11.04.1932
Neðri deild: 48. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í C-deild Alþingistíðinda. (3967)

16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa

Jón Auðunn Jónsson:

Hæstv. dómsmrh. sagði út af skeytaskoðuninni, að nægilegt væri að gera nokkrar „stikkprufur“. En ef framkvæmd laganna á að vera þannig, eru öll ákvæði frv. að engu gerð. Án strangra framkvæmda er frv. til einskis. Til að gera „stikkprufur“ þarf engan sérstakan lagabálk. Lögin frá 1917 heimila slíkt fullkomlega, og þar með er þá grundvöllurinn undir frv. alls enginn, ef framkvæmd þess á að vera með þeim hætti. Hæstv. dómsmrh. hefir séð, hve ófært var að ætla sér að framkvæma eftirlitið eftir fyrirmælum frv. og fer því nú að slá af.

Hv. 1. þm. S.-M vil ég svara því, að sé svo, að hann treysti svo mjög á drengskaparvottorð sem hann lætur, þá ætti slíkt vottorð í eitt skipti fyrir öll að vera jafngott. Gagnið af drengskaparvottorðinu ætti að vera hið sama og áður, en hinsvegar ekkert að missast af hinu mikla gagni, sem af loftskeytunum leiðir, eins og óhjákvæmilega hlyti að verða, ef menn þyrftu að gefa skrifleg eiginhandarvottorði hvert skipti. Vænti ég, að hv. þm. athugi þetta til 3. umr. og komi þá með breytingu í þessa átt.

Mér fannst kynlega við bregða, þegar hæstv. dómsmrh. ætlaði að fara að láta menn trúa, að hann bæri landhelgigæzluna fyrir brjósti, maður, sem jafnmikið hefir misnotað varðskipin og hann. Munurinn á honum og Jóni heit. Magnússyni er í þessu sem flestu öðru eins og svart og hvítt. Ég get nefnt það sem dæmi, að einu sinni í stjórnartíð Jóns Magnússonar kom varðskipið inn á Ísafjörð til fá sér vatn. Ég þurfti þá sem útibússtjóri að komast til Dýrafjarðar, en tími var naumur og ill færð á landi. Ég hringdi til Jóns Magnússonar og spurði, hvort skipið mætti setja mig á land á Dýrafirði, t. d. í Haukadal. J. M. lagði bann við því og sagði, að er skipin færu úr höfn, mættu þau ekki láta vita, hvert ferðinni væri heitið, nema líf manns eða heilsa lægi við.

Mér er kunnugt um, að hann neitaði um hið sama í brýnum tilfellum.

Hæstv. dómsmrh. var að tala um brotahneigð manna, þ. e. tilhneiging manna til að brjóta landhelgilögin. Ég hefi nú bent á það, að skip það, sem ég hefi veitt forstöðu, hefir ekki verið grunað um að brjóta landhelgilögin, svo að ég hefi ekki ástæðu til að torvelda, að aðrir, sem veiða í landhelgi, verði sektaðir. Ráðh. má trúa hverju, sem hann vill um það, að Bolvíkingar, Hnífsdælingar eða aðrir álíti, að þetta frv. verði til að bæta landhelgigæzluna. Þeir eru áreiðanlega of skynsamir til að hafa trú á slíku. Ég get staðið upp kinnroðalaust og sagt mínar skoðanir á þessu máli sem öðrum. (ÓTh: Ber hv. þm. ekki kinnroða fyrir hæstv. dómsmrh?). Ég vil ekki taka það að mér. Ég yrði þá víst nokkuð rauður í framan.

Hið eina, sem hjálpað getur til þess að halda veiðiskipunum utan landhelginnar, er að nota þau varðskip, sem til eru, til landhelgigæzlu og ekki annars, og bæta við þau, þegar fjárhagurinn leyfir. Það hefir heyrzt úr herbúðum stj., að henni þætti kostnaðurinn við varðskipin vera orðinn of mikill. En nauðsynin á ströngu eftirliti er svo mikil, að við megum ekki láta blekkjast af slíku, heldur halda fast á malinu og slaka hvergi til. Það margborgar sig, a. m. k. í framtíðinni.

Hæstv. dómsmrh. virtist vera fús til breytinga á frv. Ég vildi því vænta, að hann vildi gera þá breyt. á 6. gr., að eftirlitið með loftskeytasendingum yrði falið landssímastjóra, því að með heim hætti væri það í höndum þeirra manna, sem ekki myndu misbeita valdi sínu til hefnda á stjórnarandstæðingum. Eftirlitið yrði betur rækt, ef það væri falið ópólitískri skrifstofu, en að henda því í dómsmrn., þ. e. dómsmrh., til þess að gefa honum ástæðu til að beita ákvæðum 6. gr. frv. gegn einstökum skipstjórum og útgerðarmönnum. Ég skildi ekki, hvað hæstv. dómsmrh. átti við, þegar hann var að tala um ofbeldisaðgerðir til að hindra framgang þessa máls hér á þingi. Mér þykir líklegast, að þetta sem fleira sé sprottið af þeirri sjúklegu tortryggni, sem hann jafnan ber í brjósti. Hinsvegar má búast við, að hann haldi, að hann og stj. geti hrundið mönnum til ofbeldis með því að halda fyrir heim rétti þjóðarinnar í stærsta mali, sem fyrir þinginu liggur. En hann og stj. mega sjálfum sér um kenna, ef svo ógæfusamlega skyldi til takast.

Ef framkvæmd laganna á að verða sú, sem hæstv. dómsmrh. benti til og gerði ráð fyrir, sem sé „stikkprufu“-aðferðin, þá er vist, að það má framkvæma með reglugerðinni frá 1917. Hið eina, sem ekki væri hægt að ná með henni, væru þau ákvæði 1. gr., að öll botnvörpuskip hefðu loftskeytatæki. En ég er sannfærður um, að réttara væri að breyta því ákvæði og fyrirskipa, að botnvörpuskip skuli hafa loftskeytataki eða firðtalstæki. Ég er sannfæður um, að eftir nokkur ár, eða jafnskjótt og útgerðin hefði ráð á því, verða firðtalstæki tekin upp. Rekstur þeirra er miklu auðveldari og við þau þarf ekki lærða menn. Ég ætla, að hver maður, sem hefir einu sinni eða tvisvar notað þau tæki, kunni með þau að fara eins og talsímatæki á landi.

Í 4. gr. er gert ráð fyrir, að loftskeytastöðin í Rvík og aðrar strandstöðvar og loftskeytamenn á landhelgigæzluskipum hlusti á skeytasendingar milli veiðiskipa. þetta verður ekki hægt nema með stórauknu mannahaldi. Nú senda veiðiskipin skeyti sin á annari bylgjulengd en landstöðvarnar, og þarf því sérstakan mann á loftskeytastöðina og landstöðvarnar, ef hægt á að vera að hlusta á báðum bylgjulengdum. Ef ráðherra aftur, að þetta frv. sé vorn í landhelgigæzlumálinu, vill hann auðvitað hafa eftirlitið sem strangast. En eigi framkvæmdin að vera eins og hann drap á aðan, er frv. alveg gagnslaust. Og a. m. k. er drengskaparvottorð við sendingu hvers skeytis óþarft.

Hv. 1. þm. S.-M. sagði, að menn yrðu því dómbærari, sem þeir yrðu eldri. Þetta getur verið í mörgum tilfellum. Ég býst við, að dómgreind hans í þessu máli aukizt við það, að það verði ekki afgr. nú, heldur frestað, og ef dæma má eftir hans eigin rökfærslu um vaxandi dómgreind með hverju ári, ætti hann að sjá alvarleg missmíði á frv. eftir 1–2 ár. — Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, ne.ma eitthvað sérstakt komi fram.