04.06.1932
Sameinað þing: 14. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í D-deild Alþingistíðinda. (3819)

838. mál, vantraust á ríkisstjórnina

3) StgrS:

Ég vil taka það fram um þá hæstv. ráðh., sem Framsóknarflokkurinn hefir tilnefnt í stjórn, að ég mun veita þeim fullan stuðning meðan þeir starfa samkv. stefnuskrá flokksins. En um hæstv. dómsmrh. vil ég taka það fram, að ég get ekki veitt honum hlutleysi, og því síður stuðning, en skoða mig í pólitískri andstöðu við hann. Þar sem vantraustið er borið á stj. í heild, sé ég mér ekki fært að greiða atkv.