01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í C-deild Alþingistíðinda. (3902)

16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa

Ólafur Thors:

Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því, að 7 af þeim hv. þm., sem áðan notuðu þingmannsatkv. sitt til þess að bægja frá umr. mikilsvarðandi máli, í því skyni að fá nú þetta grínfrv. til umr., eru nú hlaupnir út úr d. Ég vildi fara þess á leit við hæstv. forseta að hafa manntal í d., til þess að komast að raun um, hvort fundurinn er löglegur.