09.03.1932
Neðri deild: 24. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í C-deild Alþingistíðinda. (4040)

70. mál, ábúðarlög

Bernharð Stefánsson:

Þetta mál hefir legið fyrir nokkrum undanförnum þingum og verið töluvert rætt. Á vetrarþinginu í fyrra fékk það einnig allrækilega athugun í nefnd. Vonast ég því eftir, að það geti að þessu sinni gengið umræðulítið til nefndar.

Á vetrarþinginu í fyrra fékk málið afgreiðslu frá landbn. Hún lagði til að gera allmiklar breytingar á frv. Nú er frv. lagt hér fram að mestu leyti í sömu mynd og það var áður og lítið tekið upp af brtt. landbn. í fyrra. Við flm. höfum tekið upp þær einar breyt., sem við vorum sammála sammala um að væru til bóta. Ég vil taka það fram, þar sem ég var í landbn. í fyrra og skrifaði undir nál. með fyrirvara, að ég gæti þó e. t. v. gengið inn á einhverjar fleiri breyt., ef málinu væri þá borgið. Breytingar þær, sem við flm. höfum gert á frv., eru þá þessar:

Í fyrsta lagi við 2. gr., um rétt jarðareiganda til að taka jörð úr ábúð. Við leggjum til, að sá réttur sé aukinn svo, að jarðareigandi megi taka jörð úr ábúð handa foreldri sínu eða barnabarni.

Þá er brtt. við 11. gr. um húsaskyldu. Leggjum við nú til, að ekki sé skylda að halda við húsum á jörðum, sem allar horfur eru á, að leggist í auðn. Virðist þetta vera sjálfsögð breyting.

Þá er 16 gr. ekki samhlj. því, sem hún var áður. Hún er um vexti eða hækkað afgjald, sem leiguliði á að greiða af framlagi landsdrottins til húsabóta. Hér eiga vextirnir ekki að vera ákveðnir, heldur má hækka afgjald jarðarinnar sem svarar þeim vöxtum, er landsdrottinn verður að greiða af láni því, er hann kann að taka vegna húsagerðarinnar, ella venjulegir sparisjóðsvextir. Engin ástæða er til að landsdrottinn fái ekki sömu vexti og hann hefir sjálfur orðið að greiða, ef hann hefir átt féð sjálfur, virðist ekki ástæða til að greiða honum hærri vexti en hann getur fengið í bönkum og sparisjóðum.

Þá eru engar breytingar fyrr en við 43. gr. Þar er bætt við fyrri ákvæði, að ef landsdrottinn vill gera jarðabót á jörð, sem er í fastri byggingu, og nái hann ekki samkomulagi við leiguliða um það, þá megi hann samt sem áður gera jarðabótina. En þegar henni er lokið, geti hann látið úttektarmenn skoða hana og meta. hversu mikið jarðargjald megi hækka við jarðabótina. Beri þá leiguliða að halda jarðabótinni við og gjalda árlega þá hækkun á eftirgjaldi, sem metin er fyrir jarðabótina. Virðist sanngjarnt, að landsdrottinn geti sjálfur bætt eign sína eftir vild.

Aðalbreyt. er þó e. t. v. við 45. gr. Hún er um kaupskylduna. Áður stóð í frv., að þegar landsdrottinn byði leiguliða jörð til kaups með 5 ára greiðslufresti og fasteignamati, en leiguliði neitar að kaupa, þá hafi leiguliði fyrirgert ábúðarrétti sínum. Nú hefir greiðslufresturinn verið færður niður í 6 mán. Þetta er miklum mun hagstæðara fyrir landsdrottin, en við litum svo á, að hitt ákvæðið gæti komið um of í bága við hagsmuni hans. Nú er líka svo komið, þegar miðað er við heilbrigða tíma, að aðgangur að peningastofnunum gegn veði í fasteign er orðinn það greiður, að oftast verður ekki miklum erfiðleikum bundið fyrir leiguliða að geta svarað út jarðarverðinu á þessum tíma. En oft getur verið, að landsdrottni sé nauðsynleg að fá jörðina greidda innan þessa tíma, og gæti því fyrra ákvæði frv. komið of mjög í bága við hagsmuni hans.

Þá er loks brtt. við 57. gr., þar sem við leggjum til, að frestur á fullri framkvæmd þessara laga verði ákveðinn 10 ár í stað 5 ára áður.

Ég hefi þá gert grein fyrir, að hverju leyti frv. er breytt. Vonast ég eftir, að frv. gangi til n. og n. eigi hægra með að afgreiða það , fljótt og vel vegna hins mikla undirbúnings, er það hefir þegar fengið. Hvað sem um brtt. landbn. frá í fyrra má segja, er þó víst, að í þeim er saman komið allt það helzta, sem menn hafa talið athugavert við frv. Ætti því það starf að vera til mikils léttis fyrir landbn. nú.