31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í C-deild Alþingistíðinda. (3684)
15. mál, fimmtardómur
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Allt það fjaðrafok, sem blöð og þingmenn Íhaldsins hafa reynt að gera út af þessu máli, er ekki annað en áframhald af fjandskap þess gegn því máli, sem um var að ræða. Atkvgr. fór fram á sama hátt og venjulega. þannig á reynt var að fá alla til að greiða atkv. Þetta er venjan, þótt ekki komi öll atkv. alltaf fram. Tilraunir hv. 1. landsk. til að breyta fundabókinni eftir að búið er að samþ. hana er eðlilegu framhaldi af því, sem hann á einu af sínum fyrstu þingum gerði, er hann bókaði í leyfisleysi á milli funda fundargerðina það, sem hann vildi þar vera láta. Hv. l. þm. Reykv: tók þá karlmannlega í lurginn á honum, ef ég man rétt. Held ég, að væri réttara fyrir hv. 1. landsk. að halda sínum upptekna hætti, að bóka leyfisleysi, en að ætla sér að fara að innleiða hér þá venju að færa inn í fundarbókina mótmæli, eftir að búið er að samþ. hana. Vona ég, að hv. 1. landsk. líti á þetta sem góðgjarnlega bendingu til sín, þar sem ég aðeins ráðlegg honum að halda uppteknum hætti bernskuára sinna á þingi.