03.06.1932
Efri deild: 92. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (360)

4. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Magnús Torfason:

Það hefir verið lýst yfir því, að von sé á brtt. við frv. við 3. umr. og að málið verði þá tekið til nýrrar yfirvegunar. Ég get þá tekið þessa brtt. mína á þskj. 521 aftur til 3. umr.; svo get ég séð, hverjar till. koma, og er þá hugsanlegt, að ég geti tekið mínar till. aftur að fullu. Þó vil ég nota tækifærið til að lýsa því, hvers vegna till. mínar eru fram komnar. Eiga þær ástæður sérstaklega við um aðaltill. um það, að benzínskatturinn verði 3 aurar af hverjum lítra, í stað 4 aura, því að hina ber að skoða sem nokkurskonar varatill., þess efnis, að ef menn vildu ekki minnka tekjurnar af benzínskattinum, mætti fá þar eitthvað í staðinn. Því legg ég aðallega til, að benzínskatturinn sé lækkaður úr 4 aurum niður í 3 aura. Hv. frsm. meiri hl. kvað benzínskattinn hinn sanngjarnasta bifreiðaskatt, sem hægt væri að leggja á. En ég verð að segja, að ég er hér á allt annari skoðun. Hygg ég, að eins og til hagar hér á landi, sé hann allt annað en sanngjarn og sé sú skoðun hv. frsm. byggð á of lítilli reynslu í þessu efni. Er því ekki að neita, að þaralykt nokkur er af þessari skoðun hans, að skatturinn sé sanngjarn, enda býr hann ekki langt frá sjó. Það, sem veldur því, að ekki má bera saman þennan skatt og samskonar skatta í öðrum löndum, eru hinir illu vegir okkar. Eru þeir jafnvel fullvondir að sumrinu, en sérstaklega þó þegar blautt er, eins og mjög er títt, a. m. k. hér á Suðurlandi, þar sem oft má heita, að akvegir séu ófærir bifreiðum. Veit ég til þess, að farið hefir 6-falt meira af benzíni í bifreiðar að hausti en í þurrkum að sumri. Þessi benzíntollur verkar þannig, að því verri sem vegurinn er, því dýrara er að fara um hann. M. ö. o., þeir landsmenn, sem ekki búa við höfuðvegi, verða að borga miklu meiri skatt en aðrir. Að ég tala hér ekki út í bláinn, get ég stutt með eftirfarandi dæmi: Kaupfélag Árnesinga tók að sér fyrir nokkru bifreiðaflutning fyrir Mjólkurfélag Flóamanna. Bar þetta sig sæmilega um Flóann, þar sem beztir eru vegirnir, en á leiðinni upp í Hrunamannahrepp bar þetta sig aftur ekki, og að sú leið upp ágoðann af flutningunum á hinum vegunum, enda þótt flutningagjöldin upp í Hrunamannahrepp væru sett mun hærri á hvern km. Yfirleitt kemur þessi benzínskattur þyngst niður á vörubifreiðunum, sem nota meira benzín en mannflutningabifreiðar, og vörubifreiðarnar komumst við ekki hjá að nota. Er það óumflýjanlegt. Aftur má segja um fólksflutningabifreiðarnar, að þær eru a. m. k. að sumu leyti lítt þarfar. Nú í kreppunni eru t. d. Árnesingar miklu minna á ferð hér um slóðir en áður.

Þá færði hv. frsm. minni hl. ástæður fyrir því, að benzínskatturinn kæmi ekki hart niður, og voru ástæðurnar þær, að félögin, sem selja benzín, færðu niður verðið, ef skatturinn hækkaði, og tækju þannig þátt í þessum byrðum. Neita ég því ekki, að svo kunni að vera í útlöndum, en ég vil benda á, að hér þarf þetta ekki að eiga við, og er ólíklegt, að það eigi hér við. Þar sem samkeppnin um sölu steinolíu og benzíns er svo lítil sem hér er, eftir því sem mér er sagt, mun verðið ákveðið með samkomulagi milli félaganna, eins og oftast er, þar sem keppendur eru fáir. Er ég því ekki viss um, að þessi ástaeða eigi hér við.

Ég skal fyllilega játa það með hv. frsm. minni hl., að kaupstaðirnir eiga rétt á því, að litið sé líka á þeirra hagsmuni að því er snertir þennan skatt. Líka skal ég játa, að nauðsyn er á heilbrigðisráðstöfunum, sem fólgnar eru í því að minnka ryk af bifreiðaumferð, en ég held þó, að eins og nú er ástatt, verði ekki hægt að verja miklu til þeirra hluta. Samt hefi ég ekkert á móti ákvæðum í þá átt, sízt fyrirfram. Þó verð ég að benda á eina almenna ástæðu, sem styður að því, að fremur sé hugsað um sveitirnar, sem lengst eiga að sækja um flutninga til sjávar og frá. Kaupstaðirnir hafa atvinnu af bifreiðaferðunum og taka af þeim tekjur.

Skal ég svo að lokum, til þess að hv. frsm. meiri hl. gangi ekki í grafgötur um minn vilja í þessu máli, taka það fram, að ég get ekki fylgt frv. nema benzínskatturinn verði við 3. umr. færður ofan í 3 aura.