11.04.1932
Neðri deild: 48. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í C-deild Alþingistíðinda. (3963)
16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa
Jón Auðunn Jónsson [frh.]:
Á næturfundi, síðast þegar mál þetta var rætt hér í d., henti ég á nokkur atriði, sem mér þóttu varhugaverð við frv. Ég sé mér ekki annað fært en að endurtaka nokkuð af því, sem ég þá sagði, því að þá voru nálega engir á fundi, og hafa því fastir hv. þdm. hlýtt á mál mitt.
Ég benti þar á, að það væri varhugavert að fyrirskipa, að skip skyldu hafa loftskeytatæki. Ég vildi, að þar yrði einnig bætt við firðtalstækjum. Það er vitanlegt, að nú er svo komið, að erlend skip kjósa frekar firðtalstæki en loftskeytatæki; þau eru talin heppilegri til viðskipta milli skipa.
Þá hafa ýmsir bent á, að það er nær ógerningur fyrir loftskeytamennina að bókfæra öll þau skeyti, er milli veiðiskipa fara. Oft er það svo, þegar lítið aflast, að þá er nær allur sólarhringurinn notaður til að símast á milli veiðiskipa og reynt þannig að fá aflafréttir. Eins og félag loftskeytamanna hefir bent á í bréfi sínu, þá er þetta svo mikið starf, að nær ómögulegt er að anna því. Í bréfinu er talið, að á 10 mánaða veiðitíma ísl. skipanna fari um 850 þús. skeyti milli þeirra samtals. Það er því auðséð, að þetta ákvæði um bókun skeytanna er alveg óframkvæmanlegt.
Ennfremur er ákveðið í frv., að loftskeytastöðvum í landi og loftskeytamönnum varðskipanna skuli skylt að taka upp skeyti, sem fara milli veiðiskipanna innbyrðis. Það þarf sjálfsagt sérstakan mann á loftskeytastöðinni hér til að gegna því starfi. Nú er það svo, að skipin nota aðra bylgjulengd sín á milli en þar er notuð, og þarf því að hlusta á annari bylgjulengd. Það þarf því tvöfaldar vaktir, og leiðir þetta því sýnlega af sér mikla aukningu starfsfólks. Fyrir þá, sem sannfærðir eru um, að þetta komi að engum notum, eru það ekki meðmæli, að því fylgja óhjákvæmilega aukin útgjöld.
Í þessu sambandi vil ég minna á það, sem loftskeytamennirnir, sem þessum málum eru langsamlega kunnugastir allra manna, segja. Þeim farast svo orð í bréfi því, sem ég áður nefndi, „að svo framarlega sem menn á annað borð vilja hafa sig til þess að nota loftskeytatækin til ólöglegra veiða, mun hinu strangasta eftirliti með því veitast það erfitt, svo ekki sé sagt ómögulegt, að fyrirbyggja það; svo margvíslega má fara í kringum allt eftirlit“.
Þá er eitt atriði, sem ég vil benda á. Nú getur það komið fyrir eftir að búið er að skila símlykli, að eitthvað misritist í skeyti. Komi það fyrir, þá má strax segja, að það sé grunsamlegt, og þá hefir dómsmrh. þegar fengið það vopn í hendur að svipta viðkomandi útgerðarfélag leyfi til að nota loftskeyti. Vitanlega mundi hæstv. núv. dómsmrh. nota sér þetta fljótlega í sumum tilfellum. En lagasetning, sem slíkt hefir í fór með sér, er hreint ótæk, einkum þegar svo er jafnframt ástatt sem loftskeytamennirnir segja, að þetta komi að engum notum, ef menn á annað borð vilja fara í kringum lögin.
Annars er það vitanlegt, að eftir að eftirlitsskipum fjölgaði hefir lítið verið um landhelgiveiðar, enda er það ekki skynsamleg áhætta. Með fjölgun skipanna höfum við komið á svo öruggri gæzlu sem hægt er, svo framarlega sem við höfum ráð á að halda heim úti. Hitt er vitanlegt, að hin gífurlega misnotkun varðskipanna hefir mikið dregið úr nytsemi þeirra, og það er kaldhæðni örlaganna, að sá, sem mest hefir gert að því að misnota varðskipin og þar með spilla fyrir góðri gæzlu, ber fram þetta málamyndafrv. til að leiða athyglina frá sér, hinum stórseka manni, og, fái menn með þessu til að trúa, að hann sé saklaus. Aðferðin er sú sama og tíðkast hjá afbrotamönnum, þegar þeir hlaupa undan og hrópa sjálfir: „Grípið þjófinn,“ — til þess að leiða athyglina frá sér. Ég veit ekki, hversu margir hv. þdm. fast til að leika hlutverk hins auðtrúa almúga og taka þessu frv. vel.
Enn má nefna það, hvílík óþægindi það hefir í för með sér að eiga að gefa drengskaparvottorð í hvert skipti, sem skeyti er sent. Eins og allir vita, þá reyna útgerðarmenn að verða sér úti um allar þær upplýsingar um veiði, sem fáanlegar eru. Það er oft, að send eru 5–6 skeyti til sama skips á einum eftirmiðdegi. Skeytastöðinni hér er lokað kl. 9 á kvöldi, og þá er það venjan að hringja aðeins loftskeytastöðina upp og biðja fyrir skeytið. En með því að heimta skriflegt drengskaparheit í hvert skipti er fyrir það girt, að sú aðferð verði viðhöfð. Hinsvegar er það svo, að flestir togararnir hafa með sér félagsskap eða samband, sem í eru 3 –5 og allra mest 7–8 togarar. Þessir togarar gefa svo hver öðrum bendingar um aflabrögð og dreifa sér oft í því skyni og láta svo hver annan vita, þegar fiskur hittist. Stærsti ókosturinn við þetta frv. er, að það hlýtur að draga úr aflafeng togaranna. Nú má vera, að þeir menn eða sá maður finnist, sem ekkert kærir sig um það, að togararnir afli sem mest. En ég hygg þó, að allir hv. þm. þessarar d. muni vera sammála um það, að ekki beri að spilla afla togaranna að ástæðulausu. En það er alveg fyrirsjáanlegt, að svo verður í mörgum tilfellum, ef frv. þetta verður samþ. Ég vil því vona, að hv. dm., sem fengið hafa umsögn félags loftskeytamanna um, að frv. þetta muni ekki koma að neinum notum til verndar landhelginni, fari ekki að samþ. þetta frv.
Það er að vísu vitanlegt, að hæstv. dómsmrh. leggur á það ofurkapp að fá þetta frv. samþ. Ég veit ekki, hvers vegna hann gerir það, en ég býst þó við, að það sé í þeirri von, að hann nái betur til andstæðinga sinna og geti gert þeim óleik. — Ég hefi áður bent á það, að alltaf getur komið fyrir, að skeyti misritist. Þá er fengin ástæða til þess að gruna það skip um ólöglegar veiðar, og er þá samkv. frv. gefinn réttur til þess að svipta það notkun loftskeytatækja um óákveðinn tíma. —Nú hefir það verið svo og er enn, að langsamlegur meiri hl. þeirra brota, sem framin eru í landhelginni, eru framin af útlendingum. Er það líka eðlilegt, að svo sé, þegar á það er litið, að við höfum ekki nema 30–40 togara, en útlendu togararnir hér við land eru oft 10–15 sinnum fleiri. Auk þess fiska okkar togarar mest í salt, og er þá engin eða a. m. k. lítil ástæða til þess að fiska í landhelgi. En útlendu skipin fiska í ís allan ársins hring, og þá er ástæðan fyrir þá að fara í landhelgi alltaf jöfn, því að sá fiskur, sem er verðmestur sem ísfiskur, heldur sig einatt innan landhelginnar. Jafnvel þótt íslenzku togararnir sýndu eins mikla viðleitni til að fiska í landhelgi eins og þeir útlendu, þá yrðu þó brot þeirra sjálfsagt 10 sinnum minni en þeirra útlendu, af þeim ástæðum, sem ég nú hefi lýst. En eftirlit með loftskeytanotkun hinna útlendu togara er ekki hægt að framkvæma, eins og hér er farið fram á, að gert verði við íslenzku togarana. Eins og á hefir verið minnzt hér áður, þá er óhjákvæmilegt að fjölga loftskeytamönnum að miklum mun, til þess að framkvæma þetta eftirlit. Eru ríkissjóði því bókuð stór útgjöld alveg að ástæðulausu og án allrar nauðsynjar eins og sýnt hefir verið. En með þessu fást nýjar stöður, og fer frv. að því leyti í sömu átt og annað það, sem kemur frá hæstv. dómsmrh., sem miðar allar sínar till. og frv. við það að skapa sér möguleika til að skipa menn í nýjar stöður og ný embætti og auka með því málalið sitt og koma skoðanabræðrum að ríkissjóðsjötunni.