31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í D-deild Alþingistíðinda. (3785)

251. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Fyrirspurn hv. 2. landsk. get ég svarað svo af hálfu stj. og stjórnarflokksins, að ekkert er því til fyrirstöðu, að þingflokkarnir hafi þau mannaskipti í n., sem þeir kunna að óska eftir, og ef heimild til slíkra mannaskipta verður ekki véfengd, þarf ekki um þetta fastara form. Ef heimildin hinsvegar verður véfengd, þyrftu slík mannaskipti sennilega að fara fram á þingfundi, og get ég fullyrt það, að ekkert verði gert af hálfu stjórnarflokksins, sem raski hlutfallinu milli fulltrúa flokkanna í n. Verði slík heimild aftur á móti ekki véfengd nú, ætti ekki að þurfa að óttast ákærur síðar af þessum hlutum.

Mér virtist hv. 1. landsk. ganga út frá því, að till. shlj. þessari, sem flutt er í Nd., kæmi líka til atkvgr., og hélt ég þó, að hv. flm. hefði verið það kunnugt áður, að stj. og stjórnarflokkurinn telur ekki þörf á að skipa 2 slíkar n., og hugði enda, að tilgangurinn með því að bera fram 2 slíkar till. væri sá einn, að athuga möguleikana til að koma slíkri till. fram í annarihvorri deildinni, og ef samkomulag næðist um samþykkt till. í annari deildinni, yrði hún tekin aftur í hinni. Mér kemur það því á óvart, að hv. 1. landsk. skuli ætlast til, að till. verði samþ. í báðum deildum, auk þess sem það er mitt álit, að 3 manna n. starfi betur en 8 manna n. Mikill mannfjöldi í slíkum n. skapar aðeins erfiðleika og tefur fyrir.

Ég get eftir atvikum sætt mig við svör flokkanna við fyrirspurnum mínum, og vil þar þakka hv. 2. landsk. fyrir skýr svör við báðum spurningum. Eins get ég þakkað hv. 1. landsk. fyrir það, að hann hefir gefið fullt svar við því, að Sjálfstæðisfl. muni aðeins hafa eitt nafn á sínum lista. Að því er hitt atriðið snertir, þá get ég tekið undir það, að ef hér á ekki að fara fram þingræðisreglum um neina hluti í framtíðinni og ekkert samstarf að vera með flokkunum um úrlausn þjóðmálanna, eins og annarsstaðar tíðkast, — að ef slíkt ástand á að skapast hér, eru ekki líkur til, að óskað verði eftir slíku samstarfi af hálfu stjórnarflokksins fremur en af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Mér er kunnugt um það, að það ber á milli í mörgu um landsreikningana og fjárl. fyrir 1930. En þar með er ekki sagt, að allt, sem á milli ber, liggi fyrir utan fjárveitingavald þingsins. Síðan ófriðurinn mikli truflaði öll fjármál, hefir þingið örðuglega getað séð fyrir það, sem verða vildi. En fjvn. hefir á tveim síðustu þingum unnið að því að lagfæra þetta. Hún hefir unnið svo rækilega að því að lagfæra þetta, að ég hygg, að í heild sinni fari útgjöld fyrir 1932 ekki fram úr áætlun fjárlaganna. Að vísu er ekki gott að fullyrða neitt nú. Það, sem er örðugast um framkvæmd fjárlaganna nú, er það, að tekjurnar bregðast. Og það er fyrirsjáanlegt, að þær munu bregðast stórlega, a. m. k. 3–4 liðir. Og það er upp í það auða bil, sem þar myndast, sem farið er fram á við þingið, að séð verði fyrir tekjuhækkun. En misjafnlega hefir verið í það tekið, og má það undarlegt heita, þar sem vitanlegt er, að fjárl. frá síðasta þingi binda svo marga hluti, sem ókleift er að breyta, þó að þingheimur vildi. Ég athugaði það í sambandi við framkvæmd gildandi fjárlaga, hvort ekki væri hægt að greiða minna af ýmsum fjárveitingum til einstaklinga eða sjálfstæðra stofnana en í fjárl. stendur, en við nánari athugun reyndist það ókleift. Ef ekki er greiddur fullur styrkur, sem fyrirtæki eða einstaklingi er ætlaður, þá mun hann geta fengið sér dæmt það, sem á vantar. Það er þannig margt, sem er bundið, og þegar búið er að binda útgjöldin með fjárl. eins og raun er á, þá er engin önnur leið til að bæta fyrirsjáanlegan tekjuhalla en að fá auknar tekjur. Og þó að allur þingheimur skilji þetta, þá hefir hann þó hvorki í orði eða atkvgr. fengizt til að viðurkenna þessa staðreynd ennþá.

Mér eru nógar yfirlýsingar hv. þm. um þau atriði, sem ég spurðist fyrir um, og óska eftir því, að þessi till. verði samþ.