02.04.1932
Neðri deild: 41. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í D-deild Alþingistíðinda. (3844)
252. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins
Pétur Ottesen:
Ég verð að segja það, að það er ekki nema að vonum, þó að hér hafi verið á það bent sem harla einkennilegt fyrirbrigði, hversu harkalega hefir verið barizt á móti þeirri hreyfingu hér á þingi að leita að leiðum til þess að spara útgjöld ríkisins, því þær till. og tilraunir, sem gerðar hafa verið í þessa átt, hafa eins og kunnugt er mætt býsna harkalegri mótstöðu hjá stj. og stjórnarliðinu. Till. um þetta efni var fyrst borin fram í Sþ. 4. marz. Þessi till. var svo fyrst tekin á dagskrá í Sþ. 12. marz og þá tekin af dagskrá. Svo var till. aftur tekin á dagskrá 16. marz, en umr. um hana varð þá ekki lokið. Svo leið og beið, þangað til till. var loks tekin á dagskrá aftur 21. marz, og þá urðu afdrif hennar þau, eins og kunnugt er, að forseti sameinaðs þings var látinn grípa til þess fádæma gerræðis að vísa till. frá og láta hana ekki koma undir atkv. Þetta voru þá þær fyrstu viðtökur, sem tillögur, er gengu í þá átt að leita úrræða til að draga úr útgjöldum ríkisins, fengu hjá stj. og stjórnarliðinu. Eftir þessi harkalegu og harla einkennilegu afdrif, sem till. fékk í Sþ., var það tekið til ráðs að flytja samskonar till. í báðum d. þingsins. Þessari till., sem hér er nú til umr., var útbýtt 23. marz, en kom fyrst til umr. 30. marz, en þá var hún tekin út af dagskrá. En daginn eftir, 31. marz, kom hún aftur á dagskrá, en varð ekki útrædd og umr. var frestað. En svo, eins og kunnugt er, hafði till. verið tekin í gær sem 4. mál á dagskrá, en þegar að því kom að ræða till. eftir því, sem röð dagskrárinnar benti til, þá hafði forseti gefið stj. eða hæstv. dómsmrh. loforð um að taka málið út af dagskrá, en taka mál í staðinn, sem hann hafði sett með síðustu málum á dagskrána, þegar hann sjálfráður hafði raðað málunum niður. Svo var það borið undir d. og forseti hafði nóg atkvæðamagn til þess að samþ. það með sér, að málið væri tekið út af dagskrá. Það er því nú fyrst í dag, sem færi gefst á því að halda áfram umr. um till. og láta ganga um hana atkv. Ég verð að segja það, að allar þessar aðfarir gagnvart þessari till., jafnsjálfsögð og hún er, benda síður en svo á, að stj. og stjórnarflokkurinn geri sér nægjanlega ljósa grein fyrir því, hvernig fjárhagnum er komið og hve nauðsynlegt það er, að samvinna og samkomulag geti tekizt milli stjórnarflokksins og annara flokka í þinginu um það að koma réttingu á fjárhag ríkissjóðsins.
Ég hélt, að undir svona kringumstæðum mætti vænta þess af hæstv. fjmrh., sem stendur næstur því á hverjum tíma að sjá um, að fjármál ríkisins geti verið í lagi, og á honum mæðir fyrst og fremst um það, að ríkið standi við þær skuldbindingar, sem það hefir tekið upp á sig með fjárgreiðslur úr ríkissjóði, að það mætti vænta þess, að hæstv. fjmrh. tæki opnum örmum móti hverri tilraun og samvinnu, sem honum byðist um það að geta séð fjárhag ríkisins borgið. Það hefir verið bent á það í þessu sambandi, hvernig tekið var á móti samskonar till. 1922, sem hv. 1. þm. S.-M. bar þá fram, einmitt sami maðurinn, sem nú vill koma þessari till. fyrir kattarnef. Sú till. kom fram í þingbyrjun og var undireins, eftir því sem þingsköp heimila, tekin til meðferðar í þinginu og fekk samhuga afgreiðslu í Sþ. Þá var gert ráð fyrir því að skipa 5 manna nefnd í þessu augnamiði, en með hliðsjón af því, hvað sá eiginlegi rekstur ríkisins hefir verið færður út síðan 1922 þá leiðir af sjálfu sér, að eins og nú er komið, er hér um að ræða margfalt meira rannsóknarefni, en það krefur vitanlega, að fleiri kraftar séu settir í hreyfingu til að sinna þessum málum. Á síðustu árum hafa, svo sem kunnugt er, verið settar á laggirnar ýmsar stofnanir hjá ríkinu og tölu starfsmanna ríkisins fjölgað gífurlega. En hinsvegar stöndum við á þeim tímamótum nú, þar sem sízt er bjartara framundan en 1922 um möguleika til að inna af hendi þær skyldur, sem á herðum ríkissjóðs hvíla um allar fjárgreiðslur. Mér virtist hæstv. fjmrh. hafa tvennt að aðalvopni gegn þessari till., þegar hún var síðast rædd hér. Annað var það, að búið væri að kjósa samskonar n. í Ed., sem skipuð væri 3 mönnum, en í öðru lagi það, að það væri fjvn. þingsins að vinna þetta verk, sem hér væri farið fram á, að þessi nefnd vinni. En ég vil benda á það, að með því að ganga inn á að skipa n. í Ed., þá er hæstv. ráðh. búinn að viðurkenna, að það sé ekki hægt að ætla fjvn. að vinna þetta verk eingöngu, enda er það síður en svo, að fjvn. sé unnt að vinna þetta verk. Og ég skal benda á, hvernig í því liggur. Fjvn. hefir frá þingbyrjun — og það eru svo sem engin afbrigði frá því, sem venja hefir verið — setið á fundum 3 tíma á hverjum degi minnst, þannig að hún hefir fund á morgnana í eina klst. og auk þess alltaf fundi frá 5–7 á hverjum degi. Það leiðir því af sjálfu sér, að þessir menn í fjvn., sem auk þess eru sumir í öðrum n. og verða náttúrlega að taka þátt í venjulegum þingstörfum eins og aðrir, hafa engan tíma til að inna meiri störf af hendi en markað er með því eiginlega fjárveitinganefndarstarfi. Þeir hafa engan tíma til þess að fara út í bæ og rannsaka rekstur og reikningshald stofnana ríkisins og alla tilhögun þar. En hinsvegar er það svo um aðrar n. í þinginu, að þær hafa venjulega til nefndarstarfa ekki nema einn tíma á dag, auk þess sem sumar n. hafa ekki ákveðinn fundartíma nema annanhvern dag. Á þessu sjá menn, að fjvn.menn, einkum þó þeir, sem eru í fjvn. Nd., hafa sízt allra í þinginu aðstöðu til að gera það, sem að nokkru leyti er ætlazt til með þessari till., að rannsaka rekstur og reikningshald stofnana ríkisins og kynna sér það með eigin sjón. Það er síður en svo, að hægt sé að byggja til fulls á þeim reikningum og áætlunum, sem fjvn. berast frá þessum stofnunum, rökstuddar till. um niðurfærslur á gjöldum ríkisins. Þeir reikningar og áætlanir, sem n. berast frá þessum stofnunum, sem sumar koma seint og sumar aldrei, þrátt fyrir mikla eftirgangsmuni, eru þannig lagaðir, að það þarf meira með en að lesa úr þeim til þess að bera fram rökstuddar till. um niðurfærslur á gjöldum ríkisins að því er þessar stofnanir snertir. Ég get í því sambandi bent á reikninga áfengisverzlunarinnar. Þeim fylgir skrá yfir fasta starfsmenn verzlunarinnar og launagreiðslur þeirra. En auk föstu starfsmannanna hefir verið keypt þar vinna á árinu 1931 fyrir 39 þús. kr., en það fylgir engin sundurliðun á því, til hverra þetta fé hefir gengið. Í stjórnarráðinu hefir samkv. landsreikningnum 1929 verið greitt fyrir aukavinnu 39305 kr., en 1930 hefir verið borgað fyrir aukavinnu föstum starfsmönnum 23860 kr., en öðrum en föstum starfsmönnum 40808 kr., en það er til samans 64668 kr. M. ö. o., kostnaður við aukaborganir fyrir sérstök störf í stjórnarráðinu hefir aukizt um 30% á árinu 1930. Nú hefir n. tekizt að fá uppl. um það, hvað mikið hafi verið borgað fyrir aukastörf í stjórnarr. 1931. Og kemur í ljós, að þessi kostnaður er minni en 1930, eða 54255 kr. En n. hafði gert fyrirspurn til stjórnarráðsins og óskað eftir því að fá sundurliðun á því, hvernig þessi kostnaður væri greiddur. En það hefir ekki tekizt að fá það, nema að nokkru leyti, þrátt fyrir mikla eftirgangsmuni af hálfu fjvn. Þær upplýsingar, sem n. hefir fengið, er sundurliðun yfir það, sem borgað hefir verið fyrir aukavinnu fastra starfsmanna stjórnarráðsins. En sú upphæð er ekki nema 23220 kr. af þessum 54255 kr. Þær upphæðir, sem fastir starfsmenn hafa fengið fyrir aukavinnu sína í viðbót við sín föstu laun. nema þetta frá 1 þús. kr. til 3 þús. kr. til hvers. En það hefir ekki fengizt nein sundurliðun yfir þær fullu 30 þús., sem greiddar hafa verið fyrir utan þetta.
Það má í þessu sambandi benda á fleira til sönnunar því, að ómögulegt er fyrir fjvn. að bera fram rökstuddar till. um niðurfærslur á gjöldum ríkisins eftir þeim gögnum, sem fyrir henni liggja. Það má einnig benda á það, að frá skipaútgerð ríkisins hefir n. ekki fengið önnur gögn en reikningaslitur, sem forstöðumaður stofnunarinnar kom eitt sinn með á fund n. og gaf henni kost á að líta yfir meðan hann stóð við. Það má hugsa sér, hvaða gagn það hefir verið fyrir nefndina að fá sem allra snöggvast að líta yfir ófullgerða reikninga, enda setti ég ekki á mig neinar tölur þar, en ég man það greinilega, að þar voru stórar upphæðir, sem engin sundurliðun eða skýring fékkst á. Engin skýrsla var þar um laun forstjóra og annara starfsmanna. Eftir ítrekaða eftirgangsmuni frá n. hafði þó forstjórinn lofað að senda reikningana hingað fyrir kl. 12 í dag, en mér vitanlega eru þeir ekki komnir. Af tilviljun man ég eftir því, að halli á rekstri strandferðaskipsins Esju var á síðastl. ári 226 þús., en á Súðinni 210 þús. kr. Ríkisútgerðinni hefir ennfremur verið falið að annast útgerð varðskipanna. Um útgerðarkostnað þeirra hvers um sig man ég ekki, en ég held, að samtals hafi hann numið um 800 þús. kr. Það barst í tal um útkomu á fiskveiði varðskipsins Þórs, og mig minnir, að forstjórinn upplýsti, að brúttó tekjur af þeirri starfsemi hefðu orðið 40 þús. kr., en hann varðist allra frétta um það, hver hin raunverulega útkoma hefði orðið.
Ég hefi nú bent á þrjú glögg dæmi til stuðnings mínu máli. Ég ætla, að ekki þurfi að fara langt út í þetta mál til þess að sýna nauðsyn þessarar nefndarskipunar, en ég skal minnast á eitt dæmi enn, er verkefni væri fyrir n. að rannsaka. Það er viðtækjaverzlun ríkisins. Frá þeirri stofnun hefir n. fengið reikninga ásamt skrá yfir laun fastra starfsmanna. Samkv. þeirri skrá hefir forstjórinn 9 þús. kr. laun, gjaldkerinn 4800 kr. og varamaður við uppsetningu viðtækja 3500 kr. Svo hafði verið greitt fyrir aukavinnu, sem engin sundurliðun var á, rúml. 1100 kr. og upp í eftirstöðvar launauppbótar frá fyrra ári rúmar 1200 kr., sem sömuleiðis var engin sundurliðun á. En svo hefi ég fengið þær upplýsingar úr öðrum stað, að fyrir utan þessi laun forstjórans eða til viðbótar við þau hafi útvarpsstjóranum snemma á síðastl. ári verið ákveðin 800 kr. aukaþóknun, sem bráðlega var færð upp í 2000 kr., fyrir eitthvert yfireftirlit, sem hann á að hafa með viðtækjaverzluninni. Þessar upplýsingar hefi ég fengið frá þeim stað, að ég ætla, að þær muni vera réttar. En á launalista viðtækjaverzlunarinnar stendur ekkert um þetta. Það kann að vera, að þessi greiðsla felist í hinum ósundurliðuðu upphæðum, þó það sé fremur ólíklegt.
Ég vil benda á, að þetta dæmi sýnir það, að eftir þessum gögnum er ekki gott fyrir fjvn. að eiga að gera till. um niðurfærslu útgjalda ríkisins. Til þess að geta gert slíkar till. þarf aðstöðu til þess að geta gert miklu nákvæmari rannsókn heldur en fjvn. hefir nokkur tök á. — Ég skal svo ekki fara lengra út í að rekja þessi dæmi; ég ætla, að það, sem ég hefi þegar sagt, nægi til að sýna fram á það, að fjvn. hefir hvorki tíma eða tækifæri til þess að gera meira en vinna úr þeim skjölum og skilríkjum, sem fyrir liggja og beinlínis snerta afgreiðslu fjárl. hverju sinni.
Eins og ég hefi áður hent á um starfstíma annara nefnda í þinginu en fjvn., þá er það mjög auðvelt að fá menn úr deildinni í þessa n., sem hafa nægan tíma til að sinna þeim störfum, sem þar um getur, meðan þing situr.
Það var eitthvað minnzt á það í þessu sambandi af hæstv. fjmrh., að n. sú, er skipuð var í Ed. í þessum tilgangi, væri fullnægjandi í þessu efni. Ég hefi nú gert grein fyrir því, að það veitir sízt af tveimur nefndum eins og komið er þessu máli. Það er nú þegar orðið alllangt liðið á þingtímann, enda búið að hefta framgang þessarar till. nær því mánuð. Með tilliti til þess einnig, hve mikið verk n. er ætlað, er það alveg ljóst fyrir öllum þeim, sem á annað borð vilja, að nokkuð verði ágengt í þessu starfi, að það er síður en svo, að af því veiti að skipa hér í hv. þd. 5 manna n., eins og till. fer fram á, til viðbótar við þá n., sem skipuð hefir verið í Ed. Hæstv. fjmrh. sagði, að n., sem skipuð var í Ed., hefði verið skipuð með það fyrir augum, að jafnframt því sem hún ynni meðan þetta þing stendur yfir, þá starfaði hún einnig milli þinga. Ég vil aðeins skjóta því fram út af þessum ummælum hæstv. ráðh., að Sjálfstæðisflokkurinn, sem átti frumkvæðið að skipun þessarar n., hafði enga ákvörðun tekið um lengri starfstíma fyrir hana en meðan þing stendur yfir. Það getur vel verið, að orð hafi fallið á þá leið hjá sjálfstæðismönnum, að ef árangur af starfi n. í þinglok sýndi það, að ástæða væri til, að hún starfaði áfram, þá væri réttast, að hún gerði það, en aðaltilgangur með till. var sá, að n. starfaði einungis meðan þingið stendur. Og með tilliti til þess annarsvegar og hins mikla verkefnis, sem hér er um að ræða, hinsvegar, þá er það ekki að ófyrirsynju eða að ástæðulausu, að önnur n. sé kosin í þessari deild; því fyrr sækist þetta verk, því fleiri sem að því ganga.
Hæstv. fjmrh. virðist hafa tekið þá ákvörðun að beita sér fyrir því að koma till. fyrir kattarnef, og hv. 1. þm. S.-M. er látinn ganga hér fram fyrir skjöldu með sína rökstuddu dagskrá, sem sýnilega á að verða málinu að fótakefli. En ég vil nú samt sem áður vænta þess, að hæstv. ráðh., sem að því mér hefir verið sagt kvað hafa meiri tilhneigingu til samstarfs um þessa og aðra hluti við andstæðinga stj. en aðrir mikilsráðandi menn í hans flokki, geti eftir að hafa heyrt þær upplýsingar, er ég hefi nú gefið um aðstöðu fjvn. til þess að sinna þessum rannsóknum, sem hér er um að ræða, fallið frá þessari sinni ákvörðun, sem er ekkert annað en beinlínis að leggja stein í götu þess, að fáanlegar séu nauðsynlegustu upplýsingar til þess að hægt sé að gera till. í sparnaðaráttina, bæði með samfærslu á störfum og niðurfærslu á launagreiðslum. Ég vil svo vænta þess, að till. nái fram að ganga, n. verði skipuð og að hún megi með góðri samvinnu komast að beztu niðurstöðu og úrlausn á því mikla nauðsynjamáli þjóðarinnar að verjast því, að búskapur ríkissjóðsins komist í algert greiðsluþrot og vandræði, en sú hætta vofir sýnilega yfir eins og komið er, ef ekki er tekið í taumana nú þegar.