29.02.1932
Efri deild: 16. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í D-deild Alþingistíðinda. (3877)
29. mál, fávitahæli
Flm. (Guðrún Lárusdóttir):
Hæstv. dómsmrh. vildi vita, hvernig ég hugsaði mér fyrirkomulag fávitahælisins. Hann bar fram ýmsar spurningar í sambandi við það. Aðalspurningin mun vera sú, hver það eigi að verða, sem bera á kostnað slíks hælis.
Vitanlega verður aldrei hjá því komizt, er ráðizt er í verklegar framkvæmdir, að af því leiði meiri eða minni kostnað. Að sjálfsögðu hlyti ríkissjóður að bera byggingarkostnað, eða að leggja til húsnæðið.
Hugsun mín um þetta atriði er sú, að tekið yrði á hentugum stað — helzt heitum stað — gott jarðnæði, þar sem góð skilyrði væru til ræktunar og annara vinnubragða, sem nota mætti heimilismenn til, eftir því sem ástæður leyfðu. Ég hugsa mér, að slíkt hæli, sem hér um ræðir, væri í senn vinnuheimili og hæli fyrir þá, sem ekki geta unnið. Ég held, að með haganlegu fyrirkomulagi megi draga úr rekstrarkostnaði, og ríkissjóði ætti ekki að verða mjög íþyngt hvað útgjöld snertir, ef vel er á haldið, því á þessu hæli yrðu sjálfsagt alltaf ekki allfáir, sem töluvert gætu unnið undir góðri stjórn á hentugum stað.
Hvað meðgjöf snertir með því fólki, sem aumlegast væri statt, þá kæmi hún vitanlega frá ýmsum aðiljum. Aumingjar af þessu tægi eru allajafnan þungir ómagar, ýmist sveitarfélaganna eða einstaklinganna, og mundi því meðgjöfin verða látin renna til hælisins, í staðinn fyrir til prívatmanna eða heimila, sem skotið hafa skjólshúsi yfir aumingjana, oft af lítilli getu.
Hafa má dæmi Norðmanna til hliðsjónar í þessu efni: ríkið leggur fram vissan fjárhluta, fylkin og sýslurnar vissan hluta, einstaklingar og hreppsfélög sinn hluta. Þannig gætu gjöldin skipzt á allmargar hendur og alls ekki orðið ofurþungi ríkissjóðsins eins.
Nú verð ég að segja það, að æskilegast hefði mér þótt, að þeir foreldrar, sem verða fyrir þeirri mæðu að eignast slík andlega örkumla börn, þyrftu ekki að leggja hart að sér þeim til framfæris eða til þess að geta látið þeim líða sæmilega. En hitt er víst, að foreldrar munu yfirleitt heldur ganga alls á mis heldur en að reyna ekki til að hlynna að aumingjanum sínum, en kringumstæður, þröng húsakynni o. fl., koma oft algerlega í veg fyrir alla útvegi í þessu efni. Þess vegna yrði það ekkert lítið gleðiefni þeirra, sem þyngstar bera byrðar þessa böls, ef þjóðinni væri séð fyrir góðum samastað handa olnbogabörnunum, sem hér um ræðir. Og aðstandendur, þeir sem nokkurs megna, mundu ekki telja eftir meðgjöfina til hælisins. Ég held það yrði hreint og beint metnaðarmál margra að sýna þakklæti sitt á þann hátt að standa vel í skilum, enda ekkert lítil byrði, sem losuð væri af heimilunum. Annars er tæplega kominn tími til að tala um fyrirkomulagsatriði þessa fávitahælis, sem fyrst og fremst verður að undirbúa sem rækilegast áður en lengra er farið. Og það er nú einmitt það, sem ég vona að verði gert, til þess að ekki liði á mjög löngu áður en þjóðin getur boðið þessum ósjálfbjarga börnum sínum upp á góðan samastað.
Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir góðar undirtektir málsins, og ég vona, að þótt nú sé þröngt í búi, þá rakni fram úr og þetta áhugamál mitt fái sem beztan byr.