21.03.1932
Neðri deild: 34. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 906 í C-deild Alþingistíðinda. (3883)

16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa

Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):

Ég mun ekki að þessu sinni fjölyrða um hin einstöku atriði þessa máls. Það hefir nokkrum sinnum áður legið fyrir þessari þingdeild og er því hv. þm. kunnugt frá fyrri tíð. Með frv. er sú spurning lögð fyrir hv. d., hvort hún vilji gera alvarlegar ráðstafanir til þess að afstýra misnotkun loftskeyta í sambandi við brot á landhelgilögunum eða ekki. Það er fyrir löngu vitað, og enda viðurkennt af mótstöðumönnum frv., að slík misnotkun hefir átt sér stað og að það er tiltölulega auðvelt að koma henni við, enda skiljanlega oft mikil freisting til þess fyrir veiðimenn og aðra hlutaðeigendur. Mótstöðumenn frv. hafa yfirleitt viðurkennt, að það væri ástæða til að hefta slíka misnotkun skeytanna, en það hefir jafnan farið svo, að n. sú, er haft hefir málið til, meðferðar, og hv. d. hafa orðið ósammála um það, hvernig fara ætti að því.

Nú heldur meiri hl. sjútvn. því fram, að með frv. á þskj. 16 og brtt. á þskj. 176 sé gerð líkleg tilraun til þess að afstýra þessari misnotkun loftskeyta. Hinsvegar álítur minni hl. n., að með frv. náist enginn verulegur árangur. En minni hl. hefir ekki bent á nein ráð til þess að afstýra óhæfunni, þótt hann viðurkenni, að ástæða sé til að aftra þessari misnotkun loftskeytanna, ef hægt væri. Hann hefir á undanförnum þingum haldið því fram, og jafnvel lætur skína í það gegnum álit sitt nú, að nauðsynlegar ráðstafanir séu þegar gerðar í því efni með 1. nr. 82, 14. nóv. 1917, og reglugerð út af þeim. Um það var mikið rætt á þinginu 1930, hvort lög frá 1917, ásamt reglugerð frá 1918 um notkun loftskeyta væru einhlít til varnar gegn misnotkun loftskeyta í þágu landhelgisbrota eða ekki. Aftur og aftur hefir sú kenning verið flutt hér af andstæðingum þessa máls í hv. d., að nefnd lög væru nægileg stoð fyrir eftirlit með landhelgibrotum og að eftirlitið sé framkvæmanlegt með stuðningi þeirra. Þó er það kunnugt, að þessi lög líta alls ekki að landhelgivörnum, heldur fara þau í þá átt að skilorðsbinda loftskeytanotkun og setja reglur um meðferð tækjanna, án þess að það aðalatriði, sem frv. fjallar um, komi nokkuð þar til greina. Lögin frá 1917 eru aðallega sett vegna eftirlits um það, að aðrir noti ekki loftskeyti en þeir, er leyfi hafa til þess fengið, og það er almennt vitað, að á þeim tíma var ekki gert ráð fyrir því, að botnvörpungar mundu misnota loftskeyti í þessum efnum, eins og nú er viðurkennt og kunnugt orðið.

Ég tók það fram í upphafi ræðu minnar, að ég mundi ekki fjölyrða um frv. að svo stöddu, þótt aðrir ef til vill finni ástæðu til að gera það. Samt verð ég áður lýkur að minnast á það, að við athugun, sem gerð hefir verið um skeytasendingar þessar, hefir það komið í ljós, að loftskeytanotkun botnvörpunganna hér við land er afarmikil á vissum tímum, þegar þeir eru að veiðum, bæði skeytasendingar milli skipanna innbyrðis og eins milli skipanna og lands, en þar sem þær skeytasendingar fara nær allar fram á dulmálum og lyklarnir að málunum eru ekki þekktir, er ómögulegt að vita, hvort skeyti þessi eru saknæm eða ekki.

Það er að vísu mjög eðlilegt, að skip noti dulmál, af því að þau geta oft þurft að senda skeyti í þeim tilgangi að leiðbeina sínum félagsmönnum og gefa heim upplýsingar, sem raunverulega eru ætlaðar til notkunar við veiðarnar, og það er alveg eðlilegt, að þeir, sem þannig vilja leiðbeina ákveðnum skipum, noti dulmál og reyni þannig að leynast fyrir keppinautunum. Þess vegna þarf að afhenda lykla að þessum dulmálum, því að það er vitanlega ekki hægt að hafa eftirlit með því, að skeytin séu ekki misnotuð, nema lyklarnir séu afhentir og aðgengilegir fyrir þá, sem eftirlit eiga að hafa. En slíkir dulmálslyklar mundu að sjálfsögðu háðir þagnarheiti gæzlumanna. Í frv. er það tekið fram, auk þeirrar almennu skyldu að afhenda ráðuneytinu lykla dulmála, að á hvert einstakt skeyti skuli vera ritað vottorð, undirritað af sendanda eða útgerðarmanni, að viðlögðum drengskap um það, að ekkert í efni skeytisins sé ætlað til þess að stuðla að því að brjóta lög. En á fyrri þingum hafa andstæðingar frv. haldið því fram, að á slíkum vottorðum væri ekki að byggja, né heldur lyklunum, því að hvorttveggja megi falsa. Ég verð að segja, að þegar slíku er haldið fram, þá finnst mér það vera siðferðisleg þrotabúsyfirlýsing fyrir þjóðarinnar hönd að ætla, að þeir menn, sem gefa vottorð að viðlögðum drengskap, geri það ekki af heilum hug og í því skyni að bera sannleikanum vitni.

Eins og gefur að skilja, er það þetta tvennt í frv., sem getur tryggt það að verulegu marki, að skeytin séu ekki misnotuð. Í fyrsta lagi það, að lyklarnir eru afhentir, og í öðru lagi drengskaparyfirlýsingin.

Ég ætla ekki að fara frekar út í þetta eða tala lengra mal, að öðru leyti en því, að ég vil minna á brtt. meiri hl. á þskj. 176, sem ganga í þá átt að samræma refsiákvæði frv. við gildandi reglur um viðurlög við brotum á landhelgislöggjöfinni.

Ég þykist ekki þurfa að fara ýtarlega út í hverja fyrir sig. Sektarákvæðin í frv. eru óeðlilega há; þess vegna hefir n. flutt brtt. um að færa þau niður. Auk þess eru lítilfjörlegar breytingar málfræðilegs eðlis, og sé ég ekki ástæðu til að fara út í þær frekar, enda munu þær flestum auðskildar. Skal ég svo ekki teygja tímann með lengri ræðu.