21.03.1932
Neðri deild: 34. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í C-deild Alþingistíðinda. (3884)

16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa

Frsm. minni hl. (Jóhann Jósefsson):

Það er nú víst í fimmta skipti, sem það er á ferðinni hér, þetta mál, sem hv. frsm. meiri hl. leggur svo mikið upp úr, að eigi að geta komið í veg fyrir landhelgiveiðar, og kveður svo ríkt að orði á þskj. 176 í nál. meiri hl., að frv. sé „sú róttækasta tilraun, sem gerð hafi verið til að koma í veg fyrir misnotkun loftskeyta“, og „eina tiltæka ráðið til að koma í veg fyrir ólöglegar landhelgiveiðar“.

Minni hl. hefir ekki getað fallizt á þetta þjóðráð, né að með þessu væri verið að afstýra landhelgiveiðum, og það eru fyrir löngu komnar fram ástæðurnar með og móti þessu máli. En vegna þess að hv. frsm. meiri hl. fór nokkuð ýtarlega út í meðmæli sín með þessu mikla „þjóðráði“, þá er mér sama, þótt ég tíni fram það helzta, sem af minni hl. hálfu hefir komið fram gegn þessu „þjóðráði“ hæstv. stj. og hv. meiri hl. sjútvn. gegn landhelgiveiðum.

Með frv. eins og það nú var lagt fyrir Alþingi er prentuð umsögn einhvers ónafngreinds lögfræðings ríkisstj., sjálfsagt eins af mörgum, sem hún hefir á að skipa til að finna stað heim lögum og lögleysum, sem hún leggur fyrir þingið, og þessi lögfræðingur kemst að þeirri niðurstöðu, að l. frá 1917 um rekstur loftskeytastöðva á Íslandi og reglugerð sú frá 17. maí 1918, sem sett var samkv. þeim 1., nægi ekki til að setja undir þann leka, sem svo mjög virðist bleyta bölið hjá hv. meiri hl. sjútvn. og Hæstv. dómsmrh. Og hv. frsm. meiri hl., sem var að tala um það — klifa á þessu sama, að l. frá 1917 væru ónóg, kvað svo ríkt að orði, að stj. hefði eftir l. enga heimild til að skipta sér af loftskeytanotkun. (SvÓ: Það sagði ég ekki) nema þeir einir leyfi, sem með þau mál fara. Ég skrifaði þetta upp hjá mér, og þótt eitthvert orð hafi farið framhjá mér, þá held ég, að ég hafi skilið það rétt, að hv. frsm. meiri hl. hafi verið að halda því fram, að stj. hafi enga heimild haft til að líta eftir þessari notkun loftskeyta. Ég vil nú spyrja hv. frsm. meiri hl., hvort ég hefi ekki skilið þetta rétt? Nú, það þýðir þá ekki. En ef ég má, þá vildi ég spyrja hv. frsm. meiri hl. að annari spurningu til: Eftir hvaða heimild hefir stj. sett þennan njósnarmann, sem hæstv. dómsmrh. játaði hér við 1. umr. að hafa sett til að hlusta á loftskeytaviðskipti togaranna? (SvÓ: Með hvaða heimild hlusta menn í útvarpstæki?). Hæstv. dómsmrh. játaði, að hann hefði sett mann til að hlusta, og ég geri ráð fyrir, að það hafi verið dómsmrh. sem slíkur, en ekki „prívat“-maðurinn Jónas Jónsson, sem nú skipar það embætti, sem hefir sett þennan hlustara. Og ég geri ráð fyrir, og það mun þegar vera komið í ljós, að landssjóður hafi eitthvað þurft að borga fyrir þetta. A. m. k. er það upplýst, að það hafa verið keypt sérstök tæki í þessu skyni. Mér finnst það því skjóta nokkuð skökku við, þegar hv. frsm. meiri hl. vill ekki láta hæstv. stj. hafa neina heimild til að skipta sér af misnotkun loftskeyta, þegar það er komið í ljós, að hæstv. stj. hefir sjálf talið sig hafa þessa heimild.

Svo sagði hv. frsm. meiri hl., að þessi athugun hefði leitt það í ljós, að það væru stundum mikil brögð að því, að skeyti væru send, en stundum minni. þetta er ákaflega sennilegt, og ég býst við, að flestir muni skilja það, að það séu stundum meiri brögð og stundum minni að skeytasendingum; það er trúlegt, að það sé ekki alltaf jafnmikil þörf á skeytasendingum milli skipa eða milli lands og skipa.

Annars er það víst rétt hjá hv. frsm., að það hefir enginn árangur orðið af þessari njósnarstarfsemi hæstv. dómsmrh. Hann kennir því um, að stj. hafi ekki svokallaða lykla að þessum dulmálum. Það getur vel verið, að hæstv. stj. hefði gaman af að fá marga breytilega lykla í hendur, en ég býst við, að hún yrði jafnnær fyrir því, því að af þeirra manna hálfu, sem það vildu, væri víst auðvelt að fara kringum hana.

Hv. frsm. meiri hl. sagði, að því hefði undanfarið verið haldið fram af andstæðingum þessa frv., að það væri ekki farið ráðvandlega með þessi æru- og samvizkuvottorð, og talaði um siðferðislega þrotabúsyfirlýsingu frá okkur, sem gerum ráð fyrir, að það geti orðið nokkuð hvikult með þessi vottorð. Ef hv. frsm. heldur, að menn brjóti ekki þetta drengskaparvottorð, þá finnst mér, að hann ætti ekki að vera eins tortryggur í garð manna um það, að þeir misnoti loftskeyti. Af hálfu minni hl. hefir því aldrei verið haldið fram, að það geti ekki verið, að einhverjir misnoti loftskeyti, an þess að það sé þó sannað, jafnvel hlustari hæstv. stj. hefir ekkert getað sannað í því efni. Samt sem áður vil ég ekki halda því fram, að þetta geti ekki átt sér stað. En hinu neita ég afdráttarlaust, og byggi það á viðtali við formann Fél. íslenzkra loftskeytamanna, að loftskeytin séu notuð mestmegnis til að skaða landhelgigæzluna.

Það kom fram margt fróðlegt í ræðu hv. frsm. meiri hl. T. d. heyri ég, að hann hefir nú fengið augun opin fyrir einni helztu notkun loftskeyta, sem hann hefir aldrei þekkt fyrr, sem sé þeirri, að togarar hafa með sér skeytafélag til að koma fregnum um aflahætti hver til annars innan ákveðins flokks veiðiskipa. Þeir bentu á, form. F. Í. L. og starfsbróðir hans, sem eftir beiðni komu á fund sjútvn., hvílík feikna vinna væri lögð á alla loftskeytamenn á togurum með ákvæðum þeim, sem í frv. felast, ef það kæmi til framkvæmda. Og eftir það tal, sem sjútvn. átti við þá, sendu þeir henni skriflega umsögn, sem prentuð er með nál minni hl., þar sem þeir benda á ágalla þessarar fyrirhuguðu löggjafar. Þeir segja sem satt er um 1. gr. frv., þar sem lögboðið er, að öll botnvörpuskip skuli hafa fullkomin loftskeytatæki, að slíkt ákvæði ætti að felast í löggjöf um öryggi á sjó, en að þetta væri ekki ákveðið sérstaklega fyrir veiðiskip. Ég veit til, að þetta er lögboðið í löggjöf annara þjóða, en þar eru þessi ákvæði miðuð við stærð og verkefni skipsins, og er þannig t. d. sumstaðar frekari skylda fyrir skip, sem flytja farþega, að hafa loftskeyti en fyrir önnur skip. Annars er það, satt að segja ákaflega hjákátlegt að vera að lögbjóða, að allir togarar skuli hafa loftskeytatæki, þegar það er vitað, að hver einn og einasti togari hefir nú þegar þessi tæki.

Ennfremur segir svo í bréfi form. F. Í. L., með leyfi hæstsv. forseta:

„Nú er það svo, að fjöldi íslenzkra botnvörpuskipa hefir oft, og sum að staðaldri, viðskipti við erlenda botnvörpunga og nota til þess dulmál. Samkv. 3. gr. frv. virðist ekki skylda bera til að afhenda þessa dulmálslykla. Einnig hafa margir erlendir botnvörpungar umboðsmenn hér á landi og viðskipti við þá á dulmáli. Verður ekki séð, að umboðsmenn þessir séu skyldugir að afhenda dulmálslyklana, þar sem greinilega er tekið fram í fyrirsögn frv.: „og eftirlit með loftskeytanotkun íslenzkra veiðiskipa“, en erlend skip ekki nefnd eða umboðsmenn þeirra. Virðist oss hér opin leið fyrir hverskonar upplýsingar til íslenzkra skipa, er fara þyrftu á bak við eftirlitið með misnotkun eða notkun loftskeyta.

Það skal tekið fram, að nú sem stendur, og hefir það gilt frá því fyrst var farið að starfrækja loftskeytastöðvar, hafa íslenzkar skipastöðvar notað sérstök eyðublöð frá Landssíma Íslands fyrir öll viðskipti við strandastöðvar, og yfirleitt fyrir öll þau viðskipti, sem gjaldskyld eru“.

Þá benti form. F. Í. L. á, að með ákvæðinu um, að á hverju símskeyti, sem lagt er inn á landssímann til íslenzkra veiðskipa, skuli vera undirritað drengskaparvottorð sendanda, sé útilokað að nota bæjarsíma til að senda þessi skeyti, og að þá sé ennfremur svo komið, að loftskeytastöðin hætti að taka á móti skeytum í síma, en það hefir hún hingað til gert til mikilla þæginda fyrir alla hlutaðeigendur. En hér eftir, ef þetta frv. verður samþ., verður sú breyting á þessu, að öll skeyti til skipa verða að leggjast inn til landssímans, en það þýðir sama og það, að það er ekki hægt að senda þessi skeyti eftir að landssímanum hefir verið lokað, sem ég held, að sé kl. 9 að kvöldi. ég gæti vel trúað því, að það gæti oft komið sér illa fyrir þá, sem þurfa að skipta skeytum við skip sín, að geta það ekki eftir lokun landssímastöðva. En núna, og svo hefir það verið hingað til, getur sá, sem óskar að senda skeyti til skipa, sett sig í samband við loftskeytastöðina, lesið fyrir henni skeytið, sem þar er skrifað niður og sent áfram, ef sendandi á annað borð er skilamaður, sem trúað er fyrir að borga skeytið.

Íslenzkir loftskeytamenn benda líka á, að til þess að forðast allt þetta „skriveri“, sem verður æðiþunglamalegt í framkvæmdinni og tafsamt fyrir afgreiðsluna — og ég vil vekja athygli hv. frsm. meiri hl. á því —, þá megi, ef byggt er svo mikið á drengskaparvottorði á annað borð, láta hlutaðeigendur skrifa undir drengskaparvottorð í eitt skipti fyrir öll, m. ö. o. láta þá gefa drengskaparvottorð í eitt skipti fyrir öll, í stað þess að gera það 3–4 sinnum á dag. Þetta er ákaflega vel athugandi. Og sérstaklega ætti hv. frsm. meiri hl., sem leggur svo mikið upp úr þessum drengskaparvottorðum, að aðhyllast þetta. Mér hefir skilizt, að það væri ekki verið að bera þetta frv. fram til þess að gera útgerðarmönnum erfiðara fyrir, heldur til að girða fyrir landhelgiveiðar. Og ef hv. frsm. meiri hl. heldur, að þessi lögkúgaða yfirlýsing hafi nokkurt gildi, þá er það ekki einu sinni nægilegt að láta hlutaðeigendur gefa þessa yfirlýsingu einu sinni fyrir allt, um að þeir skuli ekki misnota loftskeytin, heldur ætti þá bara að lata skipstjórana gefa yfirlýsingu um það í eitt skipti fyrir öll, að þeir skuli bara aldrei veiða í landhelgi. Og þá er óþarft að samþ. þetta frv. frá sjónarmiði hv. frsm. meiri hl., og varðskipin ættum við þá að geta sparað líka.

þetta er rökrétt afleiðing af því, setu hv. meiri hl. heldur fram um mikilvægi þessara drengskaparvottorða, því að hann segir á einum stað í nál. sínu, að þessi löggjöf sé „einu tiltæka ráðið til að draga úr landhelgibrotum og verja til nokkurrar hlítar landhelgisvæðið“. Og sjálfur hefir hv. frsm. meiri hl. játað, að aðalþráðurinn í uppistöðu þessa eftirlitsvefs sé drengskaparloforð. Þegar hann því heldur því fram, að þetta sé eina ráðið, sem dugi, og eini máttarviðurinn í þessu frv., þá er það rökrétt ályktun, ef þetta er rétt, að þá er bezt að binda varðskipin við garðinn og láta svo þetta frv. sofna svefninum langa, ef bara allir skipstjórar skrifi undir drengskaparvottorð um að veiða ekki í landhelgi ! Úr því að hv. frsm. meiri hl. leggur svona mikið upp úr þessu drengskaparvottorði, þá virðist þetta frv. vera alveg óþarft. Minni hl. hefir aftur á móti bent á, að það sé alls ekki einhlítt ráð að samþ. þetta frv. gegn landhelgiveiðum, og sérstaklega ekki gagnvart þeim, sem hafa hug á að beita sér í því að misnota loftskeyti til landhelgiveiða, því að þeir geta alla vega farið í kringum það, svo það kemur ekki að nokkrum notum.

Ég skoða það satt að segja svo, að þetta mál séu upplagðir keipar úr hæstv. dómsmrh. um að knýja fram þessa löggjöf, sem er hégómi frá upphafi til enda En það er annað, sem er varhugavert í þessu máli, þegar menn taka eins djúpt í árinni og gert er í nál. meiri hl., þar sem sagt er, að þetta sé „eina tiltæka ráðið til að verja landhelgisvæðið“. Þá mætti segja, að löggjafinn, ef hann samþ. þetta frv., geri ráð fyrir — eða a. m. k. þeir menn, sem líta svo á, að þetta sé svo einfalt mál, að þeir halda, að þetta frv. geri þetta mikla gagn, sem þeir halda fram, að það geri —, að öll landhelgigæzla sé óþörf og að stj. þá byggi á þessum lagastaf og verði ennþá sljórri framvegis en nú um landhelgigæzluna. Því að það er vitað, að landhelgigæzlunni hefir stórhrakað hin síðari árin og er komin í hið mesta niðurlægingarástand undir stjórn hæstv. núv. dómsmrh. og orðin svo léleg, að það hlýtur að vera barnaleikur einn fyrir innlenda og útlenda togara að fara í landhelgina eftir vild. Það er sjaldan úti nema 1 af íslenzku varðskipunum eða þá ekkert, og um dönsku skipin vita allir, hvaða gagn er af þeim.