31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í C-deild Alþingistíðinda. (3686)

15. mál, fimmtardómur

Magnús Torfason:

Ég neita því, að heimilt sé að taka við slíkri aths. fundarbókina. Það, sem fyrir kom fyrir nokkrum árum og tveir bæjarfulltrúar stóðu fyrir, var ættað annarsstaðar frá. Svo var ákveðið í þingsköpum bæjarstjórna, eða svo var það a. m. k. á Ísafirði, að fulltrúar gætu fengið bókaðar stuttar aths., ef þeir væru óánægðir með bókunina. Þetta var sanngjarnt og eðlilegt, þar sem engar umr. eru bókaðar og menn geta því ekki komið fram aths. sínum á annan hatt. hér geta allar slíkar aths. komið fram Alþt., og því er gersamlega ástæðulaust að færa þær inn í gerðabókina.