19.05.1932
Neðri deild: 78. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í C-deild Alþingistíðinda. (4063)
70. mál, ábúðarlög
4063Halldór Stefánsson:
Þegar ég minntist hér á brtt. mínar áðan, gleymdi ég annari aðalbrtt., sem sé 3. brtt. á þskj. Hún ræðir um það fyrningargjald, sem frv. gerir ráð fyrir. Sú nýja hugsun kemur fram í frv., að ákveða fyrningargjald af húsum og mannvirkjum. Þetta út af fyrir sig tel ég eðlilegt. Sú meðferð er ætluð á fyrningargjaldinu, að það verði í vörzlum landeiganda og ábúanda, að hálfu hjá hvorum, og er til þess ætlazt, að það verði tiltækilegt, þegar endurreisa þarf hús. En eftir þessari meðferð þykir mér hætt við, að svo geti farið, að fyrningargjaldið verði ekki tiltækt, þegar til þess þarf að taka, ef það gengur inn í reksturinn og viðskiptaveltu þessara aðilja, leigusala og abúanda. Með brtt. mínum er ætlað, að fyrningargjaldið haldist óbreytt, en þær gera einungis ráð fyrir breyttri tilhögun með geymslu á því. Þær gera ráð fyrir, að leiguliðabótin skuli öll falla í sérstakan sjóð, sem sé settur á vöxtu í Búnaðarbankanum og sé þar undir stjórn bankastjórnarinnar og yfirstjórn atvmrn., til þess að tryggja það, að þessi nytsami sjóður sé til, þegar til þarf að taka og að honum verði réttilega varið. Það verður þá miklu léttara að endurbyggja híbýlin á leigujörðum, ef sjóðurinn er alltaf tiltækur, enda þótt hann verði ekki nægilega mikill og einhverju þurfi að bæta við hann.
Það má e. t. v. segja, að ekki séu ýtarlegar eða nægilegar þær reglur og ákvarðanir, sem settar eru hér í brtt. um geymslu og meðferð fyrningarsjóðsins, en það er þá líka ætlazt til, að nánari reglur geti orðið um þetta í reglugerð. En í till. er fyllilega tekið fram um meðferð, ávöxtun og vörzlu sjóðsins, og það er aðalatriðið. — Það liggur fyrir till. frá landbn. um að lækka hámark fyrningargjaldsins. Hv. frsm. n. gerði nokkra grein fyrir því, að það mundi vera óþarflega hátt sett í frv. Það á vitanlega að fara þar meðalhófið og ég get fallizt á, að lækka megi hamarkið, og því fremur, ef sjóðurinn er settur í örugga vörzlu, eins og ég geri till. um.
Það er vitanlegt, að það getur komið til álita, að bæði landsdrottinn og leiguliði leggi í þessa fyrningarsjóði. En ég hygg, að það sé meira form- en efnismunur. Því að ef landeiganda væri ætlað að leggja í sjóðinn þannig, að það mætti skoðast sem hluti af réttlátu fyrningargjaldi, þá mundi hann vilja áskilja sér þeim mun hærri leigu eða vel ráð. Ég álít fara vel á því að ætla einungis ábúanda að leggja fram fyrningargjald. Það er eðlilegt, að sá, sem með fjármunina fer, skili þeim í jafngildu standi og hann tók við þeim. Það hlýtur að koma niður á ábúanda engu að síður, þótt svo væri ákveðið, að landsdrottinn skyldi leggja fram hluta af fyrningargjaldinu á móti honum:
Þar sem hv. frsm. n. tók mjög vinsamlega í þá hugsun, sem felst í þessari till. minni, vænti ég þess, að hún mæti yfirleitt velvild í hv. d. og geti náð fram að ganga.