01.03.1932
Neðri deild: 17. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1004 í C-deild Alþingistíðinda. (4018)
51. mál, Menningarsjóður
Ólafur Thors:
Hæstv. dómsmrh. og hv. þm. Dal. hafa báðir dregið hér inn í umr. skjal nokkurt um verzlunarálagninguna hér í Reykjavík, eins og það er kallað, samið af skattstjóranum hér á staðnum. Vildi ég að þessu tilefni gefnu fara nokkrum orðum um þetta skjal, sem er hið einstæðasta í sinni röð, og alls ekki merkilegt, eins og áðurnefndir hv. þm. kalla það. Ægir saman hinum furðulegustu fjarstæðum í þessu plaggi skattstjórans, og vildi ég hér aðeins nefna til eitt dæmi sem sýnishorn. Skattstjórinn kemst að þeirri niðurstöðu, að álagningin á erlendar vörur nemi um 485 kr. á hvert mannsbarn hér í bænum, og svarar þar til 2400–2500 kr. álagningu fyrir hverja fimm manna fjölskyldu. Jafnframt telur skattstjórinn, að þessi álagning sé um 20% af söluverði varanna, og samkv. því verður hver fimm manna fjölskylda hér í bænum að kaupa erlendar vörur fyrir sem svarar 8000–9000 kr. á ári, en til þess að slíkt geti staðizt, yrði hver fjölskylda að hafa milli 15 og 20 þús. kr. tekjur á ári, og þó nær 20 þús. — Tel é ekki samboðið þm. að vitna til plaggs, sem hefir að geyma aðrar eins vitleysur sem þessa.