01.03.1932
Neðri deild: 17. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í C-deild Alþingistíðinda. (4011)
51. mál, Menningarsjóður
Flm. (Magnús Guðmundsson):
Ég vil fyrst leiðrétta þann misskilning hjá hæstv. ráðh., að hér sé um tekjuaukafrv. að ræða. Hér er aðeins um það að ræða að draga úr gjöldum ríkissjóðs. Ástæðan til þess, að ég ber þetta frv. fram, er einmitt sú, að ég held, að nokkuð erfitt verði að ná með tekjuaukafrv. eða nýjum köttum þeim tekjum, sem væntanlega þarf. Ég veit það vel, að menn þeir, sem hæstv. dómsmrh. nefndi og njóta góðs af þessum sjóði, hafa ekki of mikið, en þetta verður að koma niður á öllum jafnt, og því verður ekki neitað, að það fé, sem þessum sjóði er lagt fram í þessum ákveðna tilgangi, er eftir okkar hlutföllum gróflega ríflegt. Og þar sem ekki er um annað að ræða en að vera breyt. á þessu fyrirkomulagi um tveggja ára skeið, þá sýnist það ekki vera svo gífurlega langt farið í sakirnar. Afleiðingin myndi væntanlega verða sú, að ekki kæmu út í ár einhver þau rit, sem ella myndu koma, heldur tveim árum seinna. Hinsvegar geri ég ráð fyrir því, að persónustyrkir myndu geta haldizt eins og áður.
Hverjar tekjur sjóðurinn kann að hafa árið 1932, veit hvorki ég né hæstv. ráðh. neitt um, en það er nú einu sinni svo, að það fer ekkert eftir árferði, því lögbrot eru jafnt framin í slæmu árferði og góðu; og e. t. v. má segja, að meira sé um þau á slæmu árunum en hinum góðu. Einnig er það alkunna, að árið 1931 hafði sjóðurinn talsvert miklar tekjur. Stórfelld brot komust upp og af því hafði sjóðurinn talsvert miklar tekjur, og nú standa yfir mörg mál, sem væntanlega verða leidd til lykta á árinu 1932, og koma þá enn miklar tekjur í sjóðinn.
Það eru auðvita ýkjur hjá hæstv. ráðh., að listamennirnir lifi mestmegnis á Menningarsjóði, því að þeir hafa lifað áður en hann tók til starfa, en það var árið 1929, svo að ekki hafa þeir einungis lifað á honum.
Ég tók svo eftir, að hæstv. dómsmrh. mundi þó ekki vera á mót því, að málinu væri vísað til n., og vil gera það að till minni, að frv. verði vísað til fjhn. að umr. lokinni.