10.05.1932
Sameinað þing: 8. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í D-deild Alþingistíðinda. (4110)

223. mál, viðskiptasamningar við erlend ríki

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Hv. 2. landsk. virðist hafa misskilið mig, þar sem hann sagði, að ég hefði svarað fyrirspurn sinni með ónotum. Þessi ónot voru þau ein, að ég bjóst við, að Alþýðuflokkurinn hefði verið svo pólitískt skírlífur, að hann vildi ekki láta orða sig við neinn hinna flokkanna. Að hv. þm. kallaði þetta ónot, getur ekki skilizt öðruvísi en sem merki um vonda samvizku fyrir að hafa haft mök við helzt til marga um dagana. Nú sagði hv. þm., að þeir vildu ekki með nokkru móti hafa mann á lista annars flokks, og þó skýrir hann frá því um leið, að hann, sami maðurinn, hafi fengið að vera hjá báðum flokkunum. Mér er alveg sama, hvaða aðferð er höfð á þessu samkomulagi. Alþýðuflokknum stendur það opið að fá mannaskipti í n., þannig, að framsóknarmaður fari úr n., en Alþýðuflokksmaður komi í staðinn, því að það er rétt, að í þessari n. séu fulltrúar allra flokka. Það eina, sem ég hæðist að í þessu máli, er það, að þessi málaleitun skuli hafa komið fram á þennan hátt. Það kann að vera, að eitthvað hafi verið óákveðið í mínum orðum, en það stafar þá af því, að ég hafði ekki ráðgazt um þessa hluti við aðra. Nú hefi ég átt tal um þetta við hæstv. forsrh., og geri ég nú ráð fyrir, að ekkert sé því til fyrirstöðu frá hendi Framsóknarflokksins, að Alþýðuflokkurinn fái að koma manni í n. í skiptum við framsóknarflokksmann. Ég gæti því vel búizt við, að Alþýðuflokksmenn tækju aftur sína till., þar sem þeir gætu komið öllum þessum hlutum að, þegar þeir hafa fengið fulltrúa í n. En ef þeir gera það ekki, sem ég fyrir mitt leyti bið ekki um, þá er nauðsynlegt að breyta till. þannig, að ekki sé þar talað um miðstjórnir stjórnmálaflokkanna, heldur samstarf milli stj. og utanríkismálanefndar.