12.05.1932
Neðri deild: 73. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í C-deild Alþingistíðinda. (3806)
15. mál, fimmtardómur
Magnús Guðmundsson:
Ég þarf að svara fáeinum atriðum, en mun fara fljótt yfir sögu. Hv. 2. þm. Reykv. talaði eins og ég hefði haldið því fram, að það væri einhver sérstök þrekraun að skera úr því, hvaða mál væru flókin og vandasöm, og hann benti á, að það væri hægt að kynna sér þetta af útdráttum. Það þurfti hann ekki að segja mér. En ég benti á, að það færi nokkuð langur tími í það fyrir aðaldómendurna að lesa útdrættina og mynda sér skoðun á því, hvort málið væri flókið eða vandasamt. Það verður að gerast áður en aukadómendur eru kallaðir til, og þess verður að gæta, að það eru ekki nema 14 dagar frá því að útdrátturinn er lagður fram og til þess að búast má við, að málið verði tekið fyrir. Það var þetta, sem ég átti við. Og aukadómendurna verður að kalla svo snemma til, að þeir hafi nægan tíma til að kynna sér málið áður en málfærslan fer fram.
Hv. þm. sagði, að ég hefði talað mikið um umboðsstörf aukadómaranna. Þetta er misskilningur. Það er hv. 4. þm. Reykv., sem mest hefir talað um þetta. En það er alveg rétt, sem hann hefir haldið fram. það er hættulegt að lata dómendur gegna umboðsstörfum. Það er eftirtektarvert, að hv. þm. sjálfur segist hafa látið sér detta í hug, út af árásum, sem gerðar voru á hann, að hægt væri að setja sig af. En hann segist ekki hafa látið það hafa áhrif á sig. Ég skal viðurkenna það, án það var engin hætta á því með hann. En það er ekki hægt að treysta öllum svo. Þar við bætist svo það, að ég ímynda mér, að það verði ekki næsta mikill munur á kostnaðinum, þó þessir 2 viðbótardómendur yrðu fastskipaðir.
Þá kem ég að þeim ummælum hv. þm., að kostnaðurinn við aukadómendurna mundi verða lítill, því þeir mundu verða tiltölulega sjaldan kallaðir til, og borgunin til þeirra yrði lag í hvert skipti. Það er ekki með neinni vissu hægt að segja, hversu oft þeir verða kallaðir til. Ég er sannfærður um, að þeir verða kallaðir til hvenær sem nokkur vafi er um, hvort mál sé einfalt eða ekki. Og það er á engan hátt nægilegt í þessu efni, að einn maður fari í gegnum einn árgang af dómasafni hæstaréttar og myndi sér út frá eigin hugmyndum skoðun um það, hversu oft hefði þá þurft að kalla til aukadómendur. Auk þess er sá árgangur, sem hv. þm. fór í gegnum, frá fyrri árum réttarins, meðan hann hafði miklu færri mál til meðferðar en nú er orðið. Borgun til aukadómenda verður líka mun hærri en nú er til varadómenda, því aukadómendur á ekki að kalla til nema í vandasömum málum, og verður því sjálfsagt að borga hærra.
Hv. þm. sagði, að allir dómendur væru skammaðir, hvort sem þeir hefðu umboðsstörfum að gegna eða ekki, það hefði reynslan sýnt. Ég skil ekki oftnefnt ákvæði stjskr. svo, að það veiti dómendum vernd gegn skömmum. En það veitir þeim vernd gegn afsetningu. — Hv. þm. sagði ennfremur, að ég gerði mikið úr, hvað aðaldómarar væru títt forfallaðir. Það hefi ég ekki sagt. En það er auðséð, að ráð getur oft komið fyrir, og dómsmrh. er auðvelt að láta það oft koma fyrir, að skipa verði varadómara utan háskólans. T. d., ef ráðh. notar heilmild sína til að setja Eggert Briem frá nú í sumar þegar hann verður 65 ára, og setur t. d. hv. 2. þm. Reykv. í réttinn. Þá verður ávallt að skipa einn aukadómara; ráðh. getur ávallt ráðið einum manni í réttinum og stundum fleiri, þegar á annað borð aukadómarar eru kvaddir til.
Annars var hv. þm. mér sammála um, að réttara væri að tilnefna einhverja menn, er tækju sæti í réttinum ex officio, þegar einhver dómenda þar forfallaðist.
Hv. frsm. hefi ég litlu að svara. Hann sagði, að frv. væri nú orðið svo breytt frá því að það fyrst kom fram, að það þýddi ekki um það að tala lengur, þótt tilgangurinn hafi í byrjun verið eitthvað gruggaður. En það er ekki ennþá búið að laga frv. svo, að ég sé ánægður með það; það er langt frá því. Ég hefi bent á mörg ákvæði, sem ég er óánægður með, og hann getur ekki búizt við, að ég greiði frv. atkv. fyrr en það er komið í það horf, sem ég vil hafa það. Ég greiði ekki atkv. þeim ákvæðum, sem ég tel vera hreina óhæfu.
Ég get ekki fundið neinn eðlismun á prófum dómenda og málaflutningsmanna og öðrum prófum yfirleitt. Það er gert að skilyrði fyrir svo fjölda mörgu, að hafa tekið próf. — Mér þætti gaman að vita, á hverju hv. þm. byggir það að dómendurnir vísi mönnum frekar frá dómaraprófi vegna stjórnmála en málaflutningsmannaprófinu. Ég sé engan mun par á. Ég held, að það sé jöfn hætta á hvorttveggja.
Ég sé ekki, að brtt. hv. meiri hl. við 8. gr. segi nokkurn skapaðan hlut. Hún segir nákvæmlega það sama sem auglýs. 30. des. 1924, um skipting starfa ráðherra. Ég álít, að í þeirri auglýs. felist og sé fyrirskipað, að veiting þessara dómaraembætta skuli tekin til meðferðar á raðherrafundi. Þau embætti, sem þar eru talin, eru tiltölulega fá og greinilega ekki nefnd öðruvísi en sem dæmi. Þar stendur svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Þá skal og á ráðherrafundum taka til meðferðar allar hinar mikilvægari stjórnarathafnir, þar með talin veiting þeirra embætta, er telja má varða landið mikið í heild, svo sem embætti skrifstofustjóra stjórnarráðsins, biskups, landlæknis, aðalpóstmeistara, landssímastjóra og bankastjóranna“.
Þetta sýnir það greinilega, að upptalningin er einungis dæmi og er því varla vafi á, að þessi dómaraembætti falla undir auglýsinguna. En ef það er rétt, þá segir till. ekki annað en það, sem stendur í auglýs.
Hv. frsm. klykkti út með því að barma sér yfir því, að allar brtt. miðuðu að því að rýra vald dómsmrh. Þetta er ekki að öllu leyti rétt. Aðfinnslur okkar hafa aðeins gengið út á það að rýra vald hans, að því leyti sem frv. ætlast til, að það sé aukið frá því, sem nú er. Við berjumst á móti auknu valdi dómsmrh. yfir réttinum, móti því að flytja valdið frá dómstólnum sjálfum og yfir til ráðh. eða framkvæmdarvaldsins. Við álítum, að með þessu sé verið að reyna að raska skiptingu valdsins, sem ákveðin er í stjskr. Þetta er ástæðan til andstöðu okkar gegn frv. og er alveg óskylt því, hver er dómsmrh. á hverjum tíma. Hitt er vitaskuld, að sá dómsmrh., sem ber fram slíkar till. sem í frv. felast, hlýtur að verða grunaður um að gera það í heim tilgangi að vilja auka sitt vald. En einmitt sú till., sem getur litið svo út, að með henni sé verið að rýra vald ráðh. frá því sem nú er, hún er frá einum af flokksbræðrum núv. dómsmrh., en ekki frá okkur sjálfstæðismönnum.