15.03.1932
Neðri deild: 29. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 836 í B-deild Alþingistíðinda. (388)
5. mál, verðtollur
Magnús Guðmundsson:
Ég sé, að hvorugur þeirra hv. þm., sem eru í minni hl., er nú við staddur hér í hv. d. Ég vil lýsa því yfir, að ég mun ekki greiða atkv. um frv þetta eins og stendur. Sjálfstæðisflokkurinn mun yfirleitt ekki taka afstöðu til þeirra tekjuaukafrv., sem nú liggja fyrir, fyrr en útséð er um, hvaða afstöðu stjórnarflokkurinn tekur til stærsta málsins, sem fyrir þinginu liggur, stjórnarskrármálsins.