02.05.1932
Efri deild: 65. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í C-deild Alþingistíðinda. (3748)
15. mál, fimmtardómur
Hv. 4. landsk. var að tala um þá brtt. að fella niður orðin félagsskap málaflutningsmanna. Hann kvað engar kvartanir hafa borizt út af málaflutningsmannafél. hér. Ég veit nú ekki, hvort þetta er rétt. Það kom fram Nd., og hefir , ekki verið mótmælt, að einn málaflm. hefði tekið 25 þús. kr. fyrir flutning á einu máli fyrir rétti. Sá, sem málið var flutt fyrir, þóttist verða hart úti, en fékk enga rétting mála sinna, af því að málaflm. þessi hélt peningunum eftir. Þetta atvik hefir nú komið fyrir, og ég ber það traust til málaflm. við hæstarétt, að ef þeir hafa með sér félagsskap, sem lítur eftir slíku sem þessu, hefði hlutur eins og þessi ekki getað komið fyrir og gæti ekki komið fyrir. Ég veit, að stj. slíks félags myndi gæta þess, að ekki þyrfti að falla blettur á íslenzka málaflutningsmannastétt utanlands né innan. Þá kem ég að brtt. hv. 4. landsk. um að breyta „getur“ í „skal“. Ég vék að þessu fyrradag og komst inn á hæstaréttardóm um brot á lögum um bann gegn botnvörpuveiði í landhelgi. Ég þóttist þá sýna fram á, að orðið „skal“ er allteygjanlegt lagamáli. Í 1. gr. laganna stendur:
„Í landhelgi við Ísland skulu bannaðar vera fiskiveiðar með botnvörpum“, en í 5 gr.: „Skipstjóri, er gerir sig sekan í ítrekuðu broti gegn 1. gr., skal — — sæta fangelsi“.
Hér segir með ákveðnum orðum, að skipstjóri skuli dæma fangelsi við ítrekað brot, en það var ekki gert eins og ég gat um. Af þessu virðist, að þeir, sem eru ólöglærðir, geti aldrei verið vissir um, hvernig túlka skuli orðið „skal“, þar sem það virðst hafa margar merkingar. Ég er ekki skólagenginn, þess vegna legg ég þann skilning orðin, sem þau hafa í mæltu máli. Og okkur, sem lítið höfum lært af þessa heims vísindum nema boðorðin, myndi finnast það breyta talsverðu, ef alstaðar væri sett „getur“ staðinn fyrir „skal“, þó aldrei væri nema sjöunda boðorðinu. Hv. 4. landsk. sagði, að með þessu væri ekki verið að takmarka vald ráðherra á nokkurn hátt. Sé svo ekki, er brtt. tilgangslaus. En af því, að ég felst ekki á, að „getur“ og „skal“ sé sama, er ég andvígur brtt.