31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í D-deild Alþingistíðinda. (3781)
251. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Ég skal ekki fjölyrða um þessa till. Ég býst við því, enda kom það fram í umr. um þessa till. í Sþ., að tilgangurinn með þessari nefndarskipun mun ekki eingöngu sá, að spara, heldur er þetta aðeins einn þáttur í hinum venjulegu átökum milli flokkanna. Læt ég slíkt vera, en vildi hér aðeins beina þeirri fyrirspurn til hv. flm., hvort hann áliti ekki rétt, að þessari n. væri jafnframt falið að athuga ýms fyrirtæki fleiri en bein ríkisfyrirtæki eingöngu, t. d. Eimskipafélagið, sem leitar til þingsins árlega um fjárframlög til starfsemi sinnar.