13.04.1932
Neðri deild: 50. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í C-deild Alþingistíðinda. (3972)
16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa
Frsm. minni hl. (Jóhann Jósefsson):
Hv. frsm. meiri hl. komst svo að orði í síðustu ræðu sinni, upphafi hennar, að honum hætti of mikil viðhöfn fyrir sig, að svara minni hl. Má af þessu marka, að þessi gamli og reyndi þm. finnur ekki litið til sín, þegar hann lætur ljós sitt skina her. Á endanum fór það þó svo, að hann svaraði ekki eingöngu því, sem við í minni hl. n. höfðum haldið fram, heldur einnig því, sem við höfðum aldrei haldið fram, þegar fram í sótti ræðuna.
Hv. þm. sagði, að ég hefði verið að gera gys að sínum gráu hárum. Það hefi ég aldrei gert, og hlýtur því að vera um misheyrn eða misskilning að ræða hjá hv. þm. Ég hefi aldrei lagt það í vana minn að gera gys að mér eldri og reyndari mönnum, og mun aldrei gera. Hitt er öðru máli að gegna, þótt framkoma hans í þessu máli verði að einhverju leyti gerð brosleg, einkum þegar þess er gætt, sem hann sjálfur sagði, að hann með aldrinum hefði aukið reynslu sína og fróðleik fram yfir sér yngri menn. Þegar ég viðurkenni, að þetta muni vera rétt, þá er framkoma hv. þm. í þessu máli vægast sagt brosleg. Hann talaði um það, hvað okkur minni hl.mönnum hefði farizt illa í þessu máli, þar sem við hefðum gert ráð fyrir því, að drengskaparvottorð, sem á að þvinga fram, gætu verið brotin. Hv. frsm. meiri hl. fannst óviðeigandi af okkur að gera ráð fyrir því, að slíkt gæti átt sér stað. Það lá meira að segja við, að hann kæmist í hrifningu, þegar hann var að útmála þennan drengskap, sem við vildum ekki viðurkenna. Ég vil nú minna hv. þm. á það, að sú stj., er hann styður, hefir gefið út rit nokkurt á kostnað alþjóðar, sem nefnt hefir verið „Verkin tala“. Í því riti er það borið á brýn stórum hluta gjaldþegna, að þeir svíki drengskaparorð sitt í sambandi við skattamálin. Þetta er borið þar á heila stétt manna. Stj. hv. þm. ber vitanlega ábyrgð á slíkum ummælum, og munu málaferli hafa hlotizt af. Í þessum hóp manna, sem þar um ræðir, munu líka vera sumir þeir útgerðarmenn, sem hv. frsm. meiri hl. vill nú ekki heyra nefnt, að brjóti sitt drengskaparorð. Þetta stingur nokkuð í stúf við það, sem stj. hans heldur fram í umgetinni bók. Ég vil nú að vísu ekki halda því fram, að þetta sé eins og þar er sagt, heldur þvert á móti. En þeir, sem hafa átt sinn þátt í að stuðla að því, að sú bók væri gefin út og dreift um allt land á kostnað alþjóðar, ættu ekki, ef þeir vilja vera samkvæmir sjálfum sér, að byggja á þeim drengskaparvottorðum, sem þvinguð eru fram, er hv. frsm. meiri hl. þykir rétt að gera og sagði, að þyrfti að gera. Því fer vitanlega fjarri, að við, sem þó gerum litið úr þeim siðferðisáhrifum, sem það hefir í för með sér að heimta slík vottorð hvar sem er, því fer fjarri, að við, sem álítum þetta rangt, trúum ekki mörgum útgerðarmönnum til að halda þetta. Það eru vitanlega til margir útgerðarmenn og skipstjórar, sem aldrei fiska í landhelginni og aldrei vilja fiska þar. Þeir virða lögin nú þegar, og það mundi vitanlega í engu breyta hugsunarhætti þeirra, þótt þeir yrðu að skrifa undir slík drengskaparvottorð 10 sinnum á dag. En hitt er víst, að til eru þeir skipstjórar, bæði innlendir og útlendir, sem brjóta landhelgilögin, þegar þeir geta og sjá sér hag í því. Og minni hl. heldur því fram, að þeir menn verði ekki beizlaðir, þótt þeir séu látnir skrifa undir drengskaparvottorð. Minni hl. hefir engan þátt átt í útgáfu bókarinnar „Verkin tala“, með öllum hennar ósæmilega og svívirðilega áburði á landsmenn. En við höfum þá þekkingu til að bera, að við vitum, að meðal útgerðarmanna eru til menn, sem ekki þarf að þvinga. Stóryrði frsm. meiri hl. breyta engu í þessu máli. Ég hélt, að hann mundi geta kannazt við, að of miklar ógnanir í þessu efni gætu jafnvel haft gagnstæðan árangur við það, sem til er ætlazt.
Hv. frsm. meiri hl. hefir ekki borið fram og meiri hl. n. vildi ekki ganga inn á neinar breyt. á 6. gr., en óðar en hæstv. dómsmrh. minntist á, að sér fyndist, að breyta mætti gr., þá var hv. frsm. líka á þeirri skoðun. Þetta sýndi mér það, sem ég raunar vissi áður, að hv. frsm. er ekkert annað en auðsveipt verkfæri í höndum hæstv. dómsmrh., til að þjóna þeim málstað, sem hæstv. ráðh. heldur fram, hver sem hann er. Þetta mun hafa verið svo um langt skeið, að þessi virðulegi og margreyndi þm. hefir gengið á mála hjá hæstv. dómsmrh. hvað skoðanir snertir, alla tíð síðan þessi hæstv. ráðh. „leiddi hv. þm. upp á hátt fjall“ austur í Fljótsdalshéraði og sýndi honum allt veldi Framsóknar, sem þeir í sameiningu gætu notið. E. t. v. rekur hv. þm. minni til þess.
Hæstv. ráðh. er hér ekki viðstaddur fremur en vant er; hann skortir alltaf kjark til að hlusta á, þegar þetta frv. hans er tætt í sundur, eins og ég gerði í minni fyrri ræðu. Hann hefir aftur á móti verkfæri í hendi sér, sem hann hefir nú beitt, að skera umr. niður. Ég verð nú samt, þó að hann sé ekki við, að svara nokkrum atriðum í ræðu hans.
Hann sagði, að við íhaldsmenn, sem hann nefndi svo, hefðum tafið þetta mál með löngum ræðum. Það er ekki nýtt hér á þingi, að þeim, sem í minni hl. eru, sé borið það á brýn og brigzlað um það af hinum volduga meiri hl., þegar þeir nota þingmannsréttinn til að tala um málin, að þeir séu að tefja tímann. Það er eins og meiri hl. áaliti, að hann beri ekkert fram nema það, sem sjálfsagt er að samþ., og það orðalaust. Hæstv. dómsmrh. fer hér eins og vant er með rangt mál, þegar hann segir, að minni hl. sé hér að beita ofbeldi. Það er ekki svo óskynsamlegt að segja, að minni hl. beiti ofbeldi við meiri hl.! Ég vil spyrja: Hver hefir beitt ofbeldi í þessu máli? Það er einmitt hæstv. dómsmrh. með aðstoð flokks síns. Þegar málið var hér síðast á dagskrá, var það 12. mál. Á kvöldfundinum þá, kl. rúmlega 10, þegar fundur hafði staðið allan daginn, var búið að afgr. 3 málin á dagskránni. Þá notar hæstv. dómsmrh. aðstöðu sína þannig, að hann þrýstir forseta til að hlaupa yfir öll málin frá 3. máli allt til 12. málsins og taka fyrir þetta frv. Þegar þessu var svo mótmælt af okkur, sem í minni hl. vorum, þá samþ. flokkur hæstv. ráðh. þessa aðferð. Ég tek þetta aðeins fram til að sýna, hver það er, sem hér beitir ofbeldi. Annars ætla ég hvorki í þessu máli né öðrum að biðja hv. framsóknarþm. neinnar afsökunar, þó að ég tali hér um einhver áhugamál þeirra. Ég geri þar ekki annað en það, það, sem skyldan býður mér, að benda á þá ágalla, sem eru á málunum, og þá sérstaklega þau mál, sem viðkomandi eru þeirri n., sem ég er í, nefnil. sjútvn. Það hefir verið svo að undanförnu, að við stjórnarandstæðingar höfum verið hin síáklagandi samvizka fyrir hæstv. núv. stj., og ég tel það starf ekkert eftir mér, meðan ég á sæti hér á þingi.
Hæstv. ráðh. kom með sína gömlu sögu um Ágúst Flygenring, hv. þm. Borgf. og ýmsa fleiri menn, sem á undanförnum árum hefðu talað máli bátaútvegsins og sýnt, hve miklu tjóni þessi atvinnuvegur yrði fyrir af togaraútveginum. Það er satt, að á undanförnum árum hefir bátaútvegurinn orðið fyrir þungum búsifjum af togurum, ekki síður útlendum en innlendum. En það er alls ekki víst, að slíkar ákúrur séu á öllum tímum jafnréttmætar. Þó að þau sterku orð Ágústs Flygenrings um þetta hafi ef til vill verið réttmæt á þeim tíma, þegar þau voru sögð, þá er alls ekki þar með sagt, að þau eigi við nú. Það vita allir, að hæstv. dómsmrh. er ekki að þessu af umhyggju fyrir sjávarútveginum. Honum er sama um sjávarútveginn, nema þegar hann getur komið með einhver ummæli frá útvegsmönnum, er hann getur útfært þannig, að það gæti orðið til að kasta skugga á þessa stétt í heild sinni, og þó einkum togaraútgerðarmenn.
Þá var það næsta hlægilegt, þegar hæstv. ráðh. var að tala hér um það, að hann hefði tekið á þessu með mildi, og eru það þá víst stjórnarandstæðingar, sem orðið hafa fyrir þessari „mildi“ hjá hæstv. ráðh. Hann er því vanastur, þessi hæstv. ráðh., að taka á málstað andstæðinganna með mildi! Nei, mildi hans hefir komið niður á öðrum en okkur stjórnarandstæðingum. Hv. þm. G.-K. hefir bent á eitt dæmi, hvernig hæstv. ráðh. notar vald sitt, þar sem hann hindraði það, að áfrýjað yrði dómi, sem fallið hafði á ritstjóra Tímans fyrir meiðyrði, og mætti nefna mörg dæmi þessu lík, t. d. þegar einn flokksmaður hæstv. ráðh. norður í landi var dæmdur í sekt fyrir að hafa skrifað undir svívirðilegustu illyrði um prestinn sinn, kallað hann þjóf, lygara og manndrápara. Hvað gerði ráðh. við þennan mann? Hann gerði sér lítið fyrir og náðaði hann, svo að hann þyrfti ekki að greiða sektina, og ástæðan til þess var vitanlega engin önnur en sú, að maðurinn var þægur flokksmaður hæstv. ráðh. Það er því sýnt, að hæstv. ráðh. hefir til mildi.
Hv. þd. hefir álitið, þegar hún samþ. að skera niður umr. um þetta mál, að rétt væri að sýna ráðh. mildi og forða honum undan okkur minnihl.mönnum. Hv. þm. hefir fundizt, að bæði hann og aðrir forsvarsmenn þessa frv. væru nú þegar búnir að fá nóg af ádeilum fyrir þetta frv. A.m.k. virðist það vera svo með hæstv. ráðh., þar sem hann flýr d. í hvert skipti, sem þetta frv. hans er tekið til umr. Og þeir hafa líka vitað, að flokksmenn hans treysta sér lítt til, að verja ýmsar gr. frv. Þess vegna leiðist þeim að heyra okkur andstæðinga frv. rífa það í tætlur, og þess vegna hafa þeir sýnt ráðh. þessa mildi. Við stjórnarandstæðingar höfum ekki orðið varir við mildina í okkar garð, enda þurfum hennar ekki með.
Hæstv. ráðh. sagði, að í sinni ráðherratíð hefði hann þurft að fría varðskipstjóra frá þeim áburði, að hann hefði reynt að hylma yfir landhelgibrot. Hér mun vera átt við þann áburð, sem borinn var á Jóhann P. Jónsson, sem er skipstjóri á Óðni. En það fer fjarri því, að hæstv. dómsmrh. hafi þar hlaupið undir bagga. Þeir, sem bjuggu til þessa ósönnu sögu, urðu sér til minnkunar, eins og við var að búast, þar sem Jóhann P. Jónsson er mesti sóma- og heiðursmaður, og því trúði enginn heim óhróðri, sem á hann var borinn í Alþýðublaðinu og víðar. Hæstv. dómsmrh. reyndi ekkert að bera þessar ófremdarsögur af skipstjóra.
En það er annarsstaðar, sem hæstv. ráðh. hefir nóg að gera að bera ásakanir af yfirmanni varðskips. Á ég þar við skipstjórann á Ægi, sem orðið hefir fyrir þungum ásökunum, eins og ég gat um í fyrri ræðu minni. Þar mun hæstv. ráðh. hafa nóg að vinna, að halda uppi málstað þess skipstjóra.
Hæstv. dómsmrh. sagði, og sömuleiðis hv. frsm. meiri hl., að drengskaparheitið væri meginþáttur þessa frv. Þessi yfirlýsing hljómar einkennilega í eyrum manna, þegar hún kemur frá manni eins og hæstv. dómsmrh., sem hefir borið þessa stétt mestum rógi af öllum stéttum þessa lands. Nú býr hann til löggjöf, þar sem eingöngu er byggt á drengskap þessara manna, sem hæstv. ráðh. hefir árum saman vítt í ræðu og riti fyrir svik á ýmsum sviðum, skrílsæði og fleira þessháttar. Fyrst hann leggur svona mikið upp úr drengskap þessara manna, þá játar hann þar með, að allur sá óhróður, sem hann hefir borið, á útgerðarmenn, sé tilhæfulaus uppspuni.
Það var dálítið óljóst, sem hæstv. ráðh. sagði um þessar njósnir, sem upp hefðu verið teknar, en eftir því, sem mér skildist á honum, þá hefir hann þó komið því af stað að halda uppi njósnum um togara í veiðistöðvum. Hann mun líka hafa sett mann hér í Rvík til að hlusta, en vill ekki gefa upp, hver hann er, og ekki vill dómsmrn. kannast við hann, en svo mikið er víst, að þetta hefir engan árangur borið. Er ekki ólíklegt, að þessi hlustarastarfsemi muni bera samskonar árangur og þefarastarfsemin hér um árið, sem varð til þess, að öll samúð hvarf með bannlögunum og framkvæmd þeirra. Eins mun fara um þetta. Njósnir um togara, eins og hæstv. dómsmrh. vill hafa þær, verða til þess eins, að menn fá andúð gegn landhelgivörnum, því að þar á ekki að byggja á því, samkv. kenningu ráðh., að halda varðskipunum úti til strandvarna, sem er það eina, sem dugir, heldur á að setja hvern til höfuðs öðrum og hafa hlustara í veiðistöðvunum, og er sú aðferð næsta andstyggileg og ekki líkleg til að leiða af sér meiri virðingu fyrir lögunum en sterkt lögreglueftirlit, sem ætlazt er til, að varðskipin hafi á hendi.
Sennilega er það fyrir áhrif einhverra manna úr flokki hæstv. ráðh., að það hefir hvarflað að honum, að 9. gr. sé ekki sem heppilegust, og stakk hann upp á að breyta henni eitthvað. En við, sem hofum gagnrýnt þetta frv., höfum sýnt fram á, að með 6. gr. er dómsmrh. gerður ákærandi, rannsakari og dómari yfir útgerðarmönnum. Hann þarf ekki annað en að láta einhvern segja — eða segja það bara sjálfur —, að líkur séu til, að einhver togari misnotaði skeytasendingar, og þá heimilar 6. gr. að láta hann verða fyrir refsingu með því að setja hann undir eftirlit.
Nú segir hæstv. ráðh., að hann geti gengið inn á það, að þessi refsing eigi ekki að verða gild, nema samþykki sjútvn. komi til. Líkt ákvæði er í l. frá 1928, þar sem svo er ákveðið, að útgerðarstjóri ríkisskipanna megi segja yfirmönnum upp, ef sakir eru fyrir hendi, en þó verði áður að fá þar til samþykki meiri hl. sjútvn., og að því er hæstv. ráðh. segir, þá vill hann, að samskonar fyrirkomulag verði haft um það, hvort útgerðarmenn skuli settir undir eftirlit hvað skeytasendingar snertir. En ég vil í fyrsta lagi minna á það, að með samþykkt þessara laga verða þeim, sem vilja senda skeyti til togara, gerðar þungar búsifjar, sem ég veit ekki, hvort aðrir hafa tekið eftir, hversu þungar eru. Svo er ætlazt til, að í hvert skipti, sem send eru skeyti til togara, verði að gefa um þau æru- og samvizkuvottorð. Til þess verður sendandi sjálfsagt að koma á símastöðina og afhenda skeytið, svo að símaþjónar sjái, að undirskriftin sé rétt. En það þýðir aftur það, að þessi skeyti verða aðeins afhent þegar símastöðin er opin, en 1. flokks stöðvar eru opnaðar kl. 8 og lokað kl. 9 á kvöldin, svo að frá kl. 9 síðd. til 8 árd. næsta dag getur engin skeytaafhending farið fram á símstöðinni sjálfri. Hingað til hefir það verið svo, að þeir, sem hafa viljað senda skeyti til togara, hafa sent þau símleiðis á loftskeytastöðina, og hún síðan sent þau, en sendandi borgað þau síðar ásamt öðrum símareikningum. Allir vita, að það er engu síður nauðsynlegt að geta sent togurum skeyti á nóttu heldur en degi. En ef þetta frv. verður samþ., þá virðist mér loku skotið fyrir, að hægt sé að afhenda skeyti eftir að landssímastöðin er lokuð. Ég geri sem sé ráð fyrir, að þessir menn, sem allt leggja upp úr drengskaparheitinu, láti sér ekki nægja t. d., að ég sendi skeyti heiman frá mér símleiðis, og gefi þetta samvizkuvottorð aðeins í símanum, heldur verði ég að fara sjálfur á stöðina og gefa drengskuparvottorðið þar skriflega. En eins og gefur að skilja, er það ekki mögulegt nema á þeim tíma, sem stoðin er opin, og virðist ótrúlegt, að Alþingi geti sýnzt það sanngjarnt, að bannað sé á þennan hátt að senda skeyti frá kl. 9 að kvöldi til kl. 8 næsta morgun.
Það hefði þótt ótrúlegt, að hæstv. dómsmrh., sem í bókinni „Verkin tala„ hefir úthrópað útgerðarmenn fyrir skattsvik, en skattskýrslur eru sem kunnugt er gefnar upp á æru og samvizku, að hann skuli mi byggja allt á drengskap þessara manna. Þetta gerir hann nú samt, og eru það gleðileg sinnaskipti hjá hæstv. ráðh. Það er svona, að kreppan er þó til nokkurra hluta nytsamleg. Það er ef til vill hún, sem hefir verkað svona á heila hæstv. ráðh., að hann hugsar nú öðruvísi til útgerðarmanna en hann hefir gert á undanförnum árum. Hann veit, að á þessum erfiðu tímum ríður mikið á, að útgerðin geti borið sig, og því áriðandi, að þeir, sem að henni standa, njóti þeirrar verndar, sem þeim ber að réttu, því að það eru þeir, sem nú bera langmest af útgjöldum landsins.
Hæstv. ráðh. var að tala um, að hér væru einhverjir í d., sem hefðu breitt yfir nafn og númer, og hefir þar sjálfsagt átt við andstæðinga malsins. En ég held, að óþarft sé að bera okkur á brýn, að við höfum látið uppi annan hug en við berum til frv. Við höfum haldið fram og sannað, að það væri gagnslaust með öllu, en hinsvegar til ama og óþæginda og til niðurdreps virðingu fyrir lögunum. En hæstv. ráðh. er að burðast hér með frv., sem hann alls ekki trúir á, og væri því nær að segja, að hann hefði breitt yfir nafn og númer.
Eins og ég hefi minnzt á áður, vill hæstv. ráðh. koma upp nýjum hæstarétti til að dæma í þessum málum. Það er sjútvn., sem á að skipa þennan hæstarétt. Þótt gert væri nú ráð fyrir því, að sjútvn. vildi vera réttlátur dómstóll, væri rétta allsendis ónóg. Fyrst og fremst má gera ráð fyrir, að upplýsingar þær, sem n. bærust, yrðu meira og minna litaðar. Og svo kemur annað til greina. Setjum nú svo, að hæstv. ráðh. hafi fengið upplýsingar eða þykist hafa fengið upplýsingar, sem gefi honum tilefni til að setja útgerðarstjórn undir eftirlit það, sem frv. ætlast til, og baki þar með útgerðarfélögum tjón og flekki mannorð þeirra, sem að því standa. Við skulum hugsa okkur, að þetta gerist í maímánuði. Nú á sjútvn. að fella úrskurð í máli þessu. Það getur hún ekki fyrr en á næsta þingi, og þannig gætu liðið allt að 8 mánuðir, og allan þann tíma getur ráðh. beitt ákvæði 6. gr. Það er því allsendis ónóg að áfrýja til sjútvn. eftir að sú réttarskerðing, sem eftirlitið hefir í fór með sér, hefir staðið í marga mánuði.
Í öðru lagi vil ég benda á, að hv. sjútvn. er ekki bær að dæma um þessi mal. Hana brestur alla þekkingu til þess að dæma um, hvort í „coda“-skeyti felst annað en það, sem í fljótu bragði virðist:
Í þriðja lagi er til nokkur reynsla um það, hvernig sjútvn. hefir gefizt sem dómstóll. Samkv. lögum frá 1928 á sjútvn. að vera afrýjunardómstóll í ágreiningsmálum milli starfsmanna varðskipanna og hins opinbera. Sjútvn. hefir einu sinni verið kvödd til úrskurðar út af brottvikningu tveggja starfsmanna á varðskipunum, og meðferð hennar á því máli er ekki til að vekja traust á n. sen: dómstóli né heldur á dómstjóra, hennar, hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ: Hv. þm. notar sér, að búið er að skera umr. niður). Ég á enga sök á því, að hv. 1. þm. S.-M. og flokksbræður hans hafa neitað frekari umr. um málið með því að neyta afls atkv. Hann getur átt við sjálfan sig um þetta. Ég tel rétt að rifja þetta upp, því að það getur verið athugunarvert fyrir þá menn, sem vilja láta þingið vera með nefið niðri í öllu.
Tveir stýrimenn á varðskipunum, Jens Stefánsson 2. stýrim. á Ægi, og Haraldur Björnsson 3, stýrim. á Óðni, voru bornir heim sökum, að þeir hefðu ekki viljað hlýðnast að fara á milli skipa og var sagt upp stöðu sinni af Ríkisútgerðinni. Þetta mál var svo lagt fyrir sjútvn., eins og lög mæla fyrir. Annar þessara manna hefir þungt heimili og fyrir börnum að sjá, og af skjölum þeim, sem fram hafa komið í malinu, virðist mér ljóst, að þeir hafi verið bornir röngum sökum. Um annan þessara manna, Jens Stefánsson, er það að segja, að hann varð fyrir svo þungri aðbúð af hálfu skipstjórans á Ægi, að hann neyddist til að segja upp stöðu sinni áður.
Nú sezt sjútvn. á rökstóla, og var tíminn valinn þannig, að þm. Vestm. var fjarverandi í ferð til Eyja og þm. Barð. veikur, en þeir eiga báðir sæti í n., og vissi n. um forföll beggja. Samþykkti n. svo með 4 atkv. gegn 2 ( hv. þm. N.Ísf. og 1. þm. Reykv.) að staðfesta brottvikninguna. Þetta samþ. framsóknarmennirnir fjórir, enda þótt tveir greiddu atkv. á móti og tveir væru fjarverandi, en lögin mæla hinsvegar svo fyrir, að meiri hl. sjútvn. ráði úrslitum. Úrskurðurinn er því fullkomlega ógildur.
Ég bendi á þetta sem misnotkun valds, sem ekki er ósennilegt, að gæti endurtekið sig. hér eru fátækir menn, sem að öllum líkindum eru saklausir, reknir með vansæmd úr stöðum sínum. Þetta er sá nýi hæstiréttur, sem hæstv. dómsmrh. vill láta vera á áfrýjunarrétt út af loftskeytaeftirlitinu. Þessi mynd af sjútvn. sem dómstóli undir forustu hv. 1. þm. S.-M. gefur nokkra hugmynd um það réttarfar, sem þar verði ríkjandi. Ég geri ráð fyrir, að þeir fjórir menn, sem samþ. þessa óréttmætu brottvikningu, hafi aldrei kynnt sér málstað stýrimannanna, en látið sér nægja það, sem stj. sagði. Þetta er þá sá dómstóll, sem eftir orðum ráðh. á að beita gegn útgerðarmönnum, sem ef til vill eru alsaklausir.
Hv. 1. þm. S.-M. sagði, að ég væri að nota mér, að umr. hefðu verið skornar niður. Það var ekki ég, sem skar þær niður, heldur fyrst og fremst hann og hans flokksmenn, og ég tel rétt, þar sem hann og hæstv. dómsmrh. hafa gert þetta mál að svo stóru númeri, að sem ljósast komi fram í Alþt., hvað andstæðingar hafa haft fram að færa, þrátt fyrir tilraunir meiri hl. að loka fyrir munninn á þeim. Að vísu er þetta ekki í fyrsta skipti, sem stjórnarflokkurinn beitir þessari aðferð gagnvart andstæðingunum. í umr. um síldareinkasöluna, er við hv. þm. G.-K. börðumst fyrir umbótum á frv. hv. 1. þm. S.M., var gripið til þessa sama ráðs. Ég vil minna hv. 1. þm. S.-M., sem ellin hefir auðgað svo mjög að reynslu og færleika, á það, að hann hefði átt að læra það af reynslunni af síldareinkasölunni, að hann hefði nú átt að hlífast við að skera niður umr. fyrir þeim, sem hafa réttan málstað, eins og þá, er við vildum leiðrétta helztu vitleysurnar í till. hans viðvíkjandi síldareinkasölunni.
Hæstv. dómsmrh. sagði, að við miðuðum frv. of mjög við, að hann yrði dómsmrh. framvegis, og væri sem við héldum, að hann væri þjóðinni ómissandi í því sæti. En í rauninni er ekki furðulegt, þótt við miðum frv. við það, því að fyrst og fremst er hann dómsmrh. eins og stendur, og í öðru lagi er alls ekki grunlaust um, að frv. sé fyrst og fremst borið fram af hálfu hæstv. ráðh. til að geta klekkt á pólitískum andstæðingum sínum, enda er engin þörf á að miða við annan dómsmrh. hvað þetta mál snertir, því að fullvíst er, að hvaða dómsmrh., sem eftir hann kemur, nemur úr gildi þau lög, ef að lögum verður, sem óvirða landhelgigæzluna, en eru gagnslaus með öllu. Hvaða ráðh. sem er mun láta endurskoða þessa löggjöf, því að aldrei mun sá maður setjast í sæti dómsmrh., að ekki verði hann heilli og betri en sá, er nú skipar það sæti.
Ef hv. 1. þm. S.-M. hefir ætlazt til, að ég tæki niðurskurðarsamþykkt hans þannig, að ég ætlaði að þegja, hefir honum skjátlazt. Þessi ræða er í senn mótmæli gegn því gerræði stjórnarliðsins að vega nú aftur í sama knérunn og 1928, með því að loka munni andstæðinganna, og gegn frv. afskræmi því, sem hér liggur fyrir. Annars getur hv. 1. þm. S.-M. svarað við 3. umr., ef hann treystir sér til að hrekja nokkuð af því, sem ég hefi sagt. Röksemdir hans hingað til hafa einkum verið þær, að ekki væri ómaksins vert að eltast við það, sem andstæðingarnir hefðu sagt.
Minni hl. n. hefir sýnt fram á, að í frv. felst engin réttarbót. En hinsvegar gerir ráð framkvæmd loftskeytasendinga stórum erfiðari en áður og þörf er á. Með því er lögð aukin byrði á herðar loftskeytamanna, sem að vísu er fámenn stétt, svo að hv. meiri hl. álítur máske ekki skipta miklu máli, þó að á þá séu lögð óþörf aukaverk. En líf skipshafnar getur þó oft á því oltið, að starfskraftar þessara manna séu óveiklaðir, og því tel ég bæði rangt og hættulegt að ofbjóða starfskröftum þeirra að nauðsynjalausu. Þeir eru of dýrmætir til að eyða þeim í fánýtt dútl.
Það hefir verið á það bent, að samkv. frv. verður loftskeytastöðin að hlusta í sífellu á loftskeytasendingar milli skipa. Eins og nú er, hefir vörðurinn nóg að gera að taka á móti skeytum á 600 metra bylgjulengd, sem er hin alþjóðlega bylgjulengd. Hefir það ómetanlega þýðingu, að loftskeytastöðin ræki það starf sitt með árvekni og samvizkusemi. En til að hlusta á bylgjulengd milli skipa verður að hætta að hlusta á alþjóðlegu bylgjulengdina, til þess að para niður veðurfréttir og aflafregnir, sem fara á milli togara. Eigi veiklun starfskrafta og verra eftirlit ekki að vera afleiðing þessa, er augljóst, að fjölga verður starfsmönnum á loftskeytastöðvunum.
Hv. þm. Ak. hefir synt með tölum eftir skýrslum frá félagi íslenzkra loftskeytamanna, að fara verður samkv. frv. í gegnum allt að 850 þús. skeyti, á ári. Í gegnum þennan grúa verður að pæla, til þess að stj. fái hugmynd um, hvort loftskeyti séu notuð í óleyfilegum tilgangi. Hv. þm. Ak. hefir sannað, að þetta sé 7 manna verk. Ég held að vísu, að ofætlun sé, að sami maður fari í gegnum 50 skeyti klst. En 7 manna verk verður það þó alltaf minnst. Auk þess verður að bæta mönnum á Ioftskeytastöðvarnar hér og í Vestmannaeyjum, ef hægt á að vera að hlusta líka á alþjóðlegu bylgjulengdina. Þegar bent var á þetta, sögðu þeir hæstv. dómsmrh. og hv. 1. þm. S.-M, að ekki ætti að framkvæma lögin á þennan hátt. En til hvers er þá verið að setja þetta í lög? Hæstv. dómsmrh. talaði um „stikkprufur“. En þær eru vitanlega alveg þýðingarlausar. Annaðhvort verður að ganga gegnum öll skeytin eða ekkert.
Það er því sannað, að ef frv. á að koma til framkvæmda eins og það er á pappírnum, hefir það í fór með sér aukinn kostnað og fyrirhöfn. Auk þess er mönnum gert ómögulegt að hafa skeytasamband við skip nema hálfan sólarhringinn, þ. e. a. s. þann tímann, sem landssímastöðvar eru opnar. M. ö. o., það er ekki nema hálfan sólarhringinn, sem hægt verður að senda símskeyti til skipanna, aðeins hann tíma, sem stöðvarnar eru opnar fyrir almenning. Þó vita allir, að það er eins nauðsynlegt fyrir veiðiskip og útgerðarmenn að senda skeyti jafnt á nóttu sem degi. Ég ætla alls ekki að gera tilraun til þess að meta til peninga það tjón, sem af því getur leitt, ef hætta á að senda skeyti gegnum loftskeytastöðina að nóttu til. Afleiðingin af því yrði ekki aðeins óþægindi og tjón fyrir útgerðarmenn, heldur gæti það einnig orsakað alvarlegri hluti. Annars veit ég ekki, hvað þeir menn hafa til saka unnið, sem hafa gerzt skipstjórar á togurum eða útgerðarmenn, að gera þurfi heim erfiðara fyrir en öðrum með afgreiðslu þessara mála, en það er gert með því að banna þeim að senda loftskeyti nema á meðan landssíminn er opinn. Hingað til hefir þó verið leyfilegt að senda loftskeyti allan sólarhringinn. Annað þekkist líka ekki erlendis en að senda megi skeyti til skipa á hvaða tíma sem er. Íslenzka löggjöfin er því á undan í þessu efni, ef frv. verður að l.
Þeir, sem breiða yfir nafn og númer í þessu efni, eru þeir menn, sem flýja rökin eða skella skollaeyrunum við þeim, en ekki þeir, sem bera þau fram. Það erum því ekki við, sem erum í minni hl. í sjútvn., sem siglum með breitt yfir nafn og númer, heldur hæstv. dómsmrh. og þeir, sem fylgja honum eftir. Slíkt er líka eðli hæstv. ráðh. og hefir verið frá því fyrsta, að hann kom nærri opinberum málum. Hann breiddi sannarlega yfir nafn og númer, þegar hann árið 1916 sigldi úr sócialistaflokknum yfir til bænda, til þess að reyna að veiða þá í net sitt. Það þýðir ekkert fyrir hann að reyna að hafa á móti því, þar sem það er beinlínis sannað með yfirlýsingum frá flokksbræðrum hans þáverandi. Hann breiðir líka yfir nafn og númer, hæstv. ráðh. dómsmálanna, þegar hann dregur flokksbræður sína bæði sunnan lands og norðan undan réttlátum refsingum laganna.
Að því er snertir afskipti sjútvn. af þessu mali, þá getur hún alls ekki komið í veg fyrir, að ákvæðum 6. gr. frv. verði misbeitt, og að því er snertir meiri hl. sjútvn. nú, þá er honum lítt treystandi til að vera réttlátur dómari, hvorki í þessu máli né öðru, og því til sönnunar hefi ég nefnt hina hneykslanlegu afgreiðslu hans á máli stýrimannanna á varðskipunum, er til n. var skotið.
Þá var hæstv. dómsmrh. eitthvað að tala um þá ágætu skipun, sem komin væri á landhelgigæzluna síðan hann tók við völdum. Hann hefir hælt sér af því áður, hæstv. ráðh., að hafa komið lagi á landhelgigæzluna. En eins og ég hefi svo þráfaldlega bent á, þá hefir hann sannarlega fært hana meira úr lagi en bætt hana, og þetta frv. getur ekki falið þau mistök, sem orðin eru á stjórn hennar. Henni er alltaf að stórhraka. Ráðh. er alltaf að færa hana niður á lægra og lægra svið. Áður var hún t. d. undir stjórn dómsmrn. Á skipunum ríkti þá gott samstarf, satt og samlyndi, en nú er þetta orðið á annan veg. Skipin hafa verið sett undir aðra útgerðarstjórn og jafnframt notuð til ýmissa annara hluta, sem eru óviðkomandi gæzlustarfi þeirra. Samkomulagið innbyrðis á sumum þeirra hefir orðið hið versta, og því til sönnunar má benda á kærurnar frá skipshöfninni á Ægi. Allt er þetta til þess að gera árangurinn af gæzlustarfinu verri. Eins og kunnugt er, eru nú miklu færri erlend fiskiskip tekin fyrir ólöglegar veiðar í landhelgi en áður, og það af eðlilegum ástæðum. Þá er ennfremur svo komið, að undir stjórn núv. dómsmrh. skeður það, að þrjár stórþjóðirnar senda hingað gæzluskip til lengri dvalar og ýtarlegra eftirlits en áður hefir átt sér stað. Þetta bendir nokkuð greinilega á það, í hvaða óefni hæstv. dómsmrh. er búinu að stýra landhelgigæzlunni. Við erum hreint og beint, að því er virðist, settir undir eftirlit stórþjóðanna í þessu efni. Þetta gekk alls ekki þannig til áður. Á árunum 1925–26 munu hafa verið tekin hér flest skip og dæmd fyrir landhelgibrot, sem nokkurn tíma hefir verið. Urðu hinar útlendu þjóðir, er fiskveiðar stunda hér, því fyrir þyngri búsifjum um fjárútlát en áður hafði átt sér stað. Þó dró ekki að því, að hingað væru send útlend herskip, til þess að vera hér mánuðum saman til þess að lita eftir hagsmunum þegna sinna. En í dag er ástandið þannig, undir stjórn núv. dómsmrh., að hingað eru send fleiri erlend herskip til eftirlits, að landhelgigæzlan er rækt miklu verr en áður, að samkomulagið á gæzluskipunum, eins og t. d. Ægi, horfir til stórra vandræða, því að margir yfirmenn af skipunum ganga í landi á fullum launum, en aðrir eru teknir í þeirra stað, allt vegna sundurlyndis og ósamkomulags. Þannig er nú ástand landhelgigæzlunnar, og þó þykist hæstv. dómsmrh. hafa bætt hana. Þetta sýnir aðeins það, hve gersamlega hann og fylgifiskar hans eru blindir á allt það, er gæzlunni má að gagni verða.