15.03.1932
Neðri deild: 29. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 685 í C-deild Alþingistíðinda. (3626)
15. mál, fimmtardómur
Frsm. minni hl. (Einar Arnórsson):
Hv. frsm. meiri hl. hefir ekki með ræðu sinni gefið mér tilefni til mikilla aths. Hann vildi gera litið úr þeim breyt., sem orðið hefðu á dómaskipun ríkisins með hæstaréttarlögunum frá 1919. Um það er þýðingarlaust að deila. Höfuðbreyt. þá var sú, auk þess að æðsti dómstóllinn var fluttur inn landið, að dómstigin urðu þá 2 staðinn fyrir 3 áður, og að málflutningur varð munnlegur og opinber í staðinn fyrir skriflegan áður. Ég held, að fæstir, sem hafa kunnugleika á þessum málum, geti fallizt á það með mér, að það hafi verið meiri breyt. en sú, er nú á að lögleiða, að opinber atkvgr. á að koma í staðinn fyrir leynilega atkvgr. í hæstarétti. En þessi ágreiningur skiptir engu máli um úrslit málsins, og læt ég mig einu gilda, hvaða skoðanir aðrir hafa um þetta atriði.
Hv. þm. talaði um það, að ég hefði horfið frá einu atriði áliti prófessora lagadeildar 1930 um þetta mál, en það er ákvæðið um hlutkesti milli prófessoranna til þess að taka þátt dómstörfum í fimmtardómi. Þetta er rétt. Og ég skammast mín ekkert fyrir að kannast við það. Í framkvæmdinni hefi ég séð, að hlutkesti er ekki bezta aðferðin til að velja dómara hvert sinn, heldur sé betra að velja hann með samkomulagi milli prófessoranna, því þá er hægt að velja hann, sem er bezt hæfur til þess að dæma í hverju einstöku máli.
Um það atriði, hvort ætla megi, að rétturinn verði ópólitískari með því fyrirkomulagi, sem ég mæli með um skipun hans, eða hinu, er hv. þm. heldur fram, er að líkindum óþarft að ræða frekar. Það er gefið, að hann sannfærir ekki mig og ég líklega ekki hann því efni. En sé því ekki ástæðu til að endurtaka það, sem ég hefi sagt um það atriði.
Hv. þm. spurði að því, eftir hverju ætti að fara, þegar dómarar dæmda um prófraun þeirra, er sæktu inn réttinn. Ég geri ráð fyrir, að þá verði farið bæði eftir formshlið og efnishlið prófraunarinnar. Það hefir verið á valdi hæstaréttar að úrskurða um hæstaréttarmálaflutningsmenn, hvort þeir væru hæfir eða ekki, og hefir réttinum engin skotaskuld orðið úr því. (BJ: Það er nú ekki eins ábyrgðarmikið starf). Það getur nú verið álitamál. Það er alkunnugt, að alltaf nálega er mikið undir málflutningnum komið um úrslit mála. Góður málstaður getur oft farið illa, ef hann er illa fluttur, og slæmur málstaður farið betur en verðugt er, ef hann er vel fram borinn fyrir dómstólnum. Þetta veit ég, að hv. þm. skilur eins vel og ég. Það getur vel komið fyrir, að sá, sem þreytir dómraun máli, líti öðruvísi á sum atriði á efnishlið málsins heldur en dómararnir; en slíkt á ekki að verða til þess að fella keppanda frá prófi. Hann getur engu að síður sýnt þroskaðan skilning á málinu að áliti dómaranna, þó þeir fallist ekki á niðurstöður hans. Mér dytti t. d. ekki hug að kalla hv. þm. Barð. óhæfan þm., þó hann sé mér ekki sammála ýmsum málum. Ég get virt hans rök, þó ég fallist ekki á þau, og þannig hlýtur það að vera með dómarana. Þegar tveir málaflutningsmenn flytja mál hvor á móti öðrum, hefir venjulega aðallega annar þeirra rétt fyrir sér að áliti dómaranna, en þeim kemur samt ekki til hugar að svipta þann rétti, sem hélt fram lakari málstað, því málflutningurinn gat verið prýðilegur þrátt fyrir málstaðinn.
Það er ekki hægt fyrirfram að gefa ákveðna reglu um það, eftir hverju farið sé við dómarapróf, því fjölda margt getur komið til álíta. Þó er það minna vandamál heldur en fyrir veitingarvaldið að velja milli margra umsækjenda. Samt sem áður þykir hv. frsm. meiri hl. ekki athugavert að láta pólitískan ráðherra skera úr slíkum tilfellum. Um setningu dómara hæstarétt, þegar dómarasæti losnar, er ákveðið gildandi l., að prófessorar lagadeildar háskólans taki sætið.
Það er rétt hjá hv. þm., að ýmsum löndum er lögskipað, að málaflutningsmenn hafi félagsskap með sér, t. d. er það svo Danmörku. En ég veit, að mjög er misjafnt álit manna þar landi á því, hvort þau lagafyrirmæli eru til góðs eða ills.
Ég sé svo ekki ástæðu til að deila frekar við hv. frsm. meiri hl. um einstök atriði, sem okkur ber á milli.
Hv. þm. Ísaf. fór nú loks að tala fyrir brtt. sinni. það var nú hvorttveggja, að ræða hans var stutt, enda þarf ég ekki öðru að svara en því, að brtt. hans er algerlega óþörf, þessi hv. þm. hefir nú borið fram hér hv. d. víðtækt frv. um sama efni, þar sem hann ætlast til, að bundið verði með lögum, að fastir embættismenn ríkisins fái enga borgun fyrir aukastörf. Hv. d. gefst því tækifæri til þess að svara þessu við atkvgr. um frv. hans, og ætti hann því að taka brtt. aftur. Ef hann trúir því, að frv. nái hylli þessarar hv. d. þá leiðir af því, að prófessorar lagadeildar háskólans falla undir ákvæði laganna. En ef rökræða á um þetta mál sérstaklega við hv. þm., þá teldi ég betra, að hv. frsm. meiri hl. gerði það. Mér er málið skylt og mætti því líta svo á, að og væri ekki óhlutdrægur dómari þessu efni. En eins og ég hefi áður sagt, tel ég brtt. hv. þm. Ísaf. óþarfa, af því að hann hefir þegar borið fram víðtækt frv. um sama efni.