20.05.1932
Neðri deild: 79. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1117 í C-deild Alþingistíðinda. (4083)

70. mál, ábúðarlög

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Það liggur í hlutarins eðli, að um þá skrl. brtt., sem nú var lesin, get ég ekkert sagt fyrir hönd landbn., en ég ætla að fara um hana nokkrum orðum frá eigin brjósti. Ég hefi áður við umr. um þetta mál í öðru sambandi talað um, hve varhugavert það sé, að rýmka ákvæðin um æfiábúð, sem eru einhver þýðingarmestu ákvæðin í frv. Ef þessi brtt. nær samþykki, þá er með henni alveg búið að nema burtu þessi ákvæði eða opna möguleika til þess að komast framhjá æfiábúðinni. Eða mundi ekki fara svo, að landsdrottinn áliti sér í öllum tilfellum heppilegra að byggja jörð sína til ákveðins tíma heldur en til lífstíðar, eða hvers vegna er það svo nú, að þeir vilja jafnan byggja jarðirnar til sem stytzt tíma? Ég geri engan mun á því, hvort þessi brtt. verður samþ. eða gömlu ákvæðin fá að gilda áfram, því hver á að meta, hvort nauðsyn ber til að ráðstafa jörðinni stuttan tíma eða ekki? hér virðist enginn munur á vera. Ég get því alls ekki gefið þessari brtt. mitt atkv., og frá mínu sjónarmiði er með henni rýrð einhver mesta réttarbót þessa frv. fyrir leiguliðana, og sömuleiðis tekið burtu fyrsta skilyrðið fyrir því, að leigujarðir séu sæmilega setnar, að ábúendurnir geti verið rólegir. Í þessum efnum á þjóðarheill að sitja í fyrirrúmi fyrir einstaklingshagsmunum, enda álít ég, að búið sé að ganga svo langt í því að gera undantekningar frá æfiábúðarákvæðinu, að lengra sé ekki fært að fara.

Viðvíkjandi því, sem hv. 1. þm. S.M. sagði, að það vantaði til þess, að hægt væri að byggja opinberar jarðir til ákveðins tíma í vissum tilfellum, vil ég benda honum á það, að það eru einmitt ákvæði í frv., sem tryggja, að hægt er að taka opinbera jarðeign úr ábúð þegar ríkið þarf á að halda. Ég vil bara benda honum á ákvæði 9. gr., þar sem tekið er fram, að jarðeigandi geti jafnan upphafið ábúð leiguliða, ef eigandi þarf sjálfur á jörðinni að halda. Nú er það vitanlegt, að ríkið sjálft er landsdrottinn sinna landseta og hefir eftir þessu ákvæði fullan forgangsrétt til sinna jarðeigna, hvenær sem það þarf á að halda. Hér ætti því ekki að þurfa langar ræður til þess að sýna, að vegna ríkisins er engin þörf fyrir þessa brtt. Hinsvegar, ef brtt. verður samþ., þá er ákvæðið um æfiábúðina rýrt svo, að það er einskisvirði, því jarðeigendur munu jafnan hafa einhver ráð til að smeygja sér undir ákvæði brtt.

Það, sem talið hefir verið til þessa sjálfseignarbúskapnum mest til gildis fram yfir leiguliðabúskapinn, er það, hve bændurnir geta setið öruggir á jörðum sínum. Ég hygg því, þegar á það er litið, að um helmingur jarða á landinu eru í leiguábúð, þá beri brýna nauðsyn til þess að skapa þau skilyrði, að leiguliðabúskapurinn þurfi sem minnst að standa hinum að baki.

Ég lít þannig á, að það sé nokkuð öðru máli að gegna, þó að lagðar séu nokkuð þyngri kvaðir á jarðeignir en aðrar eignir. Mín skoðun er sú, að landið sé í raun og veru sameign allra landsmanna, þótt atvikin hafi hagað því svo, að einstakir menn hafi eignarrétt yfir því, og þess vegna eigi að tryggja það sem bezt, að það fólk, sem býr í landinu, fái að hafa sem mestan og jafnastan ábúðarrétt án tillits til þess, hvort þeir sett að nafni til sjálfseignarbændur eða leiguliðar. Það er kunnugt, að í gömlu ábúðarlögunum var eingöngu litið á rétt landsdrottins, en réttur leiguliða algerlega borinn fyrir borð. Þykir mér einkennilegt, að hv. 1. þm. S.-M., sem rís hér upp hvað eftir annað og talar um það, hve harkalega sé búið að landeigendunum með ákvæðum þessa frv., virðist aldrei finna til þess, hvernig búið er að leiguliðum með gildandi ábúðarlöggjöf, þó að þeir séu réttlausir og verði ósjaldan að hrökklast af jörð sinni fyrir ofríki þess, sem byggir þeim jörðina, án þess að fá nema að litlu leyti greiðslu fyrir þær umbætur, sem þeir hafa gert á jörðinni. Hygg ég, að þar sé gengið jafnnærri 63. gr. stjskr. eins og gert er með ákvæðum í þessu frv.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, en vil að lokum biðja hv. d. að gjalda varhuga við að greiða þessari till. atkv.