12.05.1932
Neðri deild: 73. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 874 í C-deild Alþingistíðinda. (3799)

15. mál, fimmtardómur

Frsm. minni hl. (Einar Arnórsson):

Ég ætla fyrst að víkja fáeinum orðum að hv. frsm. meiri hl. allshn. og svara nokkru því, sem hann sagði viðvíkjandi 1. brtt. á þskj. 686. Hann lét svo um mælt, að ég hefði bent á, að breyt. sú um veitingu aðaldómaraembættis, er sett var inn í frv. í hv. Ed., hefði litla þýðingu. Ég held, að hv. frsm. meiri hl. fari ekki rétt með, hvernig ég útlistaði þýðingu þá, sem það ákvæði hefði. Ég skil ákvæðið svo, að það geti varla orkað tvímælis, að ráðherrafundur eigi að gera till. um, hverjum skuli veita aðaldómaraembætti, og síðan geri forsrh. till. um veitinguna til konungs. En eftir brtt. hv. meiri hl. er rétt, sem ég sagði, að aðeins er fyrirskipað, að talað sé um málið á raðherrafundi, en sá ráðh., sem með dómsmálin fer, gerir till. um veitinguna til konungs. Og ef tveir ráðh. eru ósammála dómsmrh., þá er skoðun þeirra e. t. v. að engu höfð. En tilgangur ákvæðis Ed. er sá, að forsrh. eigi að gera till. til konungs, þegar ráðh. eru ekki sammála og eftir að meiri hl. á ráðherrafundi hefir samþ., hverjum veita skuli embættið. Og það var víst líka á þá leið, sem flm. till. í hv. Ed. rökstuddi skoðun sína í aðalatriðum í umr. málsins, enda mun ýmislegt af því, sem hann mælti með till., hafa verið sama efnis og ég sagði. Ég rökstuddi till. hv. Ed. og sagði eitthvað á þá leið, að með því að setja æðsta lið dómsvaldsins á sama bekk og æðsta vald í framkvæmd og löggjöf, þá þætti mér vel fallið, að æðsti maður landsins, fosrh., framkvæmdi þetta.

Annars er mjög ólíkt þessu dæmi það, sem hv. frsm. meiri hl. nefndi, að taka af dómsmrh. náðanir afbrotamanna. Eftir minni rökfærslu þá er hér ólíku saman að jafna. Þó að við höfum mætur á afbrotamönnum, ætla ég, að þeir verði ekki settir á bekk með æðsta dómstóli landsins, þótt við viljum gera þeim vel til. Ég geri ekki heldur ráð fyrir, að neinn telji það forsrh. sérstaka virðingu, þótt honum væri falin afgreiðsla náðunarmála brotamanna, t. d. að leggja til, að bruggunarsekt sé færð úr 1000 kr. niður í 500 kr., eða að gefnir séu eftir 30 dagar af fangelsisvist eða færðir niður í 15 daga. (BJ: Þetta gæti verið stórvægilegt mál). En það verður þó varla sett á bekk með því að gera till. um veitingu embættis eða lausnar frá því við æðsta dómstól landsins. Með þessu er ég ekki að gera lítið úr embættisverkum ráðh., svo sem um náðun afbrotamanna. En eins og ég hefi áður tekið fram, er hér ólíku saman að jafna.

Það er ekki rétt, sem hv. frsm. meiri hl. sagði, að þetta væri brot á reglum um verkaskiptingu ráðh. Enda kemur ekki til mála, að svo sé, því að löggjafarvaldið getur ekki síður en ráðh. sjálfir skipt verkum með ráðh. Um brot á löggjöfinni, sem almenna löggjafarvaldið drýgir, er þá fyrst að ræða, ef almenna löggjafarvaldið fer inn á svið stjórnarskrárgjafa.

Annars ætla ég ekki frekar að mæla fram með þessu ákvæði, sem hv. Ed. setti inn. Ég vil hvorki vera að metast um það við nokkurn né blanda mér inn í þær heimiliskrytur, sem ákvæðið hefir orðið valdandi innan stjórnarflokksins. Það voru ekki andstæðingar stj., sem báru þessa till. fram, heldur einn af helztu mönnum Framsóknar, og tveir flokksmenn hæstv. dómsmrh. greiddu atkv. með því í hv. Ed., að þetta ákvæði væri tekið upp í frv. Hafi nokkur syndgað, þá eru það þessir tveir hv. þm. í Ed., en ekki andstæðingar stj. En ég vil mótmæla því, að nokkur hafi gert það, því að heimilt er að setja í löggjöfina þau ákvæði, sem ekki brjóta í bág við stjskr. Enda hefði hæstv. forseti Ed. ekki hleypt þessari brtt. að, ef spurning hefði verið um það, að ákvæðið væri brot á stjskr.

Ég held, að það hafi ekki verið annað, sem ég þurfti að svara hv. frsm. meiri hl., nema því, er hann sagði um dómarafjölgunina. Hann lét svo um mælt, að erfitt mundi að fá á menn skipaða í æðsta dómstól landsins, á meðan launakjörin eru svo léleg og þau eru nú, eða ætlazt er til með frv., og jafnvel mun hann hafa gefið í skyn, að erfitt mundi að fá þessa menn skipaða, þó að þeir væru ekki nema 3. Vitanlega er þetta ekki annað en fyrirsláttur hjá hv. þm., því að ekkert er auðveldara en að fullskipa dóminn 5 hæfum mönnum. Hitt er að vísu rétt, að það getur orðið erfitt að fullskipa dóminn, á meðan það er markmið ráðh. að taka aðeins menn úr ákveðnum pólitískum flokki. Og sennilegt er, að það yrði mjög erfitt fyrir núv. dómsmrh. að fá 5 menn úr sínum flokki til að skipa dóminn, því eins og hv. frsm. meiri hl. sagði, geta verið menn, sem hafa meiri tekjur og vilja því ekki draga sig út úr sollinum, hvort sem heldur er úr pólitísku lífi eða annari atvinnu. Þess vegna má ganga út frá, ef markmiðið er að skipa dómarana úr ákveðnum pólitískum flokki, að það geti orðið erfitt.

En ef skipa á dómarana án þess að einskorða við það, hvaða stjórnmálaflokki eða stefnu þeir hallast að, þá eru engin vandkvæði að fá dóminn fullskipaðan, hvort sem um 3 menn er að ræða eða 5. Það er enginn vafi, að það má þá fá nógsamlega marga úr hópi lögfræðinga hér á landi í þennan dóm. Nú eru til svo margir hæfir lögfræðingar, að skipa má dóminn án þess að á því þurfi nokkur vandkvæði að verða. Eftir núg. lögum eru þessir lögfræðingar, ef þeir hafa 1. eink., hæfir í dóminn: prófessorar lagadeildar, hæstaréttarmálaflutningsmenn, héraðsdómarar og skrifstofustjórar í stjórnarráðinu. Nú munu vera milli 20 og 30, eða nær 30 hæfir lögfræðingar að taka sæti í hæstarétti.

Annarsstaðar er það mjög títt, að sem dómarar við æðri dómstóla veljist ekki aðeins fræðimenn, heldur og menn, sem sýslað hafa við málfærslustörf árum saman. í Englandi eru mjög margir dómarar menn, sem fyrr voru málaflutningsmenn. Og mér er kunnugt um, að við höfuðréttinn í London eru flestir dómararnir úr stétt málaflutningsmanna, og hefir það fyrirkomulag reynzt yfirleitt mjög vel.

Þá var ýmislegt í ræðum þeirra hv. 4. þm. Reykv. og hv. 2. þm. Skagf., sem ég þarf að líta nánar á. Þó ætla ég ekki að andmæla þeim í heild sinni, því að í öllum aðalatriðunum erum við sammála, en aðeins smærri atriði, sem ég ætla að gera nokkrar aths. við.

Það kom fram hjá báðum, að ég held, að ýmiskonar hættur væru því samfara, að kennarar lagadeildar væru aðaldómarar í fimmtardómi, og jafnvel þótt þeir væru aðeins varadómarar. Og það, sem þeir finna kennurum lagadeildar til foráttu, er það, að þeir gegni administrationsstörfum jafnframt. Ég hefi áður vikið að því, að litlar líkur eru til, að dómsmrh. setji þessa menn af, þó að komi fyrir og það hefir komið fyrir —, að þeir gætu dómsatkvæði á móti honum.

Þegar lög voru sett um lagaskólann 1903, sem staðfest voru 4. marz 1904, þá var ætlazt til, að dómarar í yfirrétti tækju að sér kennslu við lagaskólann. Þetta sýnir í rauninni það, að þá hefir þótt eðlilegt að sameina þessi störf, og þó áttu menn þessir að fá borgun hjá stj. fyrir kennslustarf sitt og voru henni háðir að því leyti, að hún gat rekið þá frá og á hann hátt rýrt tekjur þeirra.

Þá var og borið fram á þinginu 1922 af þeim Pétri Ottesen, Þórarni Jónssyni og Jóni Sigurðssyni frv. þess efnis, að Hæstaréttardómararnir skyldu hafa á hendi lagakennsluna við háskólann. Þá að ég viti það ekki, þá hefi ég þó grun um það, að hv. 2. þm. Skagf. hafi ekki verið svo mjög mótfallinn þessu skipulagi þá. Hann sá, að þetta var sparnaður og taldi enga hættu stafa af því. Hitt þori ég ekkert að fullyrða um, hvað hann lagði til þessara mála á þinginu, ég hefi ekki rannsakað það. Þetta sýnir það glöggt, að hv. flm. þessa frv. og ekki svo fáum öðrum, þó að frv. næði ekki fram að ganga, hefir þótt þetta skipulag heppilegt, eins og sumum finnst nú um það ákvæði, að tveir af kennurum lagadeildarinnar skuli vera aukadómarar í nokkrum málum eftir nánari ákvörðun aðaldómaranna í hæstarétti.

Þá töluðu þeir nafnar nokkuð um það, hvert vandhæfi væri á því fyrir aðaldómarana í hæstarétti að gera sér grein fyrir, áður en munnlegur málaflutningur færi fram, hvort málið væri svo þýðingarmikið, umfangsmikið eða vandasamt, að þörf væri á að kveðja aukadómarana til. Ég er þeim sammála um, að þetta geti verið erfitt og að dómendur hæstaréttar eigi ekki að mynda sér skoðun um það, hvernig málið eigi að fara, fyrr en það hefir verið sótt og varið fyrir hæstarétti. Hitt er annað mál, hvort það muni vera svo sérstaklega mikið vandhæfi að gera sér grein fyrir, hvort eitt eða annað mál sé mikilvægt eða ekki, áður en hinn munnlegi malflutningur hefst. Það geta dómararnir fyrst og fremst nokkuð ráðið af dómi undirréttarins og svo af útdrættinum úr málsskjölunum. Af þessum tveimur höfuðgögnum má venjulega ráða nægilega um það, hvort málið er mikilsvert eða ekki, hvort einhver atriði eru í því, sem teljast megi lögfræðileg eða praktisk stefnumál, hvort erfitt er að dæma þar um sönnunaratriði og þar fram eftir götunum. Auk þess, sem þannig má rekja efni málsins, þá má og rekja anda þess, hvað það er, sem málsaðilja greinir á um og hvaða sannanir þeir hafa fram að færa. Þetta eru höfuðatriði í hverju máli. Málaflutningsmennirnir geta að vísu oft, eftir því sem efni standa til, útilokað þau atriði, sem haldið hefði verið fram í dóminum ýtarlegar en gert er í útdrættinum, því að þær útlistanir eru þar venjulega ekki. En þó má ráða af útdrættinum, um það, hvort málið er þýðingarmikið, margbrotið, umfangsmikið eða vandasamt.

Þegar málið er skriflega flutt, þá er vandinn ennþá minni að þessu leyti, því að þá ganga héraðsréttarmálsskjölin óbreytt fyrir dómarana. Og geta þeir þá fyllilega séð af þeim, hvort ástæða sé til að kalla aukadómara til.

Svo vil ég bæta nokkru við um atriði, sem ég minntist ekki á í dag, og það er, að dómararnir þurfa ekki eingöngu að treysta útdrættinum, þegar dæma skal um það, hvort eitthvert mál er vandasamt eða ekki. Þeir eiga aðgang að sjálfum málsskjölunum, öllum, sem koma fram í héraði, eins og hv. 2. þm. Skagf. líka á að vita. Þar getur hver dómari fengið meiri upplýs. heldur en teknar eru upp í útdráttinn um öll sóknar- og varnaratriði, sem komið hafa fram í málflutningnum heima í héraði. — Það, sem þessir hv. þm. hafa sagt um þessi atriði, hafa þeir sagt að ekki nægilega athuguðu máli. Um hitt atriðið er ég þeim sammála, að það getur út af fyrir sig verið vandasamt og álitamal, hvaða mál séu svo mikilvæg, að ástæða sé til að kveðja til aukadómara. [Fundarhlé].

Ég var byrjaður að tala um, þegar fundinum var frestað, að það gæti verið álitamál, hvenær dómsmál þau, er koma fyrir hæstarétt, væru svo mikils virði, að ástæða væri að kveðja til aukadómara. Ég var búinn að segja það, að ég væri sammála hv. 2. þm. Skagf. um það, að nokkur vandi væri að ráða fram úr þessu. En ég taldi það þó ekki vera meiri vanda en margt annað, sem dómararnir verða að ráða fram úr. Og þó reyndar öllu heldur minni vanda. Og þótt aukadómararnir séu kvaddir til að taka hátt í dómi án nauðsynjar, þá er í raun og veru ekki mikill skaði skeður. Og þótt dómurunum missýnist í hina áttina, þá verður samt sem áður felldur löglegur dómur í málinu. Það er vitanlega miklu meiri vandi að dæma sjálfa dómana, skera úr ágreiningi milli málsaðilja. En þetta verður þó að fela dómurunum, því það er ekki hægt annað.

Hv. 4. þm. Reykv. kallaði þetta viðrinisfyrirkomulag. Ég skal játa, að eftir minni hyggju er það ekki jafnfullkomið og ef fastir dómarar væru 5. En mitt álit er þó, að þetta sé til bóta, og það virtist mér hv. þm. líka játa. Við erum sammála um, að betra sé, að dómararnir séu 5 en 3. En þetta er millistig af því tvennu.

Hv. 2. þm. Skagf. og hv. 4. þm. Reykv. voru hræddir um, að kostnaðurinn við aukadómarana mundi slaga hátt upp í þann kostnað, sem leiddi af því, ef bætt væri við 2 föstum dómurum. Ég hygg, að þeir byggi þetta á tvennu: Í fyrra lagi á því, að þeir búast við, að mörg mál muni falla undir fulla tölu dómara. Og í síðara lagi, að þeir geri ráð fyrir, að aukadómurunum verði greitt hátt kaup.

Um þetta er nú að vísu ekki hægt að segja með neinni vissu, því hvorugt verður vitað fyrirfram. En nokkuð má þó ræða í þetta af líkum. Ég hefi þó nokkuð skyggnzt í dóma Hæstaréttar og farið t. d. gegnum eitt ár og athugað þetta. Mér hefir talizt svo til, að af um nál. 90 málum, sem komu fyrir réttinn það ár, hefði verið ástæða til að kveðja aukadómara til að dæma í allt að 20 málum. En auðvitað er þetta mitt lauslega álit. (MG: Hvaða ár var það?). Ég held, að það hafi verið 1929. Það eru a. m. k. árgangarnir frá 1925–1929, sem ég hefi einkum kynnt mér. Ég hefi farið nokkuð rækilega gegnum alla dóma á þeim árum. Það var þó í Ed. haft eftir dómstjóranum, sem nú er, að þessir dómar mundu verða miklu fleiri. Um þetta þýðir vitanlega ekki að þjarka. Hans álit mun vera lauslegt og að ég hygg lauslegra en mitt.

Um kostnaðinn er það að segja, að ef varadómari er nú kvaddur til að taka þátt í dómi, þá eru honum greiddar fyrir það 46.93. Það getur verið, að einhverjum þyki þetta höfðingleg borgun. Og hún getur verið forsvaranleg, ef um smámál er að ræða, sem lítið þarf að hafa fyrir. En sé um stórt og vandasamt mál að ræða, þá er þessi borgun það, sem í daglegu tali eru nefndar hundsbætur. Og víst er um það, að málafærslumönnum um er dæmd hærri þóknun fyrir sitt starf, sem er að flytja málið. Ég hygg, að lagmark þeirrar þóknunar sé 50 kr. En ef málið þykir nokkurs virði, þá er þessi þóknun hærri, oft frá 100 upp í 200 kr., og þykir þó lagt sett og er það líka oft. En þó að mikil ábyrgð hvíli á málafærslumönnunum um að undirbúa mál og flytja þau fyrir dómi, þá er þó vitaskuld enn meiri vandi að kveða upp efnisdóm í málinu. Er ég þó ekki með þessu að gera neitt lítið úr starfi málaflm. Þótt ég vilji ekkert segja um það, hver laun aukadómurunum verði ákveðin, þá hygg ég þó, að óhætt sé að fullyrða það, að þau verða aldrei nema lítill hluti af þeim launum, sem greidd yrðu 2 föstum dómurum. En þessi orð mín má þó ómögulega skilja svo, að ég sé mótfallinn því, að skipaðir verði 5 fastir dómarar. Ég mun greiða atkv. með brtt. um það og tel það betra en það, sem nú er ákveðið í frv.

Hv. 2. þm. Skagf. talaði töluvert um það, að kennarar lagadeildar háskólans væru afsetjanlegir, þar sem þeir væru „administrativir“ embættismenn. Þetta er vitanlega satt. En það er þó enginn principmunur á starfi þeirra sem aukadómara samkv. frv. eða sem varadómara, eins og nú er ákveðið og framkvæmt. Mál þau, sem þeir dæma í nú, eru allt eins þýðingarmikil og þau, sem aukadómararnir koma til með að dæma í. Það ákvæði var sett í stjskr. 1915, að dómarar í yfirrétti væru ekki kjörgengir til Alþingissetu. Líka var svo látið um mælt í aths. við hæstaréttarlögin frá 1919, að dómararnir mættu ekki hafa nein launuð aukastörf. Þessu hefir verið rækilega fylgt hvað þingsetu snertir og hinu ákvæðinu líka, þó það sé ekki lögfest. En þessi varúð hefir þó ekki getað hjálpað, því að bæði í ræðu og riti hefir því verið haldið fram, að dómurinn nyti ekki trausts almennings. Ég skrifa nú að vísu ekki undir þann dóm, því ég álit, ð þetta sé alveg ofmælt. Dómararnir hafa verið sakaðir um að dæma hlutdrægt í vil eða óhag einstökum mönnum eða stofnunum. Það lítur því svo út, að í þessu landi dugi það lítið, þó þessar öryggisreglur séu settar, þótt hinsvegar megi telja það sjálfsagt að setja reglur um afskipti þeirra af opinberum málum. Í þessu efni er því jafnt á komið fyrir föstu dómurunum sem prófessorunum, þegar þeir hafa dæmt. Þeir, sem óánægðir hafa verið með dómsniðurstöðurnar, hafa ráðizt á hvorttveggja dómarana. Föstu dómararnir hafa sætt hörðum árásum og það hafa prófessorarnir líka gert stundum, er þeir hafa skipað dóminn. Þeim hefir verið svarað um það, að þeir væru keyptir að stj., eða í öllu falli háðir henni. En föstu dómurunum hefir verið svarað um það, að dómar þeirra beri vott um, að þeir láti stjórnast af pólitískum þokka eða vanþokka til manna. Mönnum hér á landi virðist oft veita erfitt að temja svo skap sitt, að þeir geti tekið ákveðinni dómsniðurstöðu rólega.

Hv. 2. þm. Skagf. sagði á þá leið, að það kæmi oft fyrir, að fleiri en einn dómari væri forfallaður. Ég ætti nú að vera þessu eins kunnugur og hv. þm. Og ég veit einmitt þess vegna, að þessi tilfelli eru mjög fá. (MG: Ég sagði einmitt, að þau væru fá!). Já, ef svo er, þá hefði hv. þm ekki þurft að blása þetta atriði jafnmikið upp og hann gerði. Ég minnist mjög fárra slíkra tilfella í þau eitthvað 12 ár, sem hæstiréttur hefir starfað hér á landi. Fyrst þegar dómararnir voru fluttir til, í hæstarétt úr yfirrétti, kom þetta fyrir með nokkur má, sem þeir gátu ekki dæmt, vegna þess að þeir voru áður búnir að dæma í þeim í yfirrétti. Síðan munu mjög fá slík tilfelli hafa komið fyrir, að föstu dómararnir hafi orðið að víkja úr dómi. Og í mörg undanfarin ár man ég ekki eftir nema einu slíku máli. Og það er þetta margfræga mál milli Kristjáns Karlssonar og Útvegsbankans, sem ýmsir hafa tekið sér svo nærri dóminn í. Ég held, að það komi ekki oft fyrir, að fleiri en einn hæstaréttardómari víki sæti eða forfallist, jafnvel árum saman hefir það ekki borið við. En hinsvegar er þó möguleiki fyrir því, að það komi fyrir einstöku sinnum.

Þá minntist hv. 2. þm. Skagf. nokkuð á það ákvæði 3. málsgr. 5. gr. frv., að dómsmrh. geti krafizt þess, að aukadómarar taki sæti í dómi, þegar um opinber mál er að ræða. Ég get verið honum sammála um það, sem hann sagði um þetta í meginatriðum. Það er yfirleitt óhentugt ákvæði, að dómsmrh. hafi ákæruvald í slíkum málum. Betra er, að til þess sé skipaður opinber saksóknari. Er sú regla og upptekin í öðrum löndum, víst flestum eða öllum. Er þá í það tekinn kunnur, og það valinkunnur lögfræðingur, sem þá annars ekki fæst við nein opinber malefni. Ég hygg, að þetta gefist vel. Þetta er gert til þess, að starfandi dómsmrh. geti engin áhrif haft í þessu efni á úrslit mála í dómnum. Og væri þetta gert hér, þá væri síður ástæða til að ætla, að dómsmrh. mundi hafa áhrif á úrslit mála með skipun aukadómara. Um þetta get ég því verið samdóma hv. 2. þm. Skagf. En ég býst við, að hver sem ráðh. er, verði ekki hjá því komizt að téð ákvæði verði tortryggilegt, og því get ég verið sammála hv. 2. þm. Skagf. um að það hefði verið réttara, að það ákvæði hefði ekki verið í frv. Hinsvegar voru það dálitlar ýkjur hjá sama hv. þm., þegar hann kvað svo að orði, að ráðh. gæti ráðið því, hverjir bættust í dóminn þegar þessu ákvæði yrði beitt. Það er ekki svo, því hann getur ekki kvatt til aðra en hina lögskipuðu aukadómara, hvort sem þeir eru honum kærir eða ekki, en deildin ákveður, hverir 2 af 3 taki sæti í dómnum. Það væri þó nokkuð annað, ef ráðh. gæti tekið einhvern og einhvern inn í dóminn, utan þeirra vébanda.

Þá er ég líka sammála hv. 2. þm. Skagf. og hv. 4. þm. Reykv. um það, að heppilegra hefði verið að ákveða, að ef háskólaprófessorana þryti, þá skyldi skipa sérstaka varadómara utan þeirra vébanda og þá jafnframt, úr hópi hvaða manna þeir skyldu teknir. Og það er einn hópur, sem tilvalinn og sjálfsagður væri til þeirra hluta, nefnilega Hæstaréttarmálaflutningsmennirnir. Það er vitanlegt, að það eru ekki nema fáir þeirra, sem eru við hvert mál riðnir, oftast ekki nema tveir, og það væri auðvelt að fela félagsskap þeirra að tilnefna einhverja úr sínum hóp til þess að taka sæti sem varadómarar, hvort sem þeir væru valdir með hlutkesti eða kosningu í hvert skipti. Það er trúa mín, að þessi skipun muni einhverntíma verða upp tekin, eða mér þætti það a. m. k. ekki ósennilegt.

Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka það, sem ég hefi áður sagt um niðurlagningu hæstaréttar og um prófraunina, en það álít ég aðalatriði þessa máls. Viðvíkjandi prófrauninni skal ég þó minnast á eitt atriði, sem hv. 2. þm Skagf. nefndi, og það var, að prófraun þessi næði ekki til kennara lagadeildarinnar, þó þeir séu varadómarar hæstaréttar. þetta er rétt. En löggjafinn mun hafa hugsað sér, að þeir menn, sem á annað borð væri trúað fyrir að kenna laganemum, myndu alltaf hafa þá þekkingu, sem nauðsynleg er til þess að taka þátt í dómstörfum hæstaréttar. Þessi rökfærsla hv. 2. þm. Skagf. á við það skipulag, sem nú er, en ekki það, sem formælendur þessa frv. hugsa sér að lögleiða, því með frv., ef að lögum verður, er prófraunin niður felld, og er það þá veitingarvaldið sjálft, sem sker úr því að öllu leyti, hvort dómaraefnin eru hæf til starfsins eða ekki, að vísu þó að fengnu áliti réttarins. Slíkt val held ég, að veiti ekki meiri tryggingu fyrir starfshæfni réttarins heldur en hitt, að heim, sem taka eiga þar sæti sem aukadómarar, hefir verið veitt prófessorsembætti við háskólann og hafa gegnt þar kennslustarfi í lögfræði um lengri eða skemmri tíma.

Þá held ég, að ég hafi tekið til athugunar flest þau atriði, sem mér virðist þörf á að tala nánar um heldur en áður er gert og býst því ekki við að segja fleira um þetta mál hér í hv. d., nema ef svo bæri undir, að fram kæmu einhver sérstök atriði, sem hæstv. forseti vildi leyfa mér að gera stutta aths. nm.