02.04.1932
Neðri deild: 41. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í D-deild Alþingistíðinda. (3855)
252. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég vil aðeins bæta við lítilsháttar upplýsingum um sparnaðarnefndina 1922. Hún kom með till. um að fella niður kennaraembættið í klassískum fræðum við háskólann, sem ekkert varð úr. Ennfremur frv. um að sameina Árnes- og Rangárvallasýslur, sem vísað var til stj. og kom þaðan aldrei aftur. Frv. um þinghald annaðhvert ár samhliða fækkun ráðherra. Leiddi það aðeins af sér nokkurra ára skrípaleik. Þá má ennfremur nefna breyt. á hæstaréttarlögunum, fækkun dómara, sem að lögum varð, sem orkar nú mjög tvímælis, hvort frekar hafi verið til gagns en ógagns.
Þessar viðbótarupplýsingar mínar vænti ég, að sanni hin fyrri ummæli mín, að enda þótt gott samstarf hafi verið um skipun nefndarinnar, þá var árangurinn ekki að sama skapi.