06.06.1932
Sameinað þing: 16. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í D-deild Alþingistíðinda. (3765)
851. mál, verzlunar- og siglingasamningar við Noreg
Jón Þorláksson:
Ég vil aðeins til viðbótar því, sem hv. frsm. utanríkismálanefndar sagði, taka það fram út af orðalagi till., þar sem skorað er á ríkisstj. að taka til athugunar, hvort ekki sé rétt að segja upp gildandi verzlunar- og siglingasamningum við Noreg, að stj. þarf ekki heimild frá þinginu til að framkvæma þessa uppsögn, því það er svo ákveðið í stjórnarskránni, að konungur geri samninga við erlend ríki. Að því leyti, sem samningar við erl. ríki horfa ekki til breytinga á högum landsins, eru þeir því gerðir án þess að samþykki Alþingis komi til. Það felst því ekki í orðalagi till., að þetta mál þurfi að koma fyrir þingið áður en uppsögnin verði framkvæmd, ef til hennar kemur, heldur er aðeins með þessu farið fram á, að þingið láti koma fram ábendingu til stjórnarinnar henni til stuðnings að því er snertir uppsögn samningsins, svo framarlega sem til slíks þarf að taka.