22.02.1932
Neðri deild: 7. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í C-deild Alþingistíðinda. (3873)
16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa
Magnús Guðmundsson:
Það var aðeins fyrirspurn til hæstv. dómsmrh., sem ég vildi bera fram í sambandi við þetta frv. — Svo er mál með vexti, að við endurskoðun landsreikningsins fyrir árið 1930 hefi ég rekið mig á greiðslu vegna eftirlitsmanns með loftskeytum botnvörpuskipa, og vildi ég spyrja hæstv. ráðh., hvort ekki sé rétt, að skipaður hafi verið sérstakur maður í þessu skyni, eins og fylgiskjöl landsreikningsins herma og ég áður sagði. En sé svo, hefir hæstv. ráðh. sýnt þar með í verkinu, að hann telur stj. hafa heimild til að fyrirskipa slíkt eftirlit eftir núgildandi l., og kemur það heim við það, sem bæði ég og aðrir hafa haldið fram í umr. um þetta mál á undanförnum þingum, að stj. hefir næga heimild í núgildandi löggjöf til að fyrirskipa slíkt eftirlit sem frv. stefnir að. — Jafnframt hatti mér gott að heyra, hver árangur hefir orðið af starfi þessa manns, því að það mætti verða nokkur mælikvarði um þörfina á að gera þetta frv. að l. Að öðru leyti mun ég ekki fara út í að ræða þetta mál frekar við þessa umr., en vildi láta þá ósk í ljós um leið og ég lýk máli mínu, að sú n., sem væntanlega fær frv. til meðferðar, leiti sér sem beztra upplýsinga um það, hver árangur hefir orðið að starfi þessa eftirlitsmanns.