20.02.1932
Neðri deild: 6. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (4)

1. mál, fjárlög 1933

Magnús Guðmundsson:

Ég hafði búizt við því, áður en þessi skýrsla kom, að hún yrði nokkuð dapurleg. En ég verð að segja, að hún hefir orðið jafnvel ennþá dapurlegri en ég hafði búizt við.

Það má ráða af líkum, að ekki sé rétt að ræða slíka skýrslu eftir að hafa aðeins heyrt hana lesna upp, og ég held, að ég geri það ekki í þetta skipti, en það vil ég nú þegar taka fram, að ég áskil mér og þeim flokki, sem ég telst til, heimild til að fara nákvæmlega út í þetta mál við framhald 1. umr.