líka skattur á benzíni og gúmmi og þungaskattur af bifreiðum að auki. Fleiri Evrópulönd hafa einnig skatt á benzíni, og er því ekkert einsdæmi, þó að benzínskattur verði lagður á hér. Hestorkuskatturinn er að því leyti ranglatur, að hann fer eftir gerð vélanna og kemur því ekki á bifreiðina í hlutfalli við slit hennar á vegunum.
Því hefir verið haldið fram sem mótbáru gegn frv. þessu, að benzínskatturinn myndi íþyngja bifreiðanotendum, bæði vörubifreiða og fólksflutningabifreiða, svo mjög, að tilfinnanlegt yrði. En ég held, að sú ástæða sé ekki þung metunum, því að kostnaðaraukinn vegna skattsins mun láta nærri að vera 1 –1,20 kr. á 100 km. akstur miðað við 7 manna bifreið.
Fjhn. hefir haft mál þetta til athugunar, og eins og öllum hv. dm. er kunnugt, hefir hún ekki getað orðið sammála um afgreiðslu þess. Meiri hl. mælir með því, að frv. verði samþ., og þá helzt eins og það er nú, því að hann telur ríkissjóði þörf á þeim tekjuauka, sem af því myndi verða, þó ekki væri til annars en að halda vegunum við og létta undir með akstri bifreiðanna.
Það hefir komið fram brtt. frá hv. 2. þm. Árn., þar sem hann leggur til, að benzínskatturinn verði lækkaður, en þungaskatturinn aftur hækkaður. Á brtt. þessa get ég ekki fallizt, því að ég tel benzínskattinn sanngjarnan, en hinn síður. Fer brtt. þessi því í öfuga átt.