10.03.1932
Neðri deild: 25. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1127 í C-deild Alþingistíðinda. (4133)

118. mál, húsnæði í Reykjavík

Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Ég sé ekki ástæðu til að fara langt út í þær aths., sem hv. ræðumenn hafa gert við þetta frv. mitt. Hv. 2. þm. Reykv. taldi, að frv. væri einungis lítilfjörleg hrossalækning og að það myndi ekki koma að verulegum notum, þó það yrði samþ. Mér hefir nú aldrei dottið í hug að staðhæfa, að það yrði allra meina bót, en fyrst hv. þm. þykir svo lítils um það vert, þá þykist ég mega gera ráð fyrir, að hann búi sjálfur yfir einhverjum betri úrræðum í þessu máli, og vil ég hér með skora á hann að bera þau fram, og ef mér þykir vera eitthvert lið í þeim, þá fullvissa ég hann um, að hann mun eiga stuðning minn vísan, ef það verður borið fram sem þingmál. Annars játaði hv. 2. þm. Reykv., að húsaleigan hér í bænum væri óhæfilega há. (EA: Ekki almennt, heldur sumstaðar). Já, mjög víða, enda vita allir það, að húsaleigan er yfirleitt ósanngjörn. Þó að einhverjir kunni að þurfa að fá allháa húsaleigu, þá get ég ekki séð, að hinir eigi að okra á húsaleigunni í skjóli þess. Og til þess að koma í veg fyrir slíkt er þetta frv. fram komið. Andstæðingar frv. segja, að það leiði til þess, að húsabyggingar fari minnkandi í Reykjavík, af því að húsaleigan gefi þá svo lítið í aðra hönd, en í þessu felst viðurkenning þess, að eigi sé hlítandi við það, sem úti er. Þó að frv. Þetta verði að lögum, má húsaleigan hér í bænum vera til jafnaðar sem svarar 10–12% af kostnaðarverði húsanna, og hefði það einhverntíma þótt nægilega hátt fyrir húseigendur. Ég skal játa, að það er ekkert aðalatriði í málinu, þar sem ákveðið er í 10. gr. frv., að bætt skuli við húsaleiguna 5% af matsverði lóðarinnar, því ákvæði er hægt að breyta í nefnd, ef það þykir skipta miklu máli, og mun ég ekki amast við því. — Fjölyrði ég svo ekki frekar um ræðu hv. 2. þm. Reykv., enda hljóta það að verða endurtekningar á því, sem sagt var um þetta mál í þinginu í sumar, og afstaðan hefir ekkert breytzt.

Þá mælti hv. 3. þm. Reykv. nokkur orð gegn frv. Mér þótti leitt, að hann skyldi vera svo afbrýðissamur út af flutningi þessa frv. eins og ræða hans bar vott um. Það er rétt, að þetta mál snertir Reykvíkinga fyrst og fremst, en það snertir líka alla landsbúa, jafnvel í hinum fjarliggjandi héruðum. Og ástæðan til þess, að ég flyt þetta frv., er því m. a. sú, að ég sé ekki, að það bóli á neinum till., hvorki hér í Reykjavík né í þinginu, til lagfæringar á dýrtíðinni í bænum, og húsaleigan er aðalrót hennar. Hv. 3. þm. Reykv. hefir ekki dregið í efa, að þetta mál væri mikilsvert og hin fyllsta ástæða til breyt. frá því sem núi er. Ég þykist þess umkominn að bera fram frv. um það efni og þykist ekki þurfa að sækja um leyfi til þess, hvorki frá hv. 3. þm. Reykv. né öðrum. Og þótt hann hafi ekki sjálfur treyst sér til að gera það, þá hefir hann þó viðurkennt, að málið sé mikilsvert. Ég tel því, að rétt hafi verið af mér að flytja málið. Hv. þm. vek að hinum erfiðu lánskjörum í bönkunum, og ég þykist vita, að það sé hvorki á mínu færi né hans að ráða verulega bót á þeim að svo stöddu. Þá sagði hv. 3. þm. Reykv., að Framsóknarflokkurinn hefði verið á móti því að greiða fyrir húsabyggingum í Reykjavík, og hygg ég, að honum hafi því orðið mismæli, því að rétt á eftir gat hann um samkomulag Framsóknarfl. og Alþýðufl. um að veita styrk til verkamannabústaða í kaupstöðum og styðja byggingu þeirra. Ég skal fúslega játa, að það er réttari og heilbrigðari stefna í byggingamálum heldur en villubyggingar þær, sem nú tíðkast hér í Reykjavík, sem kosta stórfé, en standa að miklu leyti auðar og bæta því eigi úr húsnæðisskortinum. Hv. 3. þm. Reykv hefir einmitt góða aðstöðu til að sporna við þeim óheppilegu ráðstöfunum bankanna að lána fé til slíkra bygginga.

Hv. 3. þm. Reykv. gat þess ennfremur, að Framsóknarfl. og Alþýðufl. hefðu samþ., að arðinum af tóbakseinkasölunni skyldi varið til að styrkja byggingar í sveitum og verkamannabústaði í kaupstöðum. Þetta sannar einmitt það, sem ég sagði áður, að Framsóknarfl. hefir ekki beitt sér á móti húsabyggingum í Reykjavík, heldur það gagnstæða.

Þá skoraði hv. 3. þm. Reykv. á mig að láta hér eigi staðar numið með áhuga minn fyrir málum Reykvíkinga, og í því sambandi minnti hann á mjólkurmálin og ætlaðist til, að ég styddi að því, að mjólkurverðið í bænum færi lækkandi. ég get sagt hv. þm., að ég mun stuðla að því eftir því sem ég get. Ég kysi það mjög gjarnan fyrir hönd minna kjósenda í Árnessýslu, að hægt væri að gera mjólkurflutningana þaðan ódýrari en þeir eru nú og að minni kostnaður væri við útsölu mjólkurinnar hér í bænum, þá þyrftu neytendur mjólkurinnar líka að borga minna fyrir hana. Þetta væri mér vissulega gleðiefni. En í þessu efni hefir hv. 3. þm. Reykv. betri aðstöðu til að hafa áhrif en ég. Hið háa mjólkurverð stafar mest af fyrirkomulagi mjólkursölunnar í bænum og því, hvað hún er skipulagslaus og kostnaðarsöm. Ég hygg, að það varði ekki litlu, ef bæjarstj. Reykjavíkur vildi láta sig það einhverju skipta að bæta skipulagið á mjólkursölunni, og þar er hv. 3. þm. Reykv. aðili. Ég vona, að hv. þm. heiti liðveizlu sinni til þess að bæta úr þessum tvennskonar agnúum á mjólkurverzluninni, of miklum flutningskostnaði og sölukostnaði, og að því mun ég ótrauður vinna.

Þá sagði hv. 3. þm. Reykv., að ég hugsaði minna um hag minna kjósenda í Árnessýslu heldur en Reykvíkinga. Ég mun nú síðar á þessu þingi leita til hans og annara hv. þm. um fylgi við málefni, sem snerta hagsmuni minna kjósenda, og þá er gott að heyra, að vænta má stuðnings frá hv. 3. þm. Reykv. Annars hélt ég, að þó að eitthvað kynni að skorta á hjá mínum kjósendum, þá hefði hv. 3. þm. Reykv. ekkert á móti því, þó að eitthvað væri gert fyrir Reykvíkinga; en í þeim efnum, sem komið hafa til greina í þessum umr., fara hagsmunir Árnesinga og Reykvíkinga að leyti saman.

Þá vék hv. 3. þm. Reykv. að einu atriði persónulegs eðlis, sem ekki kemur þessu máli við. Hann sagði, að þó að ég hefði eitt sinn verið þm. Reykv., þá nyti ég ekki hylli þeirra nú. Ég ætla, að hv. þm. sé enginn dómari í þeim efnum, enda er fráleitt, að þessi umsögn hans sé á nokkrum rökum byggð. Hinsvegar mun ég eigi ætlast til, að þeir hlífi mér við þeim dómi, sem ég á skilið að fá og hefi unnið til. En þá er gott að eiga góðan að, þar sem er hv. 3. þm. Reykv.

Hv. andmælendur þessa frv. hafa. ekki getað mótmælt gildi þess, og þeir hafa ennfremur viðurkennt höfuðatriði málsins, að húsaleigan væri ósanngjarnlega há, enda þótt þeir hafi fundið agnúa á frv. og séu ekki sterktrúaðir á gagnsemi þess. Um leið og ég lýk máli mínu vil ég nú skora á þessa hv. þm. að bera fram þau úrræði í þessu máli, er komi að meira gagni en þetta frv. mitt, ef þeir þykjast sjá þau.