19.02.1932
Neðri deild: 5. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í C-deild Alþingistíðinda. (3619)
15. mál, fimmtardómur
Jón Auðunn Jónsson:
Ég verð að viðurkenna, að þessi pólitíski samherji hæstv. dómsmrh. mun hafa haft fyrir sér frv. eins og það lá fyrir þinginu í fyrra, því að frv. það, er hér liggur fyrir, var að sjálfsögðu ekki komið út þá, því að eins og kunnugt er, er allt svo síðbúið hjá þessari hæstv. stj., að ekkert kemur, sem frá henni á að koma, fyrr en í ótíma, eins og t. d. landsreikningurinn síðasti. Maðurinn mun því ekki hafa haft ástæður til þess að sjá, að hæstv. ráðh. hafði orðið að beygja sig þessu máli frá því síðast. Annars þýðir ekki að deila um frv. þetta við hæstv. ráðh., því að þar rekur sig hvað á annars horn. Það er fram komið frá hans hendi sem hefnd á einstaka menn, en af slíkum hvötum getur ekkert gott leitt löggjafarstarfinu.