13.05.1932
Neðri deild: 74. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1043 í C-deild Alþingistíðinda. (4047)

70. mál, ábúðarlög

Sveinn Ólafsson:

Ég hefi lítinn tíma haft til þess að kynna mér þetta mál af nýju, og brtt. n. hefi ég aðeins lesið fljótlega yfir og borið saman við frv. Lízt mér sem frv., eins og það kom fram á öndverðu þingi, með þeim breytingum, er landbn. leggur til, myndi verða nær hæfi en áður var, þótt ég verði hinsvegar að álíta, að mikil smíðalýti séu á því ennþá. Á ýms þeirra hefir hv. 2. þm. Skagf. bent, og er ég honum sammála í öllum aðalatr. Veit ég líka, ef málið bíður næsta þings, að ganga má svo frá því, að við megi hlíta og brjóti ekki í bág við rótgrónar venjur eða eldri lagasetngu, svo sem frv. þetta gerir. En til þess má ekki ætlast, að slíkur lagabálkur sem þessi sé gallalaus í upphafi og geti staðið um allan aldur óbreyttur. Breytingar eru í þessu efni og búnaðraháttum svo tíðar, að ekki er þess að vænta, að landbúnaðarlöggjöf standi lengi óhögguð. Í frv. eru nokkur ákveðin atr., sem mér virðist sérstaklega athugaverð, eða jafnvel óeðlileg. Og yfirleitt leggur frv. allt of mikil höft á samningafrelsi manna, höft, sem einstæð eru í íslenzkri löggjöf. Ákvæðið fortakslausa í 9. gr., um að jörð skuli ætíð byggja til lífstíðar, er óréttmætt. Getur oft staðið svo á, að frá hálfu annars samningsaðiljans sé það æskilegt að binda það ekki nema um sinn. Það er kunnugt, að neyðarlausir samningar gerast oft um ábúð á jörðum til styttri tíma. Getur það verið allt með eðlilegum hætti og þarf ekki að fylgja nein kúgun við annan aðiljann.

Þá er það fortakslausa ákvæði í frv., að landeigandi skuli byggja hús á leigujörð sinni eftir mati úttektarmanna á hverjum stað og tína og vera skyldur til að auka við þau hús eftir þörfum og kröfum ábúanda, og þannig yfirleitt vera háður áliti óviðkomandi manna um það, hversu mikið hann leggi fram til þessara eigna sinna. Slíkar kröfur geta orðið óhóflegar. Finnst mér þetta vera óeðlileg bönd á samningafrelsi manna. Líka er það óviðfelldið að geta ekki og mega ekki leigja jörð nema með ákveðnum húsafjölda. Eru þess ekki fá dæmi, að jarðir eða jarðpartar séu leigðir án nokkurra húsa, t. d. þegar land er leigt til ræktunar nærri verstöð eða kauptúni. Er það oft svo, að sá, sem fær jarðarskika leigðan, reisir þar sjálfur hús við sitt hæfi eða utan leigulandsins. Veit ég ekki, hvað ætti að vera á móti því, að slíkir samningar megi takast. En óeðlilegast er þó, að landeigandi skuli skyldur til að kaupa þau hús, sem í slíkum tilfellum eru reist af leigjanda og jafnvel í óþökk landeiganda.

Um ýms fleiri hliðstæð ákvæði hefi ég hnotið í frv., ákvæði, sem ég er hræddur um, að leiða myndu til þess, að lögin yrðu óvinsæl. Má segja, að hér sé, eins og hv. frsm. landbn. tók fram, að meira leyti en sanngjarnlegt er, litið á hagsmuni leiguliða. Er það rétt hjá honum, að með ábúðarlöggjöfinni frá 1884 var ekki jafnmikið tillit tekið til hagsmuna þeirra og landeigendanna. Getur því verið, að sumstaðar hafi kjör þeirra orðið erfiðari í seinni tíð en ætlunin var eftir þeim lögum. Þó held ég ekki, að þess hafi gætt nema á tiltölulega fáum stöðum. Kannast ég ekki við það, að í þeim landshluta, þar sem ég er kunnugastur, séu kjör leiguliða neitt sérstaklega erfið. Er heldur ekki við því að búast, þegar útstreymið úr sveitunum er svo mikið, að erfitt er og sumstaðar ómögulegt að fá jarðirnar byggðar. Enda þekki ég ekki þá afarkosti sem hér er talað um, að þessir menn þurfi við að búa. Ætti það það að vera í landshlutum, þar sem ég er ókunnugur. Ef það væri rétt, að þessir menn byggju við harðræði, þá væri sjálfsagt að láta þá njóta verndar, en ég held, að þetta frv. gangi þó of langt í því efni og sé að ýmsu á öfgum byggt.

Að því er kemur til opinberra eigna, þá virðist mér sem ákvæði frv. um kaup og viðhald húsa á þeim myndu leiða til þess, að ríkið kysi heldur að farga eignunum en reisa eftir mati úttektarmanna hús, sem yrðu miklu dýrari en jarðirnar sjálfar. Held ég, að mikið af opinberum eignum yrði að selja til þess að losna við þessa óeðlilegu húsakvöð. Sjálfsagt yrði hún til þess, að fjölgaði sálfseignarbændum í landinu, einkum ef ríkið gæfi jarðirnar heldur en ganga undir kvöðina, sem vel gæti orðið. Gæti líka farið svo, að jarðirnar yrðu keyptar af öðrum en þeim, sem ætluðu beinlínis að hagnýta sér þær í því skyni að reyna að hafa þær að féþúfu. Verður hér að fara varlega og leggja ekki óeðlilegar kvaðir á landeigendur og ríkissjóð, sem ætti að vera bezti landsdrottinn. Gæti það orðið til þess að auka fólksstrauminn úr sveitunum, sem verið hefir fullstríður hin síðustu ár, ef neyða ætti landeigendur til samtaka um varnir þegn svona fráleitri lagasetningu.

Um formsatriði ýms mætti margt segja. Er ég á því, að einnig í því tilliti þurfi að fara höndum um frv. aftur.

Hv. landbn. hefir lagt til, sem rétt er, að skilgreina hugtaki „jörð“ í upphafi frv. Skilgreining n. er nærri þeirri hugmynd, sem tengd er við nafnið bújörð. Þó er skilgreiningin ekki tæmandi, og mætti athuga þetta nánar og rýmku skilgreininguna. N. segir, að jörð nefnist í þessu frv. hvert það sveitabýli, sem metið er sérstaklega til verðs samkv. fasteignamati, — „enda fleyti býlið 6 kúgildum hið minnsta“ bætir n. við nú af nýju. Stundum eru ræktanlegar skákir, lóðir eða lítil graslýti metin þannig og ættu þá að falla hér undir skilgreininguna „jörð“, en ekki er þó venja að nefna slík býli jarðir. Held ég, að skilgreiningin ætti að vera á þá leið, að eitthvert ræktað land fylgdi, einhver hagi og önnur landsafnot, sem gera býlið sjálfstætt, enda hefir málvenjan tengt þetta við bújarðarnafnið. Fjölyrði ég ekki frekar um þetta, en vænti að lagamenn hv. d. lagfæri það.

Ég verð að láta í ljósi sömu skoðun og hv. 2. þm. Skagf. um undirbúning málsins, að ég tel honum tæpast svo langt komið, að það geti orðið að lögum á þessu þingi, þegar ætla má, að komið sé að þinglausnum. Að rekja einstakar gr. frv. eða brtt. við það, tæki of langan tíma. Vil ég aðeins taka það fram, að áður en hægt er að veita málinu fylgi, þarf að endurskoða það allt frá rótum vandlega og athuga, hvort það hæfir nútímanum og getur komið í stað eldri ábúðarlaga. Skal ég svo ekki fjölyrða um þetta frekar; ég hygg það tilgangslaust.