20.04.1932
Efri deild: 56. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (404)
5. mál, verðtollur
Jón Baldvinsson:
Hæstv. fjmrh. lýsti því, að ég og flokksmenn mínir vildum hærri útgjöld í fjárl. og vissum því, að landið gæti ekki verið án þessa tolls. Held ég, að hann, sem er gætinn maður, hafi orðað þetta skakkt. Veit hann, að þótt við óskum eftir hærri útgjöldum í sumu, erum við ekki alltaf samþykkir því, hvernig fé er eytt. Eins veit hann að við erum ósamþykkir þeirri stefnu, sem felst í þessu verðtollsfrv. Hefði það verið rétt, ef hæstv. ráðh. hefði orðað þetta svo, að landið þyrfti á þessum tekjum að halda. En ég sé ekki, að þær þurfi að binda við þessa tekjulind. Við höfum áður bent á aðrar leiðir. Hefir því jafnan verið illa tekið af andstæðingunum, Framsókn og einkum þó Sjálfstæðisflokknum. Eru þeir andvígir aðferðum okkar til fjáröflunar fyrir ríkissjóð. Menn greinast í flokka m. a. um það, hvernig eigi að ná í fé. Hæstv. ráðh. segir, að verðtollurinn verði að haldast. Hefði eins mátt orða það svo, að ríkissjóður verði að fá þetta fé, það er rétt. Getur hæstv. ráðh., ef hann vill, sagt, að við lifum í ábyrgðarleysi. Hefir það engin áhrif á okkar skoðun. Hann veit, að þessi skoðun í skattamálum á sér sterkara fylgi annarsstaðar en hér, því að hjá okkur er þessi stefna, verkamannahreyfingin, ung. Ef hæstv. ráðh. hefði viljað líta til Danmerkur, hefði hann getað séð, hverjum sköttum jafnaðarmannastjórnin þar stakk upp á til þess að útvega nýtt fé í ríkissjóð og geta haldið öllum skuldbindingum. Læt ég mér því í léttu rúmi liggja skraf hans um ábyrgðarleysi okkar. Höfum við heyrt það svo oft. Það, hvernig framsóknarstj. hefir farið fram úr heimildum Alþingis um meðferð fjár, sýnir, að ábyrgðartilfinningin í fjármálum hefir ekki alltaf verið sterk hjá þeim flokki, þótt ég beri það ekki á hæstv. fjmrh., því að enn hefir ekkert sezt frá hans hendi.
Hæstv. ráðh. óskaði eftir því, að kjósendur fengju réttar upplýsingar um skattamálin sem önnur. Felst í þessu, að hann telur hafa verið bornar fram rangar upplýsingar. Skil ég ekki, við hvað hann á, og vona ég, að hann skýri það betur. Hitt er rétt, að við Alþýðuflokksmenn höfum haldið því fram, að verðtollurinn ætti að hverfa, því að hann er tekinn á röngum stað og kemur hlutfallslega harðast niður á þeim, sem minnst eiga. Nefskattar koma að krónutölunni til jafnt á ríka og fátæka. Við jafnaðarmenn álítum, að taka beri féð þar, sem það er til. Annars tel ég ekki ástæðu til að fara út í almennar umr. um skattamál.
Mér hefir skilizt á hæstv. ráðh., að hann hefði fengið samkomulag um það við sjálfstæðismenn, að málið færi til 2. umr. og n., enda er það stefnumál sjálfstæðismanna, sem hér er um að ræða, og er því engin sjálfsafneitun fyrir þá að veita þessa tilhliðrun.