15.03.1932
Neðri deild: 29. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í C-deild Alþingistíðinda. (3622)
15. mál, fimmtardómur
Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):
Vér verðum að viðurkenna það, Íslendingar, að ver erum eftirbátar annara þjóða á flestum sviðum, og á þetta ekki sízt við um löggjafarmálin. Meðfram á þetta rætur sínar að rekja til fólksfæðar og fjarlægðar, en stafar þó fyrst og fremst af því, hve enn er skammt síðan löggjafarvaldið fluttist inn landið. Frá því á dögum einveldisins allt fram til þess tíma, er Alþingi fékk ráðgjafarvaldið sínar hendur; voru öll lög hér á landi sett af dönskum stjórnarherrum, sem lítt eða ekki þekktu til haga þjóðarinnar, og enda hirtu ekki að kynna sér íslenzka þjóðhagi, þótt getað hefðu. Á þessu verður nokkur batnaðarbreyting með ráðgjafarvaldi Alþingis, en þó sérstaklega með stjskr. 1874, er Alþingi fékk í sínar hendur löggjafarvaldið innlendum málum. Yfirleitt er þó löggjöf okkar enn dag því marki brennd, að ekki hefir um hana verið leitað annara fyrirmynda en danskra eingöngu, og er þetta einkum að rekja til þess, að menntamenn landsins, og þar ekki sízt lögfræðingarnir, hafa allir sótt menntun sína til Danmerkur einvörðungu allt til skamms tíma. En einkum á þetta þó við um réttarfarslöggjöf okkar. Í gildandi réttarfarsreglum eigum við um margt við að búa enn þann dag dag ákvæði úr dönsku lögum Kristjáns V. frá 17. öld, og um annað ýms ákvæði úr tilskipunum og opnum bréfum frá 18. og 19. öld. Þannig er enn í gildi tilskipun um meðferð opinberra mála frá 1796 og önnur um meðferð einkamála frá 1832. Gefur að skilja, að svo gamlar réttarfarsreglur eru nú um margt orðnar á eftir tímanum, og að margar og mikilsverðar breyt. hafa orðið í þessum efnum með öðrum þjóðum á þessu tímabili. Að því er einkamálin snertir, þá eru þau hér hjá okkur enn í dag miðuð við skriflega málafærslu, og er sjálfsforræði aðilja málunum þannig ótakmarkað, þar til þau eru tekin til dóms, því að dómaranum gefst ekki tækifæri til að fylgjast með í þeim fyrr, en verður síðan að dæma nákvæmlega eftir hinum skriflegu gögnum. „Quod non est in actis, non est in mundo“. Annarsstaðar gilda víða hinar sömu reglur um meðferð einkamála sem um meðferð opinberra mála, þannig að dómararnir eru látnir fylgjast með þeim frá rótum, frá því fyrsta til hins síðasta og halda yfirheyrslur þeim eins og opinberum málum. Fá dómararnir á hann hátt nákvæma persónulega þekkingu á málunum undir meðferð þeirra, og má nærri geta, að meiri trygging er þessu fyrirkomulagi fyrir því, að sannleikurinn komi í ljós, heldur en þegar eftir á er dæmt eftir skriflegum málflutningi misjafnlega hlutvandra málaflutningsmanna. — þegar til dómaskipunarinnar kemur, verður hið sama uppi á teningnum. Flestir þeirra, sem mál fara, verða kostnaðarins vegna að láta sér nægja undirdómana, og er þó fjarri því, að fullt réttaröryggi sé þeim úrslitum. Á þeim stöðum, þar sem flestir dómar ganga málum manna, eru dómararnir jafnvel svo störfum hlaðnir, að dómarastarfið verður hjá þeim sem hvert annað hjáverk, og almennt má segja, að dómurunum sé íþyngt með annarlegum störfum svo mjög, umboðsstörfum o. fl., að þeim er ókleift með öllu að vanda dóma sína svo sem nauðsynlegt er. Þannig hafa dómarar okkar yfirleitt ekki aðstöðu til að kynna sér eldri dóma í samkynja málum, sem þó er nauðsynlegt fyrir hvern dómara, og ekki sízt fyrir íslenzka dómara, sem flesta skortir auk þess alla æfingu að kveða upp dóma. Ef við Íslendingar því eigum að ná fullu öryggi réttarfarsmálum, svo að jafnframt sé ekki of kostnaðarsamt öllum almenningi, verðum við að koma á miðstigum landsfjórðungunum, með því að taka upp aftur skipulag fjórðungsdómanna, en allt er þetta vandasamt og mikið mál, og þarf um það ýtarlegar rannsóknir á löggjöf annara þjóða þessum efnum, auk hinnar sjálfsögðu rannsóknar á aðstöðunni innanlands, en þar sem enn ekki einu sinni hefir verið hafizt handa um byrjun slíkrar rannsóknar, er þess ekki að vænta, að komið verði á breyttu og batnandi skipulagi um þessi mál öll nú á næstunni.
Það verður að viðurkenna, að með lögunum um hæstarétt frá 1919 var að vísu stigið spor framfaraátt, en þau lög voru sama markinu brennd sem flest okkar lög önnur, að eingöngu var leitað um þau fyrirmyndar til sambandsþjóðarinnar. A. m. k. verður það ekki séð af frv. til þeirra laga, né á lögunum sjálfum, að leitað hafi verið fyrirmynda úr reynslu og löggjöf annara þjóða en Dana einna. Tilgangurinn með fimmtardómsfrv. er nú fyrst og fremst sá að reyna að leiða inn okkar íslenzku dómskapalöggjöf það, sem nýtilegt hefir reynzt samskonar löggjöf annara menningarþjóða, og er það álit meiri hl. allshn., að höfuðumbæturnar í þessum efnum, sem frv. felur sér, séu fólgnar í þessum þrem atriðum aðallega:
Í fyrsta lagi fjölgun dómaranna í dómnum. Í öðru lagi því, að tekin er upp munnleg atkvgr. dómaranna stað skriflegrar nú. Og því í þriðja lagi ákvæðinu um skyldufélagsskap málafærslumannanna við dóminn.
Skal ég nú gera nokkra frekari grein fyrir þessum atriðum.
Um fyrsta atriðið munu allir sammála, að þar sé um miklar umbætur að ræða frá því skipulagi, sem nú er, en margir mundu hinsvegar fremur hafa kosið, að hinum föstu dómurum réttarins hefði verið fjölgað upp í 5, en það er hvorttveggja, að þetta hefði orðið allmiklu dýrara en að taka prófessora lagadeildar inn í dóminn, þegar á þarf að halda, eins og frv. gerir ráð fyrir, enda er meiri trygging fyrir því með þessu móti, að dómurinn sé vel skipaður vandasömum málum, sem til hans er skotið. Eru allar líkur til þess, að við lagadeild háskólans séu á hverjum tíma starfandi færustu og lærðustu lögfræðingar landsins, og þó að það sé að vísu rétt, að fræðimaður í lögum þarf ekki endilega að vera góður dómari, mælir þó allt með því, að þetta fari að öllum jafnaði nokkuð saman, enda mun reglan sú, að góður dómari sé ekki síður fræðimaður sínu fagi, þó að undantekningar séu frá þeirri reglu sem öllum reglum öðrum. Og tilbreytni er þetta óneitanlega fyrir prófessorana við og við að gegna dómarastörfum, og ætti a. m. k. alltaf að vera til bóta frá því, sem nú er um þetta.
Þá getur það varla verið vafamál, að hin opinbera atkvgr. dómaranna um málin sé til mikilla réttarfarslegra bóta, auk þess sem þetta hefir mikilsverða fræðilega þýðingu. Er það mjög mikilsvert fyrir þá, sem vilja kynna sér lögfræðileg málefni, að geta þannig fengið forsendur fyrir dómi frá fleiri en einu sjónarmiði, og má enda kenna mönnum að hugsa lögfræðilega rétt, en einkum ber þó hér að leggja áherzluna á það, að með hinni opinberu atkvgr. dómaranna er fengin trygging fyrir betri úrslitum mála, því að þótt dómurunum sé nú að lögum leyfilegt að bóka ágreiningsatkv., hafa þeir ekki notað sér það, eins og vel er skiljanlegt (EA: Jú, jú). Ég ætla, að ekki verði færð til mörg slík dæmi, þó að einhver kunni e. t. v. að vera, og það er a. m. k. víst, að dómararnir nota sér iðulega, að þeir geta skotið sér undan því að láta birta ágreiningsatriði. Minnist ég þessa um eitt mál, sem á á tíma var mikið hitamál og vakti athygli meðal alls almennings, þó að ekki hirði ég um að nefna það frekar hér að svo stöddu. Einn dómarinn hæstarétti lýsti ágreiningi um málið við hina dómarana, en hann lét ekki bóka ágreiningatkvæði sitt, og hefði þó verið mikilsvert að heyra rökstuðning þessa dómara, því vöntun birtingarinnar gaf tilefni til margra mismunandi ágizkana. — Hin opinbera atkvgr. hefir verið tekin upp Noregi og gefizt þar mjög vel, enda vilja Norðmenn með engu móti frá henni snúa, og hér virðist svo sem menn séu að verða sammála um, að rétt sé að leiða hana lög hér einnig. A. m. k. verður ekki fundið annað en að hv. frsm. minni hl. sé því samþykkur fyrir sitt leyti, og hjá flokksbræðrum hans hefir ekki heldur orðið annars vart enn sem komið er, hvað svo sem síðar verður, því að mótstaðan gegn þessu frv., fyrst þegar það kom fram hér þinginu, var að vísu meðfram reist á andmælum gegn hinni opinberu atkvgr.
Að því er þriðja og síðasta atriðið snertir, skyldufélagsskap málaflutningsmannanna, geri ég mér góðar vonir um góðan árangur vegna þess, að því leyti sem með slíkum félagsskap verður hægt að fylgja fram strangari kröfum um siðferðilega framkomu málaflutningsmanna. Minni hl. n. hefir borið fram nokkrar brtt. við þennan kafla frv., og fer ein þeirra þá att, að stjórn málaflutningsmannafél. úrskurði ekki endanlega um malflutningslaunin, ef ágreiningur kemur upp milli aðilja og málaflutningsmanns hans, eins og frv. gerir ráð fyrir, heldur skuli stjórn félagsins aðeins láta uppi álit sitt um þessa hluti. Verður því þó varla á móti mælt, að nauðsynlegt er, að félagsskapur málaflutningsmanna geti tekið fram fyrir hendur meðlima sinna um ósanngjarnar kröfur, sem eru stéttinni til vanvirðu og jafnvel tjóns. Ég þekki þannig eitt dæmi þess, að málaflutningsmaður tók 25 þús. kr. í ómakslaun fyrir að flytja mál eitt, og þótti málsaðilja þetta ósanngjarnt, sem von var, leitaði sér upplýsinga um slík málaflutningslaun með öðrum þjóðum, sem allar hnigu að því, að svo há þóknun mundi hvergi tíðkast nema hér á Íslandi, en er þessi maður, sem reyndar var erlendur, vildi fái rétting hlutar síns um þetta, fékk hann hana enga, því málaflutningsmaðurinn dró þóknunina frá dómupphæðinni, sem hann innheimti. Í tilfellum sem þessu er nauðsynlegt, að slíkur félagsskapur málaflutningsmanna sem frv. gerir ráð fyrir geti skorizt leikinn um ákvörðun sæmilegrar málflutningsþóknunar, og sé ég mér af þessum ástæðum ekki fært að greiða þessari brtt. minni hl. atkv.
Að því er snertir afstöðu minni hl. almennt til þess máls, þá er hann yfirleitt sammála meiri hl. um það, að frv. í öllum höfuðdráttum sé til bóta frá því, sem nú er, en skilur þó á við meiri hl. að því leyti sem minni hl. gerir það að skilyrði fyrir fylgd sinni við frv., að hann fái samþ. við það 2 brtt., og er önnur þess efnis, að ákvæði frv. um niðurlagningu hæstaréttar falli burt, en hin gengur í þá att, að ákvæði núg. laga um dómaraprófið verði fellt inn frv. Hvað fyrra atriðið snertir, þá get ég ekki annað séð en að þar sé um hreint formsatriði að ræða, því að ég fæ alls ekki fallizt á þá röksemd, að Alþingi sé með þessu að gefa vont fordæmi og sé enda ekki, hver hætta er því fólgin, þó að Alþingi skapi sjálfu sér fordæmi, eitt eða annað, löggjafarmálum yfirleitt, því að ekki mega aðrir en Alþingi hagnýta sér slík fordæmi, og Alþingi er hinsvegar ekki bundið við verandi ástand einu eða öðru, en getur eftir vild sinni gert allar breytingar hverju efni sem er, ef slíkar breyt. aðeins koma ekki bág við stjskr. Þar sem ég hinsvegar tel þetta ákvæði frv. fremur til bóta, get ég ekki greitt atkv. með þessari brtt. minni hl. Vegna þess flokks, sem hv. frsm. minni hl. heyrir til, þarf maður að vísu ekki að furða sig á, þótt hann leggist á móti niðurfellingu prófraunarinnar, því að eftir fyrri meðferð þessa máls hér í þinginu virðist sem slíkt hafi beinlínis verið flokkssamþykkt innan Sjálfstæðisflokksins að leggjast á móti þessu, en mig stórfurðar hinsvegar á því, að svo mikill og góður lagamaður sem hv. frsm. minni hl. er, skuli þó vilja fórna fyrir þetta eina atriði öllum öðrum umbótabreytingum, sem frv. felast og hann enda sjálfur hefir lýst sig finna því. — Þegar frv. árið 1930 kom fyrir Alþingi, var leitað álits hæstaréttardómaranna um það, og bar álit þeirra frekar svip af því, að æstir stjórnmalamenn hefðu samið það heldur en að það væri eftir dómara æðsta dómstóli landsins. Dómararnir kváðu m. a. svo að orði, að samskonar ákvæði (og dómaraprófið) mundi vera lögmætt í flestum nýlegum lögum um úrslitadómstigið utan einveldisstjórnarlanda. Hygg ég, að ekki hafi legið nein rannsókn á löggjöf annara þjóða á bak við þessa fullyrðingu dómaranna, og eftir upplýsingum sendiherra okkar þessum efnum, mun hliðstætt dómarapróf því, sem hér er, hvergi tíðkast nema Danmörku, og hér hefir það að vísu staðið lögum, en þó aldrei verið framkvæmt, og núv. dómarar hæstaréttar eru allir inn réttinn komnir án nokkurs slíks prófs. Í Noregi hafa áþekk ákvæði verið felld úr gildi, og er ekki vitanlegt, að þeirra hafi verið saknað af neinum. Samkv. áðurnefndri athugun sendiherra okkar eru engin slík ákvæði lögum Englandi né Þýzkalandi. Í Þýzkalandi eru dómarar ríkisréttarins, sem er æðsti dómstóll þýzku þjóðarinnar. hvert á móti skipaðir eftir till. ríkisráðsins, sem er nokkurskonar efri málstofa þar í landi, skipuð fulltrúum þýzku sambandsríkjanna svipað og er Ameríku. Og Svíþjóð og Finnlandi þekkjast ekki heldur nein slík ákvæði. — Þeir, sem leggja áherzluna á að halda dómaraprófinu, telja, að með því sé betur séð fyrir sjálfstæði dómsvaldsins. Get ég með alls engu móti fallizt á, að þetta sé rétt. Ef hinsvegar ætti að sjá fyrir þessu þeim skilningi, að dómararnir réðu því, hverjir setjast dóminn, ætti að fá þeim veitingarvaldið hendur með öllu eða uppástungurétt, sem ráðh. ekki aðeins væri heimilt að fara eftir, heldur beinlínis skylt að fara eftir, því að hér er aðeins um neikvætt hindrunarvald að ræða, auk þess sem það verður jafnan undir vilja veitingarvaldsins komið, hverjir ganga undir dómaraprófið, því að varla munu aðrir verða til að ganga undir það en þeir, sem fyrirfram vita, að þeir muni fá embætti í dómnum. Dómurinn sjálfur getur ekki kvatt neina til að þreyta þessa raun. Þar sem hér er því ekki um neitt jákvætt vald fyrir dómstólinn að ræða, fæ ég ekki séð, að þetta auki neitt á sjálfstæði réttarins, nema ef síður sé, því að þetta getur beint orðið til þess jafnvel að skapa pólitískan styr um dómstólinn. Ef dómararnir eru sammála veitingarvaldinu slíkum tilfellum, fellur allt ljúfa löð, og þá þarf enda ekkert slíkt próf, en ef dómararnir hinsvegar fella mann við prófið, sem veitingarvaldið hefir innstillt til þess, má búast við stríði milli þessara afla, og hlýtur það stríð vegna eðli hlutarins að enda með ósigri dómaranna. Dómaraprófið er ekki skilyrði fyrir því, að setja megi mann réttinn, heldur aðeins fyrir því, að þangað megi skipa mann, og það getur varla leikið vafi á því, að svo pólitískur og harðsnúinn getur sá ráðh. verið, sem þannig kæmist andstöðu við dómara réttarins, að hann hikaði ekki við að beita þessu valdi sínu, þegar dómararnir hefðu fellt þann mann frá embætti réttinum við slíkt próf, sem ráðh. vildi þangað fá og teldi hæfan stöðuna, og þegar svo fer, má búast við, að sá flokkurinn, sem með dómurunum stæði slíkum tilfellum, mundi taka upp hanzkann fyrir þá, og slíkt mundi skapa þær æsingar um réttinn, að ég hefði fremur ætlað, að flokkur hv. frsm. vildi stýra hjá þessari hættu, vegna allra þeirra skrifa, sem frá flokki hans hafa komið út af því, að flokkurinn hefir talið, að aðrir hafi verið að skapa óróa um þessa réttarstofnun með því að ráðast á gerðir hennar. Fæ ég af heim ástæðum, sem ég nú hefi fært fram, með engu móti sé, að dómaraprófið sé til bóta, né að það réttlætist af neinu, og held hvert á móti, að það sé fremur til skaða en hollustu fyrir dómstólinn sjálfan.
Ég hefi þá drepið á nokkrar hinar helztu brtt. minni hl., og af þeim rökum, sem ég hefi fært fram, leggjum við meiri hl. til, að 1. og 2. brtt. minni hl. á þskj. 127 verði felldar, sömuleiðis c-liður 3. brtt. á sama þskj. og 8.–10. brtt. Um aðrar brtt. minni hl. skal ég geta þess, að ég álit, að a-liður 3. brtt. sé algerlega óþarfur. Verður ekki séð, að nein nauðsyn sé til þess að skipa svo til; að dómarar fimmtardóms, að dómnum fullskipuðum, skuli úrskurða um það, hvenær menn hafi sýnt yfirburði í lögfræði með fræðimennsku eða á annan hátt; ætti það heldur að koma undir dóm prófessora lagadeildar. B-liður, þessarar till. er sömuleiðis óþarfur, hvernig svo sem um frv. fer. — Að því er 4. brtt. snertir, get ég ekki fallizt á það, að hún sé til bóta, því það er yfirleitt sjálfgefið, að ráðh. hlýtur að svipta þann málafærslumann réttindum til málafærslu, sem fimmtardómur hefir þrisvar dæmt til sektar fyrir óleyfilega málfærslu, nema hann sannreyni, að maðurinn sé beittur hlutdrægni eða ofsókn. — Á 5. brtt. hefi ég áður drepið. Álít ég rétt að gera það að skyldu stjórnar málaflutningsmannafél. að ákveða þóknun til málaflutningsmanns, ef deilur koma upp um slíkt, og legg því til, að þessi brtt. verði felld. Um 6. brtt. get ég gengið inn á það, að hún sé til bóta, og sömuleiðis 7. brtt., a. og b. Er það á einhverjum misskilningi byggt, að atkv. dómaranna geti orðið jöfn, þar sem hér er um oddadóm að ræða, og hvað meðaltalsregluna snertir, þá get ég fallizt á, að hún sé felld niður. Er engin þörf á að lögfesta slíkt, því að dómararnir fara um þetta að sjálfsögðu eftir almennum réttarreglum.
Þá kem ég að þeim brtt. okkar meirihlutamanna, sem við frsm. minni hl. erum sammála um.
Er þá fyrst við 5. gr. sú brtt. að orðið „þýðingarmikil“ bætist inn skilgreiningu þeirra mála, sem dæmd skulu af 5 dómendum. Í frvgr. er eingöngu talað um margbrotin mál, umfangsmikil eða vandasöm, en vel getur verið, að mál sé þýðingarmikið, þ. e. snerti eitthvert grundvallaratriði eða princip eða hafi almenna þýðingu fyrir alþjóð manna eða stéttir, þótt málið sé eigi margbrotið. Virðist í slíkum tilfellum réttara, að dómur sé fullskipaður.
Með 2. brtt., við 7. gr., er ákveðið, að kennarar lagadeildar velji úr sínum hópi þann, sem taka skal sæti dómnum.
Brtt. 3 á er aðeins leiðrétting. — Við 8. gr. er sú brtt., að aftan við 3. tölul. bætist: er þeir fá veitingu fyrir dómaraembætti. Þessi brtt. er til orðin vegna þess skilnings, sem fram kom við 1. umr., að samkv. frv. mættu dómarar ekki gegna embætti sínu lengur en til sextugs. En það var aldrei tilætlunin, heldur hitt, að inn í réttinn kæmu ekki eldri menn en sextugir, er svo gætu farið þaðan með fullum launum eftir örfárra ára starf, þegar þeir yrðu 65 ára. — Svo kemur það atriði, er ég gat um áðan, og á að koma stað dómararaunar hv. minni hl. á þá leið, að leita skal álits aðaldómara fimmtardóms áður en aðaldómaraembætti er veitt.
Þá er það 4. brtt., við 17. gr. Samkv. henni verður 1. eink. við embættispróf yfirleitt skilyrði fyrir málflutningsleyfi við fimmtardóm. Það sama skilyrði er og dómurum sett brtt. á þskj. 121. En þó er látin opin leið fyrir 2. eink. menn til starfa við dóminn, ef sérstakar ástæður koma til, þ. e. þegar umsækjandi hefir sýnt sérstaka yfirburði með fræðimennsku eða á annan hátt. — 5. brtt. er við 52. gr. N. fann ekki ástæðu til að veita forseta fimmtardóms heimild til á eigin spýtur að leyfa óviðkomandi mönnum að vera við ráðagerðir dómsins. — Með b-lið 5. brtt. og 6. brtt. er heim ákvæðum frv. breytt, er láta það fara eftir hlutkesti, hver dómara greiði fyrstur dómsatkvæði, og það lagt á vald réttarins sjálfs að ákveða það hvert skipti. Svo getur einatt staðið á, að einhver einstakur dómari sé sérstaklega kunnur málavöxtum og sérstaklega fær þeirri grein, sem um er að ræða, en til slíks er ekkert tillit tekið sé hlutkesti beitt. — 7. brtt. er aðeins leiðrétting, til þess gerð að samræma ákvæði frv. hvort við annað. — Loks teljum við heppilegra, að rétturinn hefji starfsemi sína að loknu sumarleyfi hæstaréttar, en ekki við áramót.
Þá er það brtt. hv. þm. Ísaf. á þskj. 146, um það, að aukadómarar fimmtardóms vinni kauplaust. Ég bjóst við því, að hann mundi láta sér nægja að vísa til frv., sem hann hefir borið hér fram, um að ríkið greiddi yfirleitt ekki aukaþóknun fyrir aukaverk, er embættismenn taka að sér. Annars skal ég ekki ræða þessa brtt.; hv. flm. hefir ekki ennþá talað fyrir henni, né heldur á móti henni, sem reyndar allt eins vel má gera ráð fyrir, ef hann ætlar að vera samræmi við skoðanir sónar á þessu efni, sem fram hafa komið í öðru máli nú rétt nýlega. Annars þykir mér rétt að láta þá hv. flm. og hv. frsm. minni hl. deila eina um þetta.
Eitt atriði vil ég minnast hér á, sem n. hefir ekki komið fram með brtt. um. 9. gr. frv. eru talin skilyrði þess, að fimmtardómari megi taka þátt meðferð máls. Í 6. lið er dómara með alm. orðum bannað að taka þátt málsmeðferð „ef að öðru leyti er svo ástatt, að telja megi hætt við, að hann líti eigi óhlutdrægt á málavexti“. Ég held, að það væri ástæða til að orða þetta nákvæmar. Það hefir komið fyrir í hæstarétti, að dómarar þar hafa dæmt í máli alúðarvina sinna og skólabræðra.
Slíkt er ákaflega óviðkunnanlegt og gefur mikla ástæðu til tortryggni garð réttarins. Ég hygg, að það mundi reynast heppilegt að orða sérstöku dómaraskilyrðin skýrara, svo slíkt geti ekki komið fyrir.