02.03.1932
Neðri deild: 18. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í C-deild Alþingistíðinda. (4031)
52. mál, fræðslumálastjórn
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Það er ekki nema ánægjulegt fyrir formann skólanefndar að geta hælt svo sínum kennara sem hv. flm. gerir. En ég mótmæli því, að það sé réttmætt að kasta rýrð á þá kennara, sem hafa prófvottorð frá kennaraskólanum. Það er nýtilkomið, ef menntun og vottorð eru talin lýti á mönnum.