07.05.1932
Efri deild: 69. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 797 í C-deild Alþingistíðinda. (3773)
15. mál, fimmtardómur
Jón Þorláksson:
Ég hefi leyft mér að bera hér fram tvær brtt. á þskj. 623 við þetta frv., en þótt brtt. séu bæði fáar og stuttar, má ekki skilja það svo, að ég sé ánægður með frv. að öðru leyti og telji ekki horf frekari breyt. á því. En ég vil við þessa umr., sem e. t. v. verður hin síðasta hér deildinni, gera tilraun til að nema burtu það hneykslanlega ákvæði í upphafi 2. gr., að hæstiréttur, æðsti dómstóll landsins, skuli lagður niður. Með þessu er gefið slíkt fordæmi, að ég skil ekkert í þeim mönnum, sem vilja koma á þessari lagasetningu, að þeir skuli vilja innleiða fordæmi fyrir því, að hvenær sem er megi leggja æðsta dómstól landins niður með lögum. Ef það fordæmi er gefið, að leggja megi þennan dómstól niður, ef nægilega áhrifamiklum manni mislíkar við hann, verður það áreiðanlega ekki síðasta skiptið, sem slíkt verður gert. Eftirleikurinn er óvandari, en þó að einhverjir, sem eru mér nærstaddir skoðunum, gætu fengið þetta vopn í hendur, þá lít ég svo á, að æðsti dómstóll landsins eigi að vera verndaður fyrir slíkum tiltektum. Meðhaldsmenn frv. hafa slegið úr og í, er minnzt hefir verið á þetta atriði og hafa viljað afsaka sig með því, að samkvæmt ákvæðum frv. að öðru leyti sé ekki verið að leggja æðsta dómstól landsins niður. Ég get ekki fallizt á þetta. Það er skýrt tekið fram 2. gr., að hæstiréttur skuli lagður niður, og þótt núv. dómarar eigi að taka sæti fimmtardómi, ef þeir óska þess, er það aðeins bráðabirgðaákvæði, sem bundið er við þá persónulega og getur fallið burt án þess að efni frv. raskist að nokkru leyti.
Annarsvegar hefir þetta verið varið af hæstv. dómsmrh. með því, að æðsti dómstóll landsins hafi verið lagður niður áður. Honum hefir verið bent á, að þetta er alger misskilningur, enda hlýtur hann að vita það. Æðsti dómstóllinn hefir aldrei verið lagður niður, heldur var æðsta dómsvaldið tekið af erlendum dómi, sem hélt áfram að starfa sínu heimalandi, og flutt hingað heim, en um leið var miðstigið í íslenzkum dómstólum lagt niður (yfirréttur) af því að réttara þótti að hafa dómsstigin aðeins tvö. Æðsti dómstóll landsins hefir því aldrei verið lagður niður með lagaboði fyrr en ef nú á að gera það.
Brtt. mín er á þá leið, að fimmtardómur taki við starfi hæstaréttar. Með þessu orðalagi er það lagt á vald lögskýrenda, hvort hæstiréttur sé lagður niður við stofnun fimmtardóms, eða hvort aðeins sé um nafnbreyt. að ræða. Um þessa brtt. finnst mér því, að allir ættu að geta orðið sammála.
Ég vil mótmæla því, sem hæstv. dómsmrh. sagði við 2. umr. um skoðun manna á nafni dómsins. Hann kvað nú alla vera orðna sammála um, að það væri sjálfsagt, að æðsti dómstóllinn héti þessu nafni. Hann hefir sjálfsagt dregið þessa ályktun af því, að nú er ekki eins mikil áherzla lögð á það að fá nafni dómsins breytt eins og áður, en þó hefir legið fyrir brtt. um það. En mér er óhætt að fullyrða, að allur þorri manna telur fimmtardómsnafnið klaufalegt og illa valið. Þetta sést ljóslega á því, að í 1. gr. frv. er látin fylgja þýðing á erlendum málum á nafni dómsins, svo að augljóst sé, að hér sé um æðsta dómstól landsins að ræða, sem annars væri ómögulegt að sjá. Hitt er það, að nafn er ávallt nafn og því skiptir litlu, hvert það er í samanburði við innihald frv.
Þá á ég brtt. við 63. gr. um að orðin „ef þeir óska þess“, falli burt. Þetta skiptir e. t. v. ekki miklu máli, en ég álit ekki eiga við, að það sé undir heim mönnum komið, sem hér eiga hlut að máli, hvort þeir halda áfram dómarastörfum sínum eða ekki, þar sem þeir hafa tekið að sér embætti, sem vanalegt er að skoða sem æfilangt, meðan starfskraftar leyfa. Ég álít, að ekki eigi að gefa þessum mönnum færi á að sleppa stöðu sinni og hætta að starfa, nema þeir beri fram ósk um annað. Ég álít rétt að orða þetta svo, að núv. hæstaréttardómarar taki sæti fimmtardómi, og í öllu falli á ekki að þurfa að spyrja þessa menn, hvort þeir vilji vera í dómi, sem að vísu hefir tekið nýtt nafn, en heldur áfram störfum hins fyrra dómstóls.
Ég skal játa, að búið er að sníða burt ákaflega mikið af þeim verstu ágöllum og óhæfum, sem í frv. voru í upphafi, svo að þeir, sem barizt hafa til að varðveita æðsta dómstól landsins fyrir afskiptum umboðsvaldsins, hafa unnið mikið á, jafnvel þótt frv. verði að lögum eins og það er nú. En nægilega mikið hefir þó ekki áunnizt, þar, sem frv. eru að mínum dómi ákvæði, sem eru bein afturför frá því, sem var, að því er snertir aðstöðu dómstólsins gagnvart löggjafar- og umboðsvaldi.