01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í C-deild Alþingistíðinda. (3895)
16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa
Forseti (JörB):
Ég get ekki séð, að það skipti nokkru máli, hvort málið er afgr. í kvöld eða fyrri partinn á morgun. Ég hefi lofað, og mun standa við það, að taka það sem fyrsta mál á dagskrá á morgun. En ég get borið það undir hv. þm.; þó að ég þurfi þess ekki, hvort þetta mál skuli nú tekið fyrir. En ég bjóst við, að hv. flm. till. og þeir, sem hans mál vilja styðja, mundu vilja sætta sig við þessi málalok. (ÓTh: Ég óska eftir nafnakalli um þetta). Hv. þm. getur ekki verið alvara með það.